MinningBanaslys austan við Vík í Mýrdal Ökumaður bifhjóls lést í alvarlegu umferðarslysi sem varð austan við Vík í Mýrdal síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi varð slysið um klukkan 16 þegar bifhjól og fólksbifreið lentu í árekstri. Ökumaður bifhjólsins hlaut mjög alvarlega áverka og var úrskurðaður látinn á vettvangi. Mikill viðbúnaður var vegna slyssins. Auk lögreglu og tæknideildar lögreglu komu sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun...
MinningJónas Sigurjónsson er fallinn frá Jónas Sigurjónsson, húsgagnasmiður og stofnandi Valsmíði á Akureyri, er látinn, 76 ára að aldri. Greint er frá andláti hans á Akureyri.net. Jónas fæddist í Ólafsfirði 30. júlí 1949. Hann ólst upp í Ólafsfirði og lauk grunnskólaprófi frá Gagnfræðaskóla Ólafsfjarðar áður en hann flutti 16 ára gamall til Akureyrar til að læra húsgagnasmíði. Hann nam iðnina hjá húsgagnaframleiðandanum Valbjörk, lauk bæði...
MinningLátinn eftir umferðarslys við Reykholt Ökumaður sem slasaðist alvarlega í umferðarslysi á Hálsasveitarvegi norðan við Reykholt þann 16. júní síðastliðinn er látinn af völdum áverka sinna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Vesturlandi. Slysið varð þegar tvær fólksbifreiðar, sem ekið var úr gagnstæðum áttum, rákust saman. Viðbragðsaðilar voru kallaðir á vettvang og voru þrír fluttir á bráðamóttöku til aðhlynningar, þar á meðal ökumenn...
MinningÞráinn Eggertsson er látinn Dr. Þráinn Eggertsson hagfræðingur og fyrrverandi prófessor við Háskóla Íslands lést í Reykjavík í gærmorgun, 85 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hans. Þráinn fæddist í Reykjavík 23. apríl 1941. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1961, BA-prófi frá háskólanum í Manchester árið 1964 og doktorsprófi frá Ohio State University árið 1972. Doktorsritgerð hans fjallaði um efnahagsleg...
MinningMargrét Helga Jóhannsdóttir er fallin frá Margrét Helga Jóhannsdóttir leikkona er látin, 86 ára að aldri. Morgunblaðið greinir frá andláti hennar. Margrét Helga fæddist á Brúarlandi í Mosfellssveit 4. maí 1940. Hún lauk námi frá leiklistarskóla Þjóðleikhússins árið 1967 og starfaði þar fyrstu árin áður en hún gekk til liðs við Leikfélag Reykjavíkur árið 1972. Þar varð hún einn af burðarásum leikhússins um áratugaskeið og tók...
MinningÞórdís Kristmundsdóttir er fallin frá Þórdís Kristmundsdóttir, fyrrverandi prófessor í lyfjafræði við Háskóla Íslands, lést fimmtudaginn 11. júní. Greint er frá andláti hennar í Morgunblaðinu. Þórdís fæddist 13. nóvember 1948 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1968. Hún lauk síðar meistaraprófi og doktorsprófi í lyfjafræði frá Háskólanum í Manchester og hóf störf við Háskóla Íslands árið 1979. Árið 1986 var hún skipuð prófessor...
MinningGunnar Örn Rúnarsson er látinn Gunnar Örn Rúnarsson er látinn, 69 ára að aldri. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri 27. maí síðastliðinn. Akureyri.net greindi frá andlátið. Gunnar Örn fæddist á Akureyri 4. júlí 1956 og ólst þar upp. Hann nam skipasmíði við Iðnskólann á Akureyri og starfaði síðar einnig við húsasmíði. Hann vann um árabil sem húsasmiður og verktaki áður en hann tók árið...
MinningMarteinn Helgi er fallinn frá Marteinn Helgi Sigurðsson, doktor í norrænum miðaldafræðum frá Cambridge-háskóla, er látinn, 55 ára að aldri Vísir greinir frá andláti hans. Marteinn var þekktur fræðimaður á sviði miðaldafræða og lagði mikilvægt framlag til rannsókna á íslenskum og norrænum bókmenntum og trúarsögu. Marteinn lauk fyrstu háskólagráðu sinni við Háskóla Íslands þar sem hann stundaði nám í guðfræði og þjóðfræði. Hann hélt síðar...
MinningÞorsteinn Ólafsson er fallinn frá Þorsteinn Ólafsson, efnafræðingur og fyrrverandi landsliðsmarkvörður í knattspyrnu, er látinn, 75 ára að aldri. Hann lést 5. júní síðastliðinn samkvæmt tilkynningu frá aðstandendum. Þorsteinn fæddist í Keflavík 15. mars 1951 og lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972. Hann nam efnafræði við Lundarháskóla í Svíþjóð og útskrifaðist þaðan árið 1977. Hann starfaði meðal annars hjá lyfjafyrirtækinu AB Hässle í...
MinningÞórir Lárusson er látinn Þórir Lárusson rafverktaki lést 31. maí síðastliðinn á 90. aldursári. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Hann fæddist í Reykjavík 7. desember 1936 og starfaði um áratugaskeið við rafiðnaðinn. Þórir lauk sveinsprófi í rafvirkjun árið 1958, öðlaðist meistararéttindi 1968 og stofnaði síðar rafverktakafyrirtækið Rafþór ehf., sem hann rak til ársins 2004. Hann var heiðursfélagi Félags löggiltra rafverktaka. Þórir gegndi jafnframt fjölmörgum...
MinningJón Guðni Pétursson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir í Bolungarvík greina frá því að Jón Guðni Pétursson skipstjóri sé fallinn frá en gera þeir það í færslu á samfélagsmiðlum sem birt var í fyrradag. Þar er hans getið sem kærs félaga, góðs vinar og áhrifamikils manns í samfélaginu. Jón stundaði sjómennsku af miklum krafti frá unga aldri og var um árabil fengsæll skipstjóri. Hann stýrði...
MinningVigfús Kristinn Vigfússon er fallinn frá Vigfús Kristinn Vigfússon, húsasmíðameistari, kaupmaður og einn af athafnamönnum Ólafsvíkur á síðustu öld, er látinn á 102. aldursári. Morgunblaðið greindi frá andláti hans. Vigfús fæddist á Hellissandi 14. desember 1924 og hóf ungur störf við húsasmíðar. Á löngum starfsferli kom hann að uppbyggingu fjölmargra mannvirkja í Ólafsvík og rak meðal annars verslun, smíðaverkstæði og steypustöð. Hann þótti framsýnn frumkvöðull og...