Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Fékk upp í kok á kjaftæðinu

Frá barns­aldri kom ekki annað til greina hjá Stein­unni Camillu Stones en að verða for­seti, norn eða lista­kona. „Mér var bent á að ég gæti ekki orðið for­seti fyrr en ég væri orðin 35 ára þannig að ég gaf það upp á bát­inn, ég dunda mér við að vera norn í hjá­verkum og sem betur fer sat ég því uppi með list­ina,“ segir hún og brosir.

Fékk upp í kok á kjaftæðinu

Steinunn segir að tón­list hafi alltaf verið hluti af hennar lífi. „Ég kemst ekki af nema ég sé í ein­hverju tengdu tón­list og listum. Ég var í dansi í 13-14 ár þar sem ég var umkringd tón­list allan dag­inn, ég lærði klass­ískan söng og á gítar og var sjúk í ljóð og góðar bækur og enn skrifa ég mig frá aðstæðum sem ég er ekki sátt við.“ Hún segir að á menta­skóla­ár­unum hafi nán­ast ekk­ert annað komið til greina en að fá að syngja uppi á sviði og hverfa inn í tón­list­ar­heim­inn.

„Ég tók þátt í öllu. Fór í Idol skjálf­andi á bein­unum, var í nem­enda­fé­lag­inu í Verzló, söng í söngvakeppnum og fór í hin og þessi „show“. Ég vildi bara vera í tón­list og ég reyndi að koma mér á fram­færi og verða betri.“

Einn dag seg­ist hún svo hafa rekið augun í aug­lýs­ingu í Verzló þar sem verið var að boða í prufur fyrir sum­ar­starf í tón­list. Prufan reynd­ist vera upp­hafið að hljóm­sveit­inni Nylon. „Þetta varð lengsta sum­ar­starf sem ég hef unnið við,“ segir hún hlæj­andi.

Fékk nóg af kjaftæðinu

Nylon varð strax vin­sæl á Íslandi og í kjöl­farið hófst útrás. Sveitin fór í tón­leika­ferða­lag 2006 um Bretland með þremur mis­mun­andi hljóm­sveitum og kom fram á Wembley Arena sjö sinnum. Um mitt ár 2007 urðu hins vegar breyt­ingar á band­inu þegar með­limum fækk­aði niður í  þrjá.

„Við Alma og Klara breyttum um stefnu, vildum meira og lögð­umst á eitt að gera eðal­popptón­list með frá­bæru fólki og unnum hart að því að koma okkur áfram erlendis. Við fórn­uðum öllu. Það var bara heims­yf­ir­ráð eða dauði. Svo lönd­uðum við plötu­samn­ingi við Hollywood Records eftir röð til­vilj­ana og mikla vinnu, eftir að hafa fengið smá­vegis ógeð á Íslandi og að okkar mati nei­kvæðni gagn­vart popptón­list, gagn­rýni á okkur, DV-kommenta­kerf­inu og bara eftir að hafa fengið upp í kok á kjaftæð­inu. Við vildum bara gera tón­list.“

„Við fórn­uðum öllu. Það var bara heims­yf­ir­ráð eða dauði.“

Eftir enda­lok Nylon fluttu stelp­urnar til Los Angeles árið 2010 og þar varð hljóm­sveitin The Charlies til. Steinunn segir að sá tími hafi meðal ann­ars verið áhuga­verður, erf­iður, lær­dóms­ríkur og mót­andi, en smám saman hafi hugur þeirra farið að leita annað. The Charlies var lögð niður og stúlk­urnar héldu á vit nýrra ævin­týra. Alma og Klara búa enn í Los Angeles þar sem þær starfa við laga­smíðar en Steinunn söðl­aði um og opn­aði, ásamt Soffíu Kristínu Jóns­dóttur, umboðs­skrif­stof­una Iceland Sync árið 2014. Í dag vinna þær með Svölu Björg­vins­dóttur, Auðunni Lúth­ers­syni (AUÐUR), Andra Fannari (AFK13) og fleirum.

Spurð út í starfið segir Steinunn að frá því að hún var krakki hafi hún verið furðu­legur skipu­lags­perri í bland við lista­mann­eskju. „Áður en ég fór út í þetta bentu margir mér á að ég ætti nú „bara“ að vera umboðs­maður, sjá um við­skipta­hlið­ina og koma öðrum áfram. Mér fannst það fárán­legt og skildi ekk­ert hvað fólk var að rugla. Fannst ég vera að bregð­ast söng­konu­draumum mínum þótt þetta væri í raun fyrir löngu farið að toga í mig.“ Það hafi þó auð­veldað henni að breyta um stefnu þegar hún fór að búa til skart­gripi 2012 og setti saman skart­gripalín­una CarmaCamilla.

Steinunn segir starf umboðs­manns ganga út á að koma lista­mönnum áfram og oft sé þetta eins og að vera sál­fræð­ingur, lög­fræð­ingur, þjónn, banka­stjóri, for­eldri, redd­ari, bíl­stjóri, rit­ari, rót­ari og fleira. Blanda sem geri að verkum að stundum viti hún varla hvað hún starfi við en það geri þetta spenn­andi. Óneit­an­lega sé vinnan þó stressandi líka.

„Þannig að ég passa mig að vinna í núvit­und­ar­verk­efnum, til dæmis að CarmaCamilla 2.0 sem ég get dundað mér við í friði. Jafnvægi er lyk­ill­inn að þessu öllu. Ég trúi því svo heitt að ég er með það húð­flúrað á hönd­ina á mér. Án gríns,“ segir hún og hlær.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Brynjar Snær

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu