Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Uppgjör við unglingsárin

Uppgjör við unglingsárin

Elín Sif Hall­dórs­dóttir, eða Elín Hall eins og hún kallar sig, hlaut lof gagn­rýnenda fyrir leik sinn í kvik­mynd­inni Lof mér að falla. Elín stundar nú nám í leik­list við Lista­há­skóla Íslands og semur tón­list með­fram námi. Nýverið sendi hún frá sér nýtt lag, Augun mín, sem fjallar um ást­ina og verður að finna á vænt­an­legri plötu hennar, Með öðrum orðum.

„Ég var við það að henda þessu lagi þegar bandið mitt kom með þá hug­mynd að gíra það upp og við það breytt­ist það og varð að algjöru stuð­lagi. Magnús Jóhann píanó­leik­ari var svo að spila yfir það og á einni tök­unni hélt hann áfram að spila eftir að lagið klárað­ist þannig að úr varð fal­legur útgangur, sem und­ir­strikar vel sorg­ina sem kraumar undir niðri,“ lýsir Elín en umrætt lag, Augun mín, fjallar að hennar sögn um hið sígilda „haltu mér – slepptu mér“ sam­band.

Lagið verður að finna á fyrstu sóló­plötu Elínar, Með öðrum orðum, sem hún er leggja loka­hönd á um þessar mundir og er vænt­an­leg í júní. „Ég hef verið að semja þessi lög síðan ég var fimmtán ára, með gít­ar­inn minn uppi í rúmi heima. Platan end­ur­speglar þann tíma ágæt­lega því hún fjallar fram­hald­s­kóla­árin; ást­ina, vini og sam­band mitt við sjálfa mig á mót­andi tímum,“ segir hún og kveðst hafa lagt sig fram um semja ein­læg og heið­ar­leg lög í mínimal­ískum útsetn­ingum.

Platan mun inni­halda tíu lög sem eru öll sungin á íslensku. Elín hefur þegar sent frá sér þrjú lög af plöt­unni og stefnir á að senda síð­asta „sín­gúl­inn“ út í lok mán­aðar með tón­list­ar­mynd­bandi.

Lof mér að falla hafði mikil áhrif

Eins og áður sagði lék Elín í kvik­mynd­inni Lof mér að falla og fór með eitt af aðal­hlut­verk­unum. Hún segir það hafa verið mjög krefj­andi og lær­dóms­ríkt verk­efni sem hún sé þakk­lát fyrir í dag. „Það var mikil ábyrgð fólgin í því að fá að vera með í að segja svona sögu og myndin kenndi mér hvað það er mik­il­vægt að nota list­ina til þess að spyrja spurn­inga og skapa umræðu,“ segir hún. „Hún tók alveg yfir líf mitt á þessum tíma og ég er enn að átta mig á því hversu mikil áhrif þetta hafði á mig. Ég held að það hafi til dæmis átt stóran þátt í því að ég er í leik­list­ar­námi í dag.“

„Hún tók alveg yfir líf mitt á þessum tíma og ég er enn að átta mig á því hversu mikil áhrif þetta hafði á mig.“

Spurð hvort heilli meira, tón­listin eða leik­listin segir hún að í augna­blik­inu finnst sér betra að tjá sig í gegnum tón­list­ina. „Ég á auð­veld­ara með að eiga frum­kvæði í gegnum þann miðil. Annars er leik­listin stór hluti af mér og núna er ég að kynn­ast henni betur og bæta mig með nám­inu.“

Með nýtt efni í vinnslu

Og hvað er svo fram undan. „Eins vænt og mér þykir um plöt­una mína sem er núna að koma út þá er hún búin að vera í vinnslu í sex ár. Þar af leið­andi er ég ótrú­lega spennt að halda áfram að gefa út tón­list sem er nýrri á nál­inni,“ segir hún glað­lega og bætir við að hún sé með margt í vinnslu sem hún hlakkar til að koma frá sér.

Texti / Sigrún Guðjohn­sen
Mynd / Gunnlöð Jóna

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu