MinningBogi Ísak Nilsson er fallinn frá Bogi Ísak Nilsson, fyrrverandi ríkissaksóknari og ríkislögreglustjóri, lést á heimili sínu fimmtudaginn 13. ágúst, 85 ára að aldri, eftir stutt en erfið veikindi. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Bogi fæddist á Siglufirði 24. nóvember 1940. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1968 og hóf starfsferil sinn hjá sýslumanni og bæjarfógeta á Akureyri. Hann varð sýslumaður í Suður-Múlasýslu og bæjarfógeti...
MinningWilhelm Wessman er fallinn frá Wilhelm Wessman, frumkvöðull á sviði íslensks hótel- og veitingareksturs, lést á Landspítalanum mánudaginn 3. ágúst. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Wilhelm fæddist á Höfn í Hornafirði 2. október 1942, sonur hjónanna Elofs Wessman klæðskerameistara og Dagnýjar Wessman húsmóður. Wilhelm starfaði á Hótel Sögu frá 1967 og gegndi þar fjölbreyttum stjórnunarstörfum í mörg ár. Árið 1989 tók hann við sem hótelstjóri...
MinningÓfeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson er látinn Ófeigur Sigurpáll Hólmar Jóhannesson rafvirkjameistari lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 21. júlí síðastliðinn. Hann fæddist á Siglufirði 26. júlí 1940. Greint er frá andláti hans á Akureyri.net. Ófeigur kvæntist Steinunni Helgu Sigvaldadóttur árið 1964 og eignuðust þau þrjú börn, Jóhannes Björn, Helga Hólmar og Heiðbjörtu. Ófeigur lærði rafvirkjun og varð síðar rafvirkjameistari. Hann starfaði meðal annars hjá Kísiliðjunni í Mývatnssveit...
MinningJón Gunnlaugur Sigurjónsson er fallinn frá Jón Gunnlaugur Sigurjónsson vélfræðingur lést í Glerárdal 16. júlí síðastliðinn. Hann fæddist á Akureyri 4. desember 1965. Akureyri.net greindir frá andláti hans Jón, sem jafnan var kallaður Gulli, ólst upp á Akureyri og stundaði nám við Verkmenntaskólann á Akureyri áður en hann lauk námi í vélfræði frá Vélskóla Íslands. Gulli var einn stofnenda Kælismiðjunnar Frost og starfaði þar allt til...
MinningHeimir Hannesson látinn Heimir Hannesson, lögfræðingur, fyrrverandi formaður Ferðamálaráðs Íslands og einn af stofnendum tímaritsins Iceland Review, lést á hjúkrunarheimilinu Ísafold í Garðabæ 30. júlí, 90 ára að aldri, að því er fram kemur í frétt mbl.is. Heimir fæddist á Akureyri 10. júlí 1936. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1963 og starfaði samhliða námi sem blaðamaður á Tímanum og útvarpsmaður. Árið...
MinningEinar Sindrason er fallinn frá Einar Sindrason háls-, nef- og eyrnalæknir er látinn, 84 ára að aldri en hann lést á líknardeild Landspítalans 29. júlí síðastliðinn, samkvæmt frétt mbl.is. Hann fæddist í Reykjavík 24. mars 1942 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1962. Einar útskrifaðist sem læknir frá Háskóla Íslands árið 1969 og starfaði fyrst sem héraðslæknir á Hvammstanga áður en hann hélt...
MinningGunnar Þórðarson látinn Tónlistarmaðurinn og tónskáldið Gunnar Þórðarson er látinn, 81 árs að aldri. RÚV sagði frá andlátinu. Hann var einn áhrifamesti og fjölhæfasti tónlistarmaður landsins og setti djúp spor í íslenska tónlistarsögu. Gunnar fæddist á Hólmavík 4. janúar 1945 en ólst upp í Keflavík. Hann var meðal annars meðlimur í Hljómum, Trúbroti, Ríó Tríó og Lummunum og samdi fjölda laga sem skipa...
MinningSkúli Steinar Pétursson er fallinn frá Skúli Steinar Pétursson, öflugur baráttumaður fyrir réttindum fatlaðs fólks, lést 22. júlí síðastliðinn, 39 ára að aldri, að því er fram kemur í umfjöllun mbl.is. Skúli fæddist 17. október 1986 og ólst upp í Garðabæ. Að loknu námi frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ beitti hann sér fyrir auknum möguleikum fólks með þroskahömlun til háskólanáms. Hann vakti athygli á málinu með greinaskrifum...
MinningDröfn Þórarinsdóttir er látin Dröfn Þórarinsdóttir, húsmóðir og öflugur sjálfboðaliði í starfi Íþróttafélagsins Þórs, lést á heimili sínu á Hlíð 10. júlí síðastliðinn, 77 ára að aldri. Þetta kemur fram í umfjöllun akureyri.net. Dröfn fæddist á Akureyri 17. ágúst 1947 og bjó þar nær alla ævi. Hún vann á yngri árum meðal annars hjá Niðursuðuverksmiðju K. Jónssonar, Heklu og Gefjun en lengst af sinnti...
MinningHalldór Árni Sveinsson látinn Halldór Árni Sveinsson, myndlistarmaður, fjölmiðlamaður og kennari, er látinn, 71 ára að aldri. Sonur hans, Hörður Brynjar Halldórsson, greindi frá andlátinu á Facebook og Vísir sagði frá því fyrst. Halldór Árni var þekktur fyrir óbilandi áhuga sinn á Hafnarfirði og skrásetti mannlíf bæjarins um áratugaskeið með myndavél og hljóðnema. Hann stofnaði meðal annars Útvarp Hafnarfjörð og myndaði fjölmarga menningarviðburði og...
MinningKristófer Þorleifsson geðlæknir er fallinn frá Kristófer Þorleifsson geðlæknir er látinn, 79 ára að aldri. Hann lést 11. júlí síðastliðinn. Mbl.is sagði frá andlátinu. Kristófer fæddist 15. júlí 1946. Hann lauk læknaprófi frá Háskóla Íslands og starfaði fyrst sem heimilis- og héraðslæknir í Ólafsvík. Síðar sérhæfði hann sig í geðlækningum og helgaði þeim starfsferil sinn. Auk læknisstarfa lét Kristófer samfélagsmál sig miklu skipta. Hann sat í...
MinningKristinn V. Jóhannsson er látinn Kristinn V. Jóhannsson, fyrrverandi forseti bæjarstjórnar Neskaupstaðar og stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, er látinn, 91 árs að aldri. Hann lést 3. júlí síðastliðinn. Austurfrétt greindi frá andlátinu. Kristinn fæddist í Neskaupstað árið 1934. Hann starfaði lengst af sem kennari og skólastjóri Iðnskóla Austurlands áður en hann tók við sem framkvæmdastjóri Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað (SÚN), þar sem hann starfaði til ársins 2005....