SlúðurGulli borgarstjóri26. mars 2025 Guðlaugur Þór Þórðarson, eða Gulli borgarstjóri eins og sumir Sjálfstæðismenn eru farnir að kalla hann, er sagður liggja undir feldi. Hann er af mörgum Sjálfstæðismönnum talinn eini raunhæfi kostur flokksins að komast aftur til valda í borginni en ráðherrann fyrrverandi hefur um árabil verið vinsælasti þingmaður flokksins í Reykjavík.Guðlaugur er byrjaður að tjá sig meira og meira um málefni sem...
SlúðurKjósendur Áslaugar25. mars 2025 Það getur verið erfitt að tapa kosningum. Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttur, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefur fengið að kynnast því oftar en flestir innan flokksins en samstarfsmenn hennar hafa ítrekað verið teknir fram yfir hana af flokksmönnum. Það er þó alveg greinilegt að hún á sína dyggu kjósendur en að sögn Áslaugar eru þeir að flýja Reykjavík.Ráðherrann fyrrverandi lét hafa slíkt eftir sér...
SlúðurÓgöngur Arnars24. mars 2025 Það fer ekki milli mála að Arnar Gunnlaugsson er einn besti þjálfari sem hefur þjálfað íslenskt félagslið. Það má hins vegar vera að leikstíll og skipulag Arnars henti illa fyrir landslið ef marka má slöpp töp Íslands gegn Kósovó um helgina. Hjá félagsliðum er hægt að kaupa og selja menn eftir hentisemi og hefur landsliðsmaðurinn fyrrverandi verið naskur að finna...
SlúðurGamaldags greining Snorra23. mars 2025 Það hefur eflaust ekki farið framhjá neinum að Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, fer eigin leiðir í lífinu. Slíkt var augljóst þegar hann ákvað að stofna sinn eigin fjölmiðil eftir að hafa verið fréttamaður í mörg ár hjá stórfyrirtækjum. Greiningar Snorra á ástandinu í samfélaginu hafa oft verið umdeildar en þær tryggðu honum þó sæti hjá Miðflokknum og á endanum á...
SlúðurHátterni Hermanns Nökkva22. mars 2025 Fjölmiðlar á Íslandi hafa lengi verið gagnrýndir fyrir að vera hræddir við að spyrja stjórnmálamenn og aðra viðmælendur um erfiða og krefjandi hluti. Dæmi eru um það að stjórnmálamenn hafi komið með lista af spurningum til fjölmiðlamanna á síðustu öld þegar þeir mættu í viðtal sem viðkomandi mátti spyrja.Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður Morgunblaðsins og framkvæmdastjóri SUS, þorði heldur betur, svo...
SlúðurIngvar úti að aka21. mars 2025 Það er alltof sjaldgæft að ungt fólk í dag hugsi um réttindi þeirra elstu en mikilvægt er að virða þá sem á undan okkur hafa komið. Þrátt fyrir mikilvægi þess þýðir það ekki að gamalt fólk sé fullkomið, ekki frekar en ungt fólk. Með hækkandi aldri geta ýmsir kvillar eða sjúkdómar gert eldra fólki erfitt fyrir sinna hinum og þessum...
SlúðurArfleifð Ásmundar20. mars 2025 Margir innan Framsóknarflokksins höfðu miklar væntingar til Ásmundar Einars Daðasonar þegar gekk til liðs við flokkinn frá Vinstri Grænum. Honum tókst að hrista af sér fréttir þess efnis að hann hafi kastað upp vegna áfengisdrykkju í flugi WOW árið 2015 þó það hafi tekið sinn tíma. Ásmundur hefur ávallt neitað sök að það hafi verið vegna áfengisdrykkju.Það virtist birta aftur...
SlúðurDerringur Þorbjargar19. mars 2025 Í óundirbúnum fyrirspurnatíma á Alþingi í fyrradag spurði Guðrún Hafsteinsdóttir, nýkjörinn formaður Sjálfstæðisflokksins, um fangelsismál á Íslandi en í tíð síðustu ríkisstjórnar var tilkynnt um byggingu á Stóra-Hrauni og var vonast til þess að það yrði klárt í notkun 2028. Eðlilegt verður að teljast að Guðrún spyrjist fyrir um málið þar sem hún var nú dómsmálaráðherra og fangelsið lítið verið...
SlúðurFramtíð Höllu Hrundar18. mars 2025 Eins og allir sem fylgjast með stjórnmálum vita er Framsóknarflokkurinn í miklum vanda. Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður flokksins, rétt skreið inn á Alþingi í síðustu kosningum og er lítil spenna innan flokksins að hann haldi áfram sem formaður. Því miður fyrir flokkinn féllu helstu vonarstjörnur flokksins, þau Lilja Alfreðsdóttir varaformaður og Willum Þór Willumsson, af þingi og ólíklegt að næsti...
SlúðurSkrifstofustjórinn Stefán17. mars 2025 Nú hefur embætti skrifstofustjóra Alþingis loksins verið auglýst en Ragna Árnadóttir lætur af störfum þann 1. ágúst næstkomandi og mun hún taka við starfi forstjóra Landsnets. Ragna tók við embættinu árið 2019 og hefur sinnt því vel að mati margra.Það verður áhugavert að sjá hver verður næst skipaður í embættið en klárt mál er að um risastórt og virðingavert starf...
SlúðurÓsáttur Gísli Marteinn16. mars 2025 Það er alveg sama hvað Reykjavíkurborg gerir, alltaf skal einhver kvarta yfir því. Árum saman hefur verið kvartað sárlega yfir því að ekki séu byggðar nógu margar íbúðir á höfuðborgarsvæðinu.Síðasta sumar tilkynnti borgin að byggja ætti tæplega 500 íbúðir í Grafarvogi. Við tók kvart og kvein hjá íbúum hverfisins sem sáu ekki skóginn fyrir trjánum. Því miður hlustuðu dauðhræddir stjórnmálaleiðtogar...
SlúðurYfirsjón Eyþórs15. mars 2025 Umboðsmaðurinn Þorkell Máni Pétursson er þekktur fyrir að segja skoðun sína hreint út án þess að ritskoða sig að nokkru leyti. Hann lýsti því yfir í fyrradag að verðlaun fyrir tónlist, kvikmyndir og blaðamennsku væru hégóma verðlaun fyrir athyglissjúkt fólk. Hann spurði hvort ekki væri betra að velja kennara eða hjúkrunarfræðing ársins.Undir þetta tók Eyþór Arnalds, tónlistarmaður og fyrrverandi oddviti...