Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Bannað að vera fáviti

Bannað að vera fáviti

Hljóm­sveitin Labrab sem er skipuð þeim Viðari Hákoni Gísla­syni og Ólafi Hjör­dís­ar­syni Jónssyni var að senda frá sér lagið Wichita. Félag­arnir hafa verið við­loð­andi tón­list um ára­bil og stefna á að senda frá sér kassettu í sumar og plötu með haustinu en er illa við að skil­greina tón­list­ina á ákveð­inn hátt.

„Björk sagði einu sinni að það væri fínt að lýsa tón­list­inni sinni sem poppi, þá yrði eng­inn hræddur. Popp er auð­vitað víð­asta skil­grein­ing á tón­list sem til er þannig að við stimplum þetta rugl í okkur klár­lega sem popp,“ útskýrir Viðar, þegar hann er spurður hvernig þeir skil­greini tón­list sína. Hann segir að sveitin taki hins vegar hvorki mið af tón­list­ar­stefnum né mark­hópum. Slíkur hugs­un­ar­háttur sé heft­andi. Engar reglur gildi í tón­list. „Fyrir utan kannski að maður má helst ekki vera fáviti við vini sína, það er góð regla,“ segir hann og kímir.

Óhætt er að segja að Viðar og Ólafur séu engir nýgræð­ingar í tón­list enda hafa þeir báðir komið víða við á ferl­inum. „Við höfum spilað saman í nokkrum sveitum alveg síðan árið sautján­hund­ruð og súr­kál; fyrst í skóla­hljóm­sveit í Haga­skóla og síðan í Púff og Kvartett Ó.Jónsson & Grjóni. Það var reyndar æði, því þá bjuggum við til okkar fyrsta hljóð­ver og tókum upp plötu á átta rása seg­ul­bands­tæki, en planið er einmitt að end­ur­út­gefa gamla 7” bleika vín­yl­plötu sem upp­götv­að­ist í kössum í geymslu um dag­inn,“ segir Viðar og brosir.

„Við höfum spilað saman í nokkrum sveitum alveg síðan árið sautján­hund­ruð og súr­kál.“

Síðan skildu leiðir. Ólafur fór í arki­tekta­nám í Danmörku og Viðar tók þátt í stofnun Trabant og spil­aði lengi með þeirri sveit. Þegar hún hætti var hann kom­inn með nóg af brans­anum og flutti til Noregs. Hann segir að þar hafi tón­list­ar­á­hug­inn vaknað að nýju og eftir flutn­ing til Íslands hafi hann hellt sér aftur út í tón­list­ina. Und­an­farin tvö ár hafi þeir Ólafur verið önnum kafnir við að semja nýtt efni. „Þegar við hitt­umst fæð­ist oftar en ekki nýtt lag, eða jafn­vel fleiri,“ segir hann. „Við látum hlut­ina bara ger­ast og gerum ekki einu sinni kröfu um að allar hug­myndir þurfi að virka. Búum bara til enda­laust af efni og hendum því inn á sam­eig­in­legt ský. Nú fer einmitt að koma að því að velja úr haugnum, full­vinna það og gefa út.“

Fyrir skemmstu sendu félag­arnir frá sér nýtt lag, Wichita, og í sumar er von á fjög­urra laga kassettu með kóða, sem gerir fólki kleift að nálg­ast tón­list­ina raf­rænt, og í haust ætla þeir að gefa út plötu. „Reyndar ættum við að geta gefið út þrjár til fimm plötur með öllum þessum hug­myndum,“ segir Viðar, „en byrjum bara á kassett­unni.“

Af hverju kassetta? „Til­fin­ingin við að gefa út efni á föstu formi er bara allt öðru­vísi en að gefa út efni raf­rænt, manni finnst það áþreif­an­legra,“ svarar hann. „Þar að auki eru kassettur og vín­yl­plötur fal­legir gripir.“

Spurður hvað sé fram undan segir Viðar þá félaga vera að velta fyrir sér að halda fámenna og skemmti­lega tón­leika í sumar. „Við Óli og pabbi hans smíð­uðum áhorf­enda­pall í garð­inum hjá 12 Tónum í fyrra. Það væri virki­lega vel til fundið að halda þar gott kassettu­út­gáfugigg í sumar. Helst með grilli og bingói og drullu­mörgu skemmti­legu fólki“.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu