Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

„Bjóst ekki við svona miklu áhorfi“

Nína Dagbjört hefur komið víða við og tekið þátt í hinum og þessum söngvakeppnum og sýn­ingum. Nú var hún að senda frá sér sitt fyrsta lag, Prove it, ásamt Javi Valiño og ThomDary. Einnig kom út mynd­band við lagið sem hefur fengið tölu­verða mikla athygli, eða yfir 212.000 spil­anir á YouTube.

„Bjóst ekki við svona miklu áhorfi“
||||

„Ég er alveg him­in­lif­andi yfir því að hafa fengið svona mörg áhorf á þetta stuttum tíma, en Javi hefur verið dug­legur að aug­lýsa lagið og mynd­bandið úti á Spáni og í Ameríku. Ég bjóst ekki við svona miklu áhorfi en það hafði fengið æðis­leg við­brögð og stuðn­ing frá svo mörgum sem hafa hlustað á lagið og séð mynd­bandið. Upp­tök­urnar á lag­inu tóku heilan dag í sal sem Sena á og við vorum með geggjað mynda­tökuteymi. Javi þekkir svo marga sem hann gat fengið til liðs við sig,“ segir hún.

Mikil vinna og metn­aður var lagður í gerð mynd­bands­ins. „Við höfðum einnig sam­band við vini okkar úr dans­heim­inum og end­uðum með um 20-30 dans­ara sem stóðu sig ótrú­lega vel í tök­unum. Við erum þeim alveg ótrú­lega þakk­lát.“

Javi samdi dans­inn, leik­stýrði allri mynd­bands­gerð­inni og segir Nína að þetta hafi verið ein­fald­lega geggjuð upp­lifun. „Það var svo ótrú­leg orka í öllum sem tóku þátt í mynd­band­inu og ég hefði ekki getað óskað mér að hafa betra „team“,“ segir hún og bætir við að þetta hafi allt gengið upp nákvæm­lega eins og þau vildu hafa það.

Þrátt fyrir að hafa verið að senda frá sér sitt fyrsta lag og mynd­band hefur Nína komið víða við á sínum tón­list­ar­ferli. Hún hefur tekið þátt í ýmsum söngvakeppnum og sýn­ingum. Hún er alin upp við tón­list enda báðir for­eldrar Nínu tón­list­ar­fólk. „For­eldr­arnir mínir eru án efa helsta ástæða þess að ég fór út í tón­list, þau hafa stutt mig og kennt mér allt sem ég kann í fag­inu enda hafa þau verið í tón­list síðan þau voru ung,“ útskýrir hún.

„Þetta hefur verið ómet­an­leg reynsla því tæki­færi fyrir ungt fólk sem er ekki í hljóm­sveit eru fá.“

Nína mun útskrif­ast af við­skipta­braut Fjöl­brauta­skól­ans í Garðabæ í haust en fyrsta árið hennar í fram­hald­s­kóla var hún í Versl­un­ar­skóla Íslands þar sem hún tók meðal ann­ars þátt í Vælinu sem var skemmti­leg reynsla, að hennar sögn.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur Nína Dagbjört komið víða við á tón­list­ar­ferli sínum, tekið þátt í ýmsum söngvakeppnum og sýn­ingum.

„Ári áður hafði ég þó tekið þátt í Jóla­stjörn­unni og kom fram í sýn­ingum Björg­vins Hall­dórs­sonar, Jóla­gestir Björg­vins, og er hægt að segja að bolt­inn hafi farið að rúlla mikið söng­lega séð eftir þá reynslu. Eftir að ég flutti mig yfir í FG, tók ég þátt í söngvakeppn­inni Jarminu og lenti í fyrsta sæti.  Í fram­haldi af því söng ég í þætt­inum Gettu betur fyrir hönd FG og tók síðan þátt í Söngvakeppni fram­halds­skól­anna á Akranesi.“ Hún segir að sjálfs­traust hennar hafi styrkst eftir þessa reynslu og þátt­töku í öllum þessum keppnum. „Þetta hefur verið ómet­an­leg reynsla því tæki­færi fyrir ungt fólk sem er ekki í hljóm­sveit eru fá.“

Javi Valiño hefur búið á Íslandi síðan 2012 og vinnur bæði sem dans­kenn­ari og plötu­snúður. Einnig rekur hann sitt eigið plötu­fyr­ir­tæki, Graffity Soul Records. Spurð hvernig leiðir þeirra lágu saman segir hún að Javi hafi fyrst séð sig í sjón­varp­inu þegar hún tók þátt í söngvakeppni fram­hald­s­kól­anna.

„Hann hafði sam­band við mig og spurði hvort ég hefði áhuga á að vinna með sér. Þá hafði ég aldrei gefið út lag áður en þetta er fyrsta frum­samda lagið sem ég tek þátt í að vinna,“ segir hún. „Javi er rosa­lega skemmti­legur karakter og orku­mik­ill enda hefur hann verið að plötu­snúð­ast og dansa allt sitt líf. Hann kynnti mig fyrir latin-popp­músik sem er skemmti­leg og lif­andi tón­list. Ég skrif­aði enska text­ann, og Thomdary skrif­aði spænska rapptext­ann. Thomdary býr einnig hér á Íslandi og þeir Javi hafa stundum unnið saman.“

Sam­starfið við Javi mun svo halda áfram og von er á fleiri lögum. „Vonandi getum við kýlt á nýtt lag fyrir jól,“ segir hún spennt, en mark­miðið er að semja og gefa út eigin tón­list og gera söng­inn að stærri part af lífi hennar. „Ég hef áhuga á alls konar tón­list og hef gaman að því að syngja mis­mun­andi tón­list, þannig ég ein­blíni ekki bara á latin-popp. Ég er með marga drauma og ýmis plön en eftir útskrift stefni ég á að sækja um í Tón­list­ar­skóla FÍH. Ég er bara rétt að byrja í tón­list­inni og þið megið búast við fleiri lögum frá mér á næst­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu