Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Var í eitruðu ástarsambandi

Var í eitruðu ástarsambandi

Söng­konan Elísabet Ormslev hefur haft í nógu að snú­ast eftir að hún fór að ein­beita sér meira að sól­ó­ferl­inum, því ekki er nóg með að hún taki í annað sinn þátt í Söngvakeppni sjón­varps­ins í ár, með lagið Elta Þig/Haunting, heldur sendi hún nýverið frá sér lagið Sugar sem hefur átt miklum vin­sældum að fagna.

„Ég hef alltaf verið opin fyrir því að taka aftur þátt en þá eig­in­lega með því skil­yrði að ég myndi sjálf semja lagið. Það er nokkuð sem ég hef sagt við sjálfa mig og aðra ef ég hef verið spurð út í þetta og það greini­lega hafði ein­hver áhrif því hér er ég í dag,“ segir Elísabet, þegar hún er spurð af hverju hún hafi ákveðið að taka aftur þátt í Söngvakeppn­inni. Þar fyrir utan kveðst hún vera alin upp af Eurovision-goð­sögn, móður sinni Helgu Möller, og það væri hrein­lega ósatt ef hún segð­ist ekki hafa alltaf viljað keppa fyrir hönd Íslands í Eurovision.

Spurð út í lagið Elta þig/Haunting, sem hún flytur í keppn­inni, seg­ist Elísabet byggja það á eigin reynslu. „Ég var í ást­ar­sam­bandi sem var framan af mjög eitrað,“ segir hún blátt áfram. „Ég lét alltaf undan mann­inum sem ég var með, alveg sama hvað var og gerði allt með hans þarfir í huga. Nokkuð sem breytt­ist ekki fyrr en ég leit­aði mér aðstoðar, fór að vinna í sjálfri mér og varð fyrir vikið bæði sterk­ari og sjálf­stæð­ari og hætti að fylgja honum í einu og öllu.“ Hún segir að lagið snú­ist um þetta og sé mjög vald­efl­andi að hennar mati.

„Ég lét alltaf undan mann­inum sem ég var með, alveg sama hvað var og gerði allt með hans þarfir í huga.“

Hug­mynd­ina að lag­inu segir Elísabet hafa kviknað fyrir tæpum tveimur árum. „Ég var þá byrjuð að vinna mikið með hinum höf­undi lags­ins, Zöe Ruth Erwin,“ rifjar hún upp. „Hún er algjör þús­und­þjala­smiður þegar kemur að laga- og texta­smíð og upp­töku/„production“ og hafði verið að kenna mér á upp­töku­for­ritið Logic Pro X. Hug­myndin að lag­inu kvikn­aði einmitt þegar ég var að vinna í því uppi í rúmi eitt kvöldið og bjó til mitt fyrsta demó. Við Zöe unnum síðan saman að því að klára það,“ lýsir hún.

En hvernig er að taka þátt í batt­erí eins og Söngvakeppn­inni, er þetta ekki fer­lega mikil vinna? „Jú, þetta hafa verið enda­lausar pæl­ingar und­an­farna þrjá mán­uði, plön og æfingar sem hafa farið í að klára lagið og setja saman atriði. Bless­un­ar­lega er þetta allt hrika­lega skemmti­legt,“ segir hún og brosir.

Eins og fyrr segir hefur Elísabet haft í nógu að snú­ast því fyrir utan þátt­töku í Söngvakeppn­inni sendi hún líka nýverið frá sér smell­inn Sugar. Hvernig er eig­in­lega að eiga líka eitt vin­sælasta lagið á land­inu um þessar mundir? „Ég er bara svo þakk­lát og stolt að ég gæti sprungið,“ svarar hún glöð í bragði. „Ég hefði ekki getað ímyndað mér að nokkuð af þessu ætti eftir að verða að veru­leika. Ég hélt í alvör­unni talað fyrir nokkrum árum síðan að ég myndi bara hætta í þessum bransa og fara að vinna á skrif­stofu. Mikið ofboðs­lega er ég fegin að ég gerði það ekki. Og ég er langt frá því að vera hætt,“ segir hún ákveðin og nefnir í því sam­hengi að stefnan sé að gefa út enn meiri tón­list, „vinna með alls konar fólki og syngja mikið út árið“. Svo sé fyr­ir­huguð heims­reisa með sjálfri hljóm­sveit­inni GusGus í sumar. „Já, ég mun reyna að fylla eins vel í skóna hennar Urðar og ég get,“ segir Elísabet og það leynir sér ekki að hún er spennt fyrir því ferða­lagi.

Mynd / Birta Rán

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu