Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vonbrigði þegar lagið var fjarlægt af plötu Spice Girls

Tón­list­ar­konan og laga­smið­ur­inn Heiðrún Anna Björns­dóttir kom heim á klak­ann til að taka þátt í Söngvakeppni Sjón­varps­ins með lagi sínu Helgi eða Sunday Boy. Nú vinnur hún að því að klára tvær smá­skífur og er auk þess með nýja plötu í smíðum.

Vonbrigði þegar lagið var fjarlægt af plötu Spice Girls

„Í augna­blik­inu er ég að vinna í því að klára tvær smá­skífur. Veit ekki hvora þeirra ég ætla að gefa út fyrst, rólega bíó­mynda­lagið eða danslagið. Stefni alla vega að því að gefa annað þeirra út eftir tvo mán­uði, von­andi bara stenst það,“ segir Heiðrún Anna, sem vinnur nú einnig hörðum höndum að útgáfu nýrrar plötu undir lista­manns­nafn­inu Lúlla sem er gælu­nafn Heiðrúnar innan fjöl­skyld­unnar.

„Þetta er electronic-pop­plata sem hefur verið í vinnslu und­an­farið tvö og hálft ár. Við gáfum út sex lög af plöt­unni í fyrra, nýjasti „sín­gúll­inn“ heitir Nothing Changes. Það er hægt að nálg­ast öll lögin á Spotify. Restin af plöt­unni kemur út þegar við höfum tíma, að öllum lík­indum seinna á árinu.“

Ég var boðuð á fund hjá Simon Fuller eftir að hann i hlust­aði á lögin mín. Hann varð yfir sig hrif­inn af einu þeirra, Angels, og vildi fá að nota það sem end­ur­komu­lag fyrir Spice Girls.

Boðið að vera með á Spice Girls-plötu

Heiðrún hefur búið í Englandi síð­ustu 23 ár og á að baki far­sælan feril í tón­list. Hún var á samn­ingi hjá Uni­ver­sal Publ­is­hing til margra ára og hefur unnið með ýmsum þekktum lista­mönnum, þar á meðal Swedish House Mafia sem gerði remix af lagi hennar Beating of my Heart sem hún gaf út með þáver­andi hljóm­sveit sinni Cicada. Einnig var hún fengin til að semja fyrir Spice Girls þegar sveitin hugði á end­ur­komu fyrir tíu árum. „Ég var boðuð á fund hjá Simon Fuller eftir að hann i hlust­aði á lögin mín. Hann varð yfir sig hrif­inn af einu þeirra, Angels, og vildi fá að nota það sem end­ur­komu­lag fyrir Spice Girls. Þær voru að gefa út „best of“-plötu og þar áttu að vera tvö ný lög. Þær tóku lagið mitt upp og allt var til­búið þegar mér var til­kynnt að gamli pródús­er­inn þeirra fengi mitt pláss, hans lag var allt í einu komið á plöt­una,“ segir hún og við­ur­kennir að það hafi verið hræði­leg von­brigði þegar lagið var fjar­lægt af plöt­unni á síð­ustu stundu.

Semur bara fyrir sjálfa sig

Heiðrún Anna hefur samið fyrir fleiri stóra aðila á ferl­inum og var til að mynda fengin til að semja tón­list fyrir erlenda stór­stjörnu, sem hún vill ekki nefna á nafn, fyrir til­stuðlan bresku útgáf­unnar EMI. EMI var að hennar sögn ánægt með lagið en stór­stjarnan ákvað á end­anum að nota það ekki. „Svona er þetta, maður er svo oft næstum búinn að meika það,“ segir hún og hlær. „Ég er alls ekki bitur eða leið en ég missti samt ein­hvern veg­inn áhug­ann á þessu harki. Var líka komin með stóra fjöl­skyldu og fleira að hugsa um. Þannig að núna, í þessum breytta tón­list­ar­heimi þar sem hver sem er getur gefið út eigið efni, þá sem ég bara fyrir sjálfa mig og það sem ég fíla.“

Svona er þetta, maður er svo oft næstum búinn að meika það.

Horfir meira til Íslands en áður

Eins og fyrr sagði tók Heiðrún Anna þátt í Söngvakeppni Sjón­varps­ins í ár. Hún hafði gaman af og segir að eftir keppn­ina hafi sér fund­ist vera rétti tím­inn til að gefa út nokkur lög úr eigin smiðju, bæði gömul og ný. Eins sé hún farin að horfa meira til Íslands en áður. Hana langi mikið til að fara að gera tón­list með tón­list­ar­fólki hér og styrka tengslin við íslensku sen­una. „Já, ég er alltaf til í sam­starf. Til dæmis gera remix af lög­unum mínum. Það væri mjög gaman,“ segir hún.

Hægt er að lesa lengra við­tal við Heiðrúnu Önnu á albumm.is

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu