Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ragnar gerir það gott: „Þetta er ákveðinn gæðastimpill“

Ragnar gerir það gott: „Þetta er ákveðinn gæðastimpill“
Ragnar Bragason. Mynd / Sigríður Rut Marrow

Gullregn, kvik­mynd Ragnars Braga­sonar, hefur verið valin inn á alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ina í Toronto, Toronto International Film Festival, sem hefst þann 10. Sept­em­ber næst­kom­andi. Ragnar segir það mik­inn heiður að fá mynd­ina tekna til sýn­inga á hátíð­inni, enda sé hún á meðal virt­ustu kvik­mynda­há­tíða í heim­inum.

Séð og heyrt sló á þráð­inn til Ragnars sem er nýkom­inn heim frá Póllandi og þurfti að fara í sótt­kví en segir það hafa verið vel þess virði.

„Þetta er ein af þessum stóru hátíðum, hún er næst­stærst á eftir kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes, þannig að það er klár­lega mik­ill heiður að vera þarna með mynd,“ segir Ragnar þegar hann er spurður hvað honum finn­ist um að kvik­mynd hans Gullregn skuli hafa verið valin inn á hina virtu alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð í Toronto.

Hann bætir við að það sé ekki síður ánægju­legt í ljósi þess að hátíðin hefur verið færð í nýjan bún­ing í ár til að bregð­ast við breyttum aðstæðum vegna COVID-19. „Það verður að segj­ast eins og er að þetta verður svo­lítið spes útgáfa af hátíð­inni út af far­aldr­inum. Hún verður eig­in­lega í nið­ur­soðnu formi. Sýningar að hluta á raf­rænu formi og helm­ingi færri myndir sýndar en vana­lega. Þess vegna er gleði­efni að kom­ast þarna inn með mynd í þessu erf­iða árferði. Þetta er ákveð­inn gæða­stimp­ill fyrir mynd­ina,“ segir hann.

Leiðinlegt að geta ekki verið viðstaddur

Ragnar hefur tvisvar fylgt myndum sínum eftir á alþjóð­legu kvik­mynda­há­tíð­ina í Toronto, fyrst Fíaskó árið 2000 og svo Málmhaus þegar hún var heims­frum­sýnd þar við góðar und­ir­tektir 2013. Hann segir alltaf gaman að mæta á hátíð­ina og því sé svo­lítið leið­in­legt að geta ekki verið við­staddur hana núna. Það sé ein­fald­lega ekki í boði í ár.

„Þetta er ein af þessum stóru hátíðum, hún er næst­stærst á eftir kvik­mynda­há­tíð­inni í Cannes, þannig að það er klár­lega mik­ill heiður að vera þarna með mynd.“

„Já, það er verst að maður skuli ekki kom­ast. En staðan er sú að það verða engir erlendir gestir á hátíð­inni vegna COVID-19, það er bara ekki í boði. Þetta verður meira svona „local“ en „global“, en í gegnum onlæn-útgáfu fær brans­inn, blaða­menn og kvik­mynda­á­huga­fólk aðgang að mynd­inni,“ útskýrir hann.

Furðulegt ár

Ragnar tekur fram að hann hafi þó fullan skiln­ing á stöð­unni. „Þetta er bara ástandið sem ríkir í heim­inum í dag og þetta hefur verið væg­ast sagt sér­stakt ár í brans­anum, ekki síst hvað hátíðir varðar. Undir venju­legum kring­um­stæðum fylgir maður til dæmis mynd stíft eftir í kjöl­far frum­sýn­ingar og ferð­ast með hana á alls konar hátíðir út um allt, kannski ekki eins og oft og maður vill en maður er samt á sífelldum þeyt­ing. En ekki í ár. Hátíðin í Cannes, sem er sú stærsta í heimi, fór til að mynda fram í raf­rænu formi, aðrar hátíðir liggja niðri og allt er lama­sessi.“

Góðar viðtökur í Póllandi

Ragnar kveðst þó von­góður um að það fari smám saman að rofa til í brans­anum. Til marks um það hafi Gullregn verið frum­sýnd í Póllandi í síð­ustu viku og aðstand­endum mynd­ar­innar boðið á sýn­ing­una. „Já, ég var að koma frá Póllandi þar sem myndin fer í almennar sýn­ingar núna á fimmtu­dag í yfir 40 kvik­mynda­húsum í öllum helstu borgum lands­ins. Það var bara verið að opna bíóin þar á nýjan leik eftir að þau höfðu verið lokuð um langt skeið. Ég var sem sagt við­staddur for­sýn­ing­una úti síð­asta fimmtu­dag og beit í það súra epli að þurfa að vera í sex daga sótt­kví eftir heim­komu, en það var alveg þess virði þar sem þetta var skemmti­legt og svo er einn dómur kom­inn og hann er mjög jákvæður. Þetta er auð­vitað íslensk-pólsk fram­leiðsla þannig að mynd­ar­innar er beðið með tals­verðri eft­ir­vænt­ingu þarna úti,“ segir hann.

Kvik­myndin Gullregn byggir á sam­nefndu leik­riti Ragnars, sem hlaut góðar við­tökur og afl­aði honum Grímu­verð­launa fyrir leik­stjórn árið 2013.

Framtíðin óráðin

Fram til þessa hefur kvik­myndin Gullregn ein­ungis verið sýnd í tveimur löndum, í Póllandi og á Íslandi, en hún var frum­sýnd í kvik­mynda­húsum hér í febr­úar á þessu ári og síðan gerð aðgengi­leg á VOD-leigum þar sem hún hefur notið vin­sælda. Spurður hvað taki við eftir kvik­mynda­há­tíð­ina í Toronto, hvort fleiri hátíðir séu fram undan, segir Ragnar að tím­inn verði ein­fald­lega að leiða það í ljós. „Maður verður bara að spila þetta svo­lítið eftir eyr­anu,“ segir hann. „Sem betur fer er einn kostur kvik­mynd­ar­innar sem list­forms sá að hún lifir áfram. Hún finnur sér því alltaf áhorf­endur með sínum leiðum, þótt síðar verði.“

Ýmislegt í bígerð

En eru ein­hver önnur verk­efni á döf­inni hjá leik­stjór­anum? „Ja, ég strengdi þess nú reyndar heit um síð­ustu ára­mót að setja ekki „dea­d­line“ á mig þetta árið, þannig að ég hef bara notið þess að sitja við skriftir í ár og leggja drög að fram­tíð­ar­verk­efnum,“ svarar hann sall­ar­ó­legur. „Það er nefni­lega ýmis­legt í bígerð fyrir næsta ár,“ bætir hann við svo­lítið leynd­ar­dóms­fullur. „En það er of snemmt að ræða það á þessu stigi máls­ins.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu