InnlentHvenær sér maður svona mann tvisvar?21. maí 2022 Nóttin var björt og blaut. Eins og ég. Ákvað að fara út og dansa í garðinum mínum. Að sjálfsögðu var ég með lagið You Think You’re a Man með Divine á hæsta styrk í eyrunum og á rípít. Shut the door, take a look around and tell me what you find. Shut the door, take a giant step for you...
InnlentÓður til Einars (Más) og andstaðan í Dvergríkinu4. janúar 2022 Óður til Einars Held einhvern veginn að allir rithöfundar heiti Böðvar Guðmundsson. Dvergríkið Ég mætti andstöðu í Dvergríkinu og fiskar hjóluðu þar um á trampólínum. Á haugunum voru böllin haldin, í gámum merktum Prinsessa. Svo á laugardögum var alltaf gott veður, enda var búið að kjósa um það. Heimilt var að gera styrktaræfingar á mánudögum, en aðrir dagar voru lánaðir....
InnlentHring sól á ströndinni26. desember 2021 Hann steig út úr bílnum og skellti hurðinni harkalega á eftir sér. Blótaði henni í sand og ösku og var við það að vera stjórnlaus. Hún horfði ísköldum augum á hann og hugsaði með sér hverslags hálfviti þetta væri; skapbráður en langt í frá að vera skapstór – það væru nú mestu aumingjarnir. Hann hljóp í átt að sjónum og...
InnlentJólin okkar25. desember 2021 „Skil ekki hvernig fólk tengir rauðan lit við jólin, bara myrkur og kuldi, myrkur,“ muldraði hann fyrir munni sér í strætóskýlinu. Hjúkrunarkona sem var að koma af vakt heyrði hvað hann sagði og sussaði blíðlega á hann. „Er ekki einmitt málið að fá birtu, sterkari liti og meiri hlýju þegar allt þetta myrkur er svo yfirþyrmandi og kuldinn svona mikill?“...
InnlentStelpan með stálaugun15. desember 2021 Ég finn hana leysast upp. Get ekki beðið þangað til hún fer og lætur mig í friði um leið og hún heltekur mig. Stelpan með stálaugun og sál ísbjarnarins segir mér að eitt sinn hafi hún hlustað á See Emily Play þrjátíu sinnum í röð og hvað það sé gott að fá sér í glas á virkum degi á tóman...
InnlentStundum er betra en alltaf11. desember 2021 Hann: Ástin er góð, vináttan betri en kærleikurinn er bestur. Snilligáfa er víða en það er ekki hægt að festa hana við eitthvað eitt, ekki frekar en múrverk. Hún: Alveg eins og gaddavír, þú prjónar ekki mikið úr honum. Hann: Ég skil þig mjög vel, veit þetta er viðkvæmt. Eigum við að mála eldhúsið í sumar? Hún: Það er erfitt....
InnlentÞú veist ekkert hver ég er6. desember 2021 Stundum Alltaf þegar ég fékk tár í augun safnaði ég þeim saman í krukku og geymdi til betri tíma. Svo rétt áður en ég þurfti virkilega á þeim að halda var krukkunni stolið og besti vinur minn skipti um skóla. Hann varð seinna ráðherra og giftist verkfræðing. Þú veist ekkert hver ég er Ég er myndskreytt afurð eftir súdanska töfrakonu...
InnlentSíðdegi3. desember 2021 „Hann var ágætur fyrripart kvöldsins, mun skemmtilegri en hann lítur út fyrir að vera,“ sagði hún og fékk sér smók og hellti smá koníaki í tvö glös, rétti vinkonu sinni annað en bar hitt að vörum sínum. „En eftir nokkur glös breyttist hann mikið, tók að iða í sæti sínu og augun urðu brjálæðislegri og brjálæðislegri með hverjum sopanum.“ Vinkonan...
InnlentTúnfiskurinn kattanna29. nóvember 2021 Stakk af frá sjálfum mér í um það bil tvo klukkutíma í dag því ég var hugsi og áhyggjufullur. Veðrið var ekki gott að flestra mati, kuldi og vindur, en svoleiðis veður elska ég meira en ristað brauð með smjöri, osti og rabarbarasultu. Fljótlega eftir að ég skilaði mér til baka skrapp ég út í búð og keypti tvær dósir...
Innlent2 örsögur28. nóvember 2021 Markaðstorg Kengúrunnar „Kengúra til sölu, kostar eina tölu,“ hrópaði unga stúlkan með ónýtu eldspýturnar á markaðstorgi guðanna. „Farðu heim, unga stúlka,“ hrópaði gamli maðurinn með veðurbarna andlitið, sem alla sína ævi hafði unnið hjá rafveitunni, um leið og hann tók stóran sveig framhjá rithöfundinum sem hafði nýlega bæði sagt skilið við konu sína og bókaforlag sitt. „Já, farðu heim, ha,...
InnlentÉg hef dansað við þig of lengi21. nóvember 2021 „Ég hef dansað við þig of lengi, það er ekkert meira að segja,“ sagði hann þungum rómi, opnaði útidyrahurðina og gekk rösklega frá bænum og í átt að þjóðveginum. Hann hafði vaknað með þessi orð á vörum undanfarna daga en þennan morgun var eins og í þeim væru skýr skilaboð að finna. Þessi vera hans í sveitinni hafði dregist svo...
InnlentTvær örsögur19. nóvember 2021 Eftir brunann Eftir brunann var Sigmar afskræmdur á líkama og sál. Hann gat ekki lengur horft í spegil og vildi helst ekkert gera né segja. Alltaf þegar hann var við að gefast upp og bjóst til að hitta konu sína í himnaríki, hugsaði hann til orða afa síns, Engilberts, sem honum þótti svo vænt um: „Það vilja allir verða gamlir...