Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Vinnur með konunni sem uppgötvaði Lady Gaga

Gréta Karen Grét­ars­dóttir hefur haft nóg að gera eftir að hún flutti til Los Angeles en þar hefur hún unnið með stórum nöfnum í tón­listar- og kvik­mynda­geir­anum. Nýlega skrif­aði Gréta undir samn­ing við umboðs­kon­una Wendy Starland sem upp­götv­aði meðal ann­ars Lady Gaga. Albumm hitti á Grétu, sem er nú stödd á Íslandi, og for­vitn­að­ist um fer­il­inn, æsk­una og þessi merku tíma­mót.

Vinnur með konunni sem uppgötvaði Lady Gaga

„Ég hafði þekkt Wendy Starland í smá­tíma í gegnum sam­eig­in­legan vin. Svo í fyrra fórum við að spjalla og ég sagði bara í gríni: Af hverju ert þú ekki bara umboðs­mað­ur­inn minn? og hún sagði: „Til er ég.“ „Við gerðum svo samn­ing sem ég skrif­aði undir í lok síð­asta árs,“ segir Gréta og við­ur­kennir að það sé ekki ama­legt að hafa Wendy Starland sér við hlið, kon­una sem upp­götv­aði Lady Gaga og hjálp­aði henni að skapa ímynd sína.

Umvafin tónlist frá unga aldri

Gréta á ekki langt að sækja hæfi­leik­ana því hún er dóttir tón­list­ar­manns­ins Grétars Örv­ars­sonar,sem er best þekktur sem hljóm­sveit­ar­með­limur Stjórn­ar­innar. „Ég held að pabba hefði lík­leg­ast langað meira til að ég yrði lög­fræð­ingur eða læknir. Í dag skil ég það betur, enda getur tón­list­ar­heim­ur­inn oft verið skrít­inn og erf­iður,“ segir hún en tekur fram að for­eldrar hennar hafi þó ævin­lega stutt hana í því sem hún hefur tekið sér fyrir hendur.

Aðspurð, seg­ist Gréta hafa verið umvafin tón­list frá unga aldri. „Ég ólst upp hjá móður minni fyrstu fjórtán árin. Hún söng mikið á heim­il­inu, enda hafði hún ætlað að fara í óperu­nám þegar hún var ung­lingur en gat það því miður ekki þar sem faðir hennar lést aðeins 37 ára og í kjöl­farið varð hún að hjálpa móður sinni með heim­ilið og yngri systk­ini sín,“ lýsir hún og seg­ist hafa flust til föður síns þegar hún var fjórtán ára. Tónlist hafi mikið verið spiluð á því heim­ili. „Ég fæ því tón­list­ar­genin bæði frá mömmu og pabba,“ segir hún.

Spurð hver sé fyrsta minn­ing hennar af því að syngja, hugsar Gréta sig aðeins um og seg­ist muna eftir sér að nota sippu – bandið sitt sem míkró­fón þegar hún var fjög­urra ára. „Ég man að ég var með lokað að mér því eng­inn mátti heyra mig syngja.“

„Ég held að pabba hefði lík­leg­ast langað meira til að ég yrði lög­fræð­ingur eða læknir.“

Feimnin rak hana út í nám

Gréta seg­ist alltaf hafa verið feimin að syngja fyrir framan aðra og það hafi eig­in­lega orðið til þess að hún ákvað að fara til Dan­merkur í tón­list­ar­nám við Complete Vocal Institude. „Þetta var fjög­urra mán­aða krefj­andi söng­nám sem hjálp­aði mér mjög mikið að kom­ast úr skel­inni.“ Að námi loknu sótti hún svo um að kom­ast inn í Musicians Institute í Los Angeles. „Mig lang­aði til að geta spilað undir hjá sjálfri mér og læra að semja og taka upp,“ segir hún, en Gréta hefur einnig lokið 4-5 stigum í klass­ísku píanó­n­ámi hér heima. Hún viður – kennir að námið hafi verið mjög erfitt, þyngra en hún bjóst við, og hún hafi stundum verið að því komin að gef­ast upp. „Þetta reynd­ist vera allt frá tímum í kvik­mynda – tón­list upp í það að skrifa nótur fyrir blás­ara­sveit og vera í raun­inni eins­konar tón­list­ar­stjóri. Ég hugs­aði bara: Bíddu, átti ég ekki bara að vera að læra að spila á píanó?“ segir hún og hlær. „En þetta hófst og ég útskrif­að­ist með gráðu í popptón­list­ar­smíðum.“ Að námi loknu hefur Gréta haft í nógu að snú­ast og unnið með ýmsum stórum nöfnum. Þar á meðal The Newton Brothers, sem sömdu meðal ann­ars tón­list­ina við Doctor Sleep, en Gréta hefur sungið inn á margar kvik­myndir og sjón­varps­þætti fyrir þá. Þá söng hún bak­raddir á nýj­ustu plötu stór­sveit­ar­innar BUSH. Hún segir skipta sköpum að hafa góðan umboðs­mann eins og Wendi sér við hlið í þessu öllu. „Já, trú hennar og fal­legu orð hafa reynst mér ómet­an­leg á erf­iðum tímum.“

Ítarlegt við­tal er við Grétu á Albumm.is.

Texti / Sigrún Sía Guðjohn­sen

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu