MinningBragi Hannesson er fallinn frá Bragi Hannesson, fyrrverandi bankastjóri Iðnaðarbanka Íslands og forstjóri Iðnlánasjóðs, lést á Landspítalanum í Fossvogi 1. júlí, 93 ára að aldri, samkvæmt frétt mbl.is. Bragi fæddist í Reykjavík 10. desember 1932. Hann lauk lögfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1958 og starfaði meðal annars sem framkvæmdastjóri Landssambands iðnaðarmanna áður en hann tók við sem bankastjóri Iðnaðarbanka Íslands árið 1963. Hann gegndi því...
MinningEgill minnist Björns sem lést í hitabylgjunni í París „Björn var einn sannasti heimsborgari og menningarmaður sem ég hef kynnst.“
MinningLeikkonan Þrúður Vilhjálmsdóttir látin Leikkonan og flugfreyjan Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin, 53 ára að aldri. Hún lést á líknardeildinni í Kópavogi sunnudaginn 5. júlí eftir erfið veikindi. Vísir greindi frá andlátinu. Þrúður útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1997 og hóf sama ár leikferil sinn á sviði og í kvikmyndum. Hún lék meðal annars í Stikkfrí, 101 Reykjavík, Foreldrum, Djúpinu og Undir halastjörnu, auk sjónvarpsþáttanna...
MinningHallgrímur Jónasson er fallinn frá Hallgrímur Jónasson, fyrrverandi flugstjóri og atvinnuflugmaður, lést á líknardeild Landspítalans 29. júní síðastliðinn. Hann var á 81. aldursári. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Hallgrímur fæddist á Akureyri 9. júlí 1945 og ólst þar upp. Hann lauk atvinnuflugmannsprófi árið 1966 og aflaði sér síðar frekari réttinda í Bandaríkjunum og Danmörku. Á löngum ferli starfaði hann meðal annars hjá Flugsýn, Flugfélagi Íslands,...
MinningBjörn Ólafs er fallinn frá Arkitektinn Björn Ó. Ólafs er látinn, 87 ára að aldri. Hann lést á heimili sínu í París 27. júní síðastliðinn. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Björn fæddist í Reykjavík 9. maí 1939 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1958. Hann nam síðar arkitektúr og skipulagsfræði í París. Að námi loknu kom hann heim og tók þátt í skipulagningu...
MinningSéra Þórir Stephensen er látinn Séra Þórir Stephensen, fyrrverandi dómkirkjuprestur og staðarhaldari í Viðey, er látinn, 94 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Þórir fæddist í Reykjavík 1. ágúst 1931 og lauk guðfræðiprófi frá Háskóla Íslands árið 1954. Sama ár var hann vígður til prests, aðeins 22 ára gamall, og varð yngsti prestur sem vígður hafði verið á Íslandi. Hann hóf prestsþjónustu í...
MinningHalldór Haraldsson er fallinn frá Píanóleikarinn og tónlistarkennarinn Halldór Haraldsson er látinn, 89 ára að aldri. Halldór var einn af áhrifamestu píanókennurum landsins og gegndi um áratugaskeið lykilhlutverki í íslensku tónlistarlífi. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Halldór fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1937. Hann lauk píanónámi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og síðar einleikaraprófi frá Royal Academy of Music í London. Hann kenndi við Tónlistarskólann í...
MinningHjörtur Guðnason er fallinn frá Hjörtur Guðnason, grafískur miðlari og fyrrverandi framkvæmdastjóri Prenttæknistofnunar, lést á líknardeild Landspítalans 10. júní síðastliðinn, á 76. aldursári. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Hjörtur fæddist 16. ágúst 1950 og lauk námi í offsetljósmyndun, litgreiningu og plötugerð frá Iðnskólanum í Reykjavík. Hann starfaði um áratugaskeið við prent- og grafíska miðlun, meðal annars hjá Prentmyndastofunni, Iceland Review og Ísafoldarprentsmiðju. Á árunum 1996...
MinningIngimar Sveinsson er látinn Ingimar Sveinsson, bóndi, kennari og einn af áhrifamestu hestamönnum landsins, lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum í Mosfellsbæ 18. júní síðastliðinn, 98 ára að aldri. Greint er frá andláti hans í Morgunblaðinu. Ingimar fæddist á Egilsstöðum á Fljótsdalshéraði 27. febrúar 1928. Hann lauk búvísindanámi í Bandaríkjunum árið 1952 og starfaði sem bóndi á Egilsstöðum til ársins 1986. Síðar kenndi hann við Landbúnaðarháskólann...
MinningBergur Einarsson er fallinn frá Bergur Einarsson, 55 ára gamall Fáskrúðsfirðingur, lést í umferðarslysi sem varð austan við Vík í Mýrdal á laugardag. Fjölskylda hans staðfestir andlátið í tilkynningu. Viðbragðsaðilar voru kallaðir á vettvang með miklum viðbúnaði, þar á meðal lögregla, slökkvilið, sjúkraflutningamenn og þyrla Landhelgisgæslunnar.