Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Fólk

„Með­höndla full­orðið fólk sem lifir enn eins og það séu börn“

Fólk

Lúxu­sein­býli á Arn­ar­nes­inu komið á sölu fyrir 340 millj­ónir

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Jódís spyr hvar mót­mæl­end­urnir séu nú

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Hörður Torfa kveður Megas

„Frelsið hefur sitt verð“

Hörður Torfa kveður Megas
Megas Hörður minn­ist Megasar Mynd: -

Söngvaskáldið Hörður Torfason minn­ist vinar síns, Magnúsar Þórs Jóns­sonar, Megasar, í áhrifa­mik­illi færslu sem hann birti á Facebook í gær. Þar rifjar hann upp ára­tuga­langa vin­áttu þeirra og segir að þeir hafi báðir þurft að takast á við þá hlið frægð­ar­innar sem fæli í sér höfnun, for­dóma og ein­mana­leika.

Í færslu sinni byrjar Hörður á per­sónu­legum orðum til Megasar.

„Ef allt hefði farið eins og stefnt var að sætum við saman að spjalli nákvæm­lega núna. En þú kvaddir í gær­kvöldi og kemur ekki aftur.“

Hann segir þá hafa verið ferm­ing­ar­bræður, jafn­aldra og vini um ára­tuga­skeið og að þeir hafi deilt reynslu af því að verða áber­andi í sam­fé­lag­inu.

„Við lærðum fljót­lega að frægðin er tví­bent. Hún gat opnað dyr sem áður voru lok­aðar, en hún gat líka gert mann ber­skjald­aðan.“

Hörður segir að þegar fólk verði sýni­legt sé það ekki lengur aðeins dæmt fyrir verk sín heldur einnig fyrir líf sitt, skoð­anir og ákvarð­anir.

„Það var reynsla sem við báðir þurftum að horfast í augu við - hvor með sínum hætti. Enda varð hún upp­spretta nokk­urra góðra sam­tala í gegnum tíð­ina.“

Í færsl­unni rifjar hann upp að þeir hafi báðir ákveðið að standa með sjálfum sér fremur en að fela sig.

„Þegar við ákváðum að fela okkur ekki á bak við upp­gerð­ina, heldur standa með sjálfum okkur og sann­fær­ingu okkar, vissum við að ein­hverjir myndu snúa baki við okkur. En jafn­vel þú gast ekki vitað hversu djúp sú höfnun yrði.“

Hann segir þá hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að auð­veld­ara hefði ef til vill verið að þegja og falla inn í hóp­inn, en það hefði ekki verið heið­ar­legt.

„Frelsið hefur sitt verð. Stundum er það ein­mana­leiki. Stundum missir maður vinnu, vini eða örygg­is­til­finn­ingu. En þegar maður hefur einu sinni ákveðið að lifa í sam­ræmi við eigin sann­fær­ingu verður erfitt að snúa aftur til þess sem maður veit að er ósatt.“

Undir lok færsl­unnar þakkar Hörður vini sínum fyrir sam­fylgd­ina og þau sjón­ar­horn sem hann færði fólki.

„Kæri Magnús Þór, Megas. Takk fyrir sam­fylgd­ina, vin­átt­una, öll sam­tölin og öll þau óvæntu sjón­ar­horn sem þú færðir okkur sem fengum að fylgja þér.“

Að lokum sendir hann fjöl­skyldu og aðstand­endum Megasar inni­legar sam­úð­ar­kveðjur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Geymdi milljón myndir og mynd­skeið af mis­notkun eig­in­kon­unnar

Níu aðrir menn neita sök
Heimur

Banka­eig­andi hand­tek­inn grun­aður um að hafa tekið 430 millj­ónir dala úr hirslum

Innlent

Matthías neit­aði að hafa skallað lög­reglu­mann en búk­mynda­vélin sagði annað

Innlent

Erlendur maður grip­inn við skjala­fölsun við Hvera­gerði

Pólitík

Krafði Þorgerði svara vegna kjarn­orku­um­mæla Heimis Más

Minning

Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Minning

Guðrún Birna Gísla­dóttir er látin

Minning

Björgvin Birg­is­son er fall­inn frá

Minning

Stein­grímur Ingi Björns­son fyrr­ver­andi lands­liðs­maður í knatt­spyrnu lát­inn

Minning

Sig­ur­laug Guð­munds­dóttir Rósinkranz er fallin frá