Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sólborg sýnir sínar viðkvæmustu hliðar

Sólborg sýnir sínar viðkvæmustu hliðar

Tón­list­ar­konan Sólborg Guð­brands­dóttir, eða SUNCITY, var að senda frá sér nýtt lag, Naked. Lagið er samið af Ölmu Goodman, Klöru Elias, Glashaus bræðrum og Jóhann­esi Ágústi. Albumm náði tali af Sólborgu og fékk að for­vitn­ast um fer­il­inn, tón­list­ina, draumana og nýlega und­ir­rit­aðan samn­ing við banda­rískan tón­list­arrisa.

Blaða­maður Albumm byrjar á að spyrja út í nýja lagið og Sólrun brosir og seg­ist vera búin að að vinna í því í ár, það sé því gott að geta loks­ins komið því frá sér. En hvers konar lag er Naked? „Það fjallar um það hvenær maður er raun­veru­lega nak­inn,“ svarar hún, „ekki bara þegar maður klæðir sig úr föt­unum, heldur þegar maður leyfir fólki að sjá sínar við­kvæm­ustu hliðar. Þegar ég er ber­skjölduð og óör­ugg, lítil í mér og hrædd við heim­inn, það er þá sem ég er raun­veru­lega nakin og það eiga ekk­ert allir skilið að fá að kynn­ast þeirri hlið á mér.“

Þetta er í fyrsta sinn sem þú gefur út efni undir nafn­inu SUNCITY. Hvernig kom sú nafn­gift til? „Mig lang­aði að leikar mér aðeins með nafnið mitt og breyta því og SUNCITY er bara bein­þýð­ing á því.“

„Þegar ég er ber­skjölduð og óör­ugg, lítil í mér og hrædd við heim­inn, það er þá sem ég er raun­veru­lega nakin og það eiga ekk­ert allir skilið að fá að kynn­ast þeirri hlið á mér.“

Óhætt er að segja að Sólborg hafi í nógu að snú­ast því fyrir utan tón­list­ina starfar hún sem fyr­ir­les­ari og heldur úti síð­unni Fávitar á Instagram sem er átak gegn staf­rænu og ann­ars konar kyn­ferð­is­of­beldi. Hún vinnur líka að kyn- og kynja­fræðslu­bók sem kemur fyrir næstu jól og fyrir ekki löngu und­ir­rit­aði hún samn­ing Sony Music. Hvernig kom eig­in­lega til að hún und­ir­rit­aði samn­ing við eitt stærsta útgáfu­fyr­ir­tæki heims? „Sony komst yfir demó af tón­list sem ég var að vinna í,“ svarar hún. „Í kjöl­farið vildu þeir gera samn­ing við mig.“

Er plata í vinnslu? „Ég er alla­vega að vinna í nýrri tón­list ásamt frá­bæru tón­list­ar­fólki og hlakka til að gefa hana út og leyfa fólki að heyra. Hvort þetta endar sem plata eða ekki verður bara að koma í ljós,“ segir hún leynd­ar­dóms­full. „Það er alla­vega nóg af efni á leið­inni.“

Spurð hvort stefnan sé sett á útlönd kinkar hún kolli og segir að svo sé. Það hafi alltaf verið lang­tíma mark­mið. „Mig hefur dreymt um það síðan ég var krakki,“ segir hún. „Mig langar líka að vinna við tón­list á Íslandi. Maður tekur bara eitt skref í einu,“ segir hún og brosir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu