Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Hafnar verkefnum ef einhver óregla er í spilinu

Tón­list­ar­mað­ur­inn Bjarki Ómarsson, eða Bomarz eins og hann kallar sig, byrj­aði tón­list­ar­fer­il­inn sinn sem trymb­ill og hefur síðan þá komið víða við á ferl­inum. Í dag semur hann tón­list fyrir hina og þessa lista­menn og sam­hliða gefur hann út eigin tón­list. Um þessar mundir eru hann og tón­list­ar­mað­ur­inn Júlí Heiðar að vinna í verk­efni sem nefn­ist Park In Space og þeir félagar voru að senda frá sér plöt­una Dream World.

Hafnar verkefnum ef einhver óregla er í spilinu

„Ég, Júlí og tveir aðrir strákar vorum með smá svona Blink182-virð­ing­ar­vott í upp­sigl­ingu en tókum svo ákvörðun um að semja sjálfir saman nýtt háskól­arokk. Við tókum svo eitt „session“ sem end­aði meira í átt að poppi sem kom líka svona áreynslu­laust hjá okkur og tókum þá ákvörðun að gera meira úr því,“ segir Bjarki um gerð plöt­unnar. Platan, sem mætti lýsa sem sam­blandi af Liverpool-rokki og LA-poppi, inni­heldur fjögur lög. Þrjú þeirra eru samin af Bjarka og það fjórða er ábreiða af lag­inu Lose you to love með söng­kon­unni Selenu Gomez. „Lagið er auð­vitað geggjað,“ segir hann um það síð­ast­nefnda. „Okkur fannst skemmti­leg pæl­ing að gera nýja útgáfu af því.“

Bjarki gefur líka út tón­list undir pródúsenta- og lista­manna­nafn­inu Bomarz og fær þá oft til liðs við sig ýmsa söngv­ara. Sem dæmi hyggst hann gefa út lög í flutn­ingi Chris Medina, Nick Ray og fleiri á næsta ári. Svo hefur hann samið og útsett lög fyrir annað tón­list­ar­fólk. Hvernig kom það til? „Instagram hefur reynst mér vel. Þar deilir fólk á Insta­story því sem það er að gera og sú aðferð hefur reynst mér vel, því fólk hefur haft sam­band eftir að hafa séð Insta­story hjá mér. Þannig fór bolt­inn að rúlla. Ég hef ekki enn borgað krónu í aug­lýs­ingar,“ segir hann og brosir.

„Ef verk­efnin væru öll eins gæti ég allt eins unnið á færi­bandi í nið­ur­suðu­verk­smiðju.“

Talandi um það, hvert er upp­á­halds­sam­starfs­verk­efnið þitt? „Upp­á­halds, úff, það er erfið spurn­ing. Ætli ég segi ekki bara það sem ég er að vinna að hverju sinni. Fjöl­breytnin er það sem gerir þetta skemmti­legt og það vill svo til að það er lit­ríkt og skemmti­legt fólk í þessum bransa. Ef verk­efnin væru öll eins gæti ég allt eins unnið á færi­bandi í nið­ur­suðu­verk­smiðju.“

Þegar kemur að því að skapa list almennt segir Bjarki að honum finn­ist skipta máli að vera með opinn huga og passa að tak­marka sig ekki. „Ég er mjög vinn­uglaður maður og skoða flest verk­efni,“ segir hann, en við­ur­kennir þó að hann hafi alveg þurft að hafna verk­efnum. „Sér­stak­lega ef ein­hver óregla er í spil­inu.“

Hvert er svo stefnan sett? „Ég er voða glaður að fá að vinna við það sem ég hef gaman af og það væri auð­vitað ósk­andi að það gengi bara vel áfram. Svo langar mig svo­lítið að búa mér til gott „porta­ble setup“,“ heldur hann áfram, „og fara að ferð­ast og prodúsera meira erlendis.“

Facebook-síða Bomarz.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu