Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Rétt slapp inn áður en landamærunum var lokað

Rétt slapp inn áður en landamærunum var lokað

Jófríður Áka­dóttir, einnig þekkt sem JFDR, sendi nýverið frá sér plöt­una New Dreams sem hún segir vera tölu­vert frá­brugðna fyrri verkum sínum. Albumm tók tón­list­ar­kon­una tali, fékk að for­vitn­ast um plöt­una, fer­il­inn og búflutn­ing til Ástralíu, sem byrj­aði heldur betur með látum.

„Tón­leika­ferða­lögum hefur verið frestað til hausts­ins þannig að ég nýti bara tím­ann í að vera skap­andi á meðan maður getur ekki ferð­ast neitt,“ lýsir Jófríður, sem er nú stödd hjá kærasta sínum í Ástralíu og við­ur­kennir að hún hafi rétt náð að kom­ast þangað áður en yfir­völd lok­uðu landa­mær­unum.

„Við erum búin að koma okkur vel fyrir upp í sveit…“

Spurð hvaða áhrif ástandið hafi haft á hana og kærast­ann er hún fljót til svars og segir að far­ald­ur­inn hafi enn sem komið er ekki haft mikil áhrif á líf hennar, ef tón­leika­ferða­lögin eru und­an­skilin. „Við erum búin að koma okkur vel fyrir uppi í sveit, erum með lítið stúdíó og reynum að vera skap­andi á meðan staðan er svona.“

Kannski örlítið þroskaðri

Jófríður hefur verið við­loð­andi tón­list­ar­brans­ann síð­ast­liðin 10 ár, frá því hún stofn­aði hljóm­sveit­ina Pascal Pinon ásamt Ásthildi systur sinni og vin­konum þeirra. Upp úr því spratt sveitin Samaris og nýverið sendi Jófríður svo frá sér sína aðra sóló­plötu, New Dreams. Beðin um að lýsa tón­list­inni segir hún að um sé að ræða „ambient avant gar­den pop“.

„Í JFDR er ég að vinna með folk elem­ent, eins og í Pascal Pinon, en líka með elektróník, eins og í Samaris, og þá kannski helst ambí­ent áferða­kennda elektróník frekar en dans­tón­list. Ég er alltaf til­rauna­kennd í tón­list­inni og melódísk líka og legg mikla áherslu á text­ana.“

Hún segir plöt­una hafa verið lengi í vinnslu. Sum lögin séu samin áður en fyrri sóló­platan, Brazil, kom út árið 2016 og svo hafi platan verið tekin upp í Brooklyn árið 2017 og mixuð í stúd­íói Alberts Finn­boga­sonar í Iðnó á Íslandi árið 2018, með aðstoð tón­list­ar­manns­ins og pródúsents­ins Paul Corley.

Spurð að hvaða leyti New Dreams sé frá­brugðin Brazil svarar Jófríður því til að í þetta sinn hafi hún meiri stjórn á hljóð­vinnsl­unni og útsetn­ing­unum. „Svo eru söng­ur­inn og lögin kannski smá­vegis þroskaðri en áður.“

Hola í jörðinni og enginn klósettpappír

Eins og áður kom fram er Jófríður nú stödd í Ástralíu, þar sem hún býr með kærasta sínum, en óhætt er að segja að hún sé sann­kall­aður heims­hornaflakk­ari. Fyrir utan að búa í Ástralíu og að hafa búið í Brooklyn í ár ráku hún og Ást­hildur systir hennar lengi plötu­út­gáfu­fyr­ir­tæki í Berlín og spil­uðu mikið erlendis eftir að þær stofn­uðu sveit­ina Samaris árið 2011. „Samaris túraði mest í Evrópu og mikið í Bret­landi, rétt eins og Pascal Pinon gerði og ég hef gert síðan,“ lýsir hún, „þó að við höfum líka farið til Ameríku, Asíu og Ástralíu.“

Af þessu löndum og heims­álfum sem þú nefnir, hvar hefur þér fund­ist skemmti­leg­ast að koma fram? „Það er alltaf gaman að fara til Asíu. Ég hef oft­ast ferð­ast til Japans og Kína og þó að það sé margt svipað með þessum löndum þá er stór­kost­legur munur á þeim,“ segir hún og nefnir sem dæmi að það fyrsta sem hún hafi veitt athygli þar séu kló­settin. „Í Japan liggur við að maður þurfi hand­bók til að geta sturtað niður á meðan í Kína tók á móti manni hola í jörð­inni og eng­inn kló­sett­pappír,“ segir hún og hlær við til­hugs­un­ina.

Svona í lokin, áttu ein­hverja skemmti­lega ferða­sögu sem þú vilt deila? „Ég á margar stór­kost­legar sögur, sér­stak­lega með hljóm­sveit­inni Samaris sem voru frá­bærir ferða­fé­lagar, en ekk­ert sem ég ætla að láta hafa eftir mér hér.“

Texti / Sigrún Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu