Ökumaður bifhjóls lést í alvarlegu umferðarslysi sem varð austan við Vík í Mýrdal síðdegis í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Suðurlandi varð slysið um klukkan 16 þegar bifhjól og fólksbifreið lentu í árekstri. Ökumaður bifhjólsins hlaut mjög alvarlega áverka og var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Mikill viðbúnaður var vegna slyssins. Auk lögreglu og tæknideildar lögreglu komu sjúkraflutningamenn frá Heilbrigðisstofnun Suðurlands á vettvang ásamt slökkviliði Mýrdalshrepps. Þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig kölluð út til aðstoðar.
Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom á vettvang. Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn málsins.





























Athugasemdir