Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Svali sífellt spurður – þetta er svarið

Útvarps­mað­ur­inn Svali Kalda­lóns hefur unað hag sínum vel á íslandi eftir að hann flutti aftur til lands­ins ásamt fjöl­skyldu sinni vegna COVID-19. Hann fær hins vegar ítrekað spurn­ingar um hvort og hvenær fjöl­skyldan hyggst flytja aftur til Tenerife.

„Já, ég og við ætlum út aftur, en bara get ekki svarað hvenær vegna ástands­ins í ver­öld­inni. Þetta er svarið við spurn­ing­unni sem ég hef fengið aftur og aftur síð­ustu vik­urnar,“ segir útvarps­mað­ur­inn og far­ar­stjór­inn Sigvaldi Kalda­lóns, eða Svali eins og er gjarnan kall­aður í dag­legu tali.

Svali og fjöl­skylda hans bjuggu á Tenerife í rúm tvö ár en fluttu til Íslands í vor þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn brast á. Fjöl­skyldan áform­aði að flytja aftur til Kanarí­eyj­unnar, þar sem Svali og Jóhanna Katrín Guðna­dóttir, eig­in­kona hans reka fyr­ir­tækið Tenerife-ferðir, og var planið að fara út í upp­hafi sept­em­ber. Svali segir að eitt­hvað hikst sé á þeim áformum og ljóst að þau Jóhanna þurfi að setja strák­ana sína í skóla hér heima og taka svo stöð­una þegar líður á vet­ur­inn. Fjöl­skyldan þurfi líka að finna sér íbúð.

Margir uggandi yfir komandi vetri

Svali segir enn­fremur að nóg sé um að vera hjá fjöl­skyld­unni, auk þess sem þau Jóhann séu bæði komin með vinnu. „Í vetur mun Jóhanna vinna áfram í Unique hár og spa, hár­greiðslu­stof­unni þar sem hún hefur lengst af unnið, en ég verð síðan á Bylgj­unni alla föstu­daga milli 13 og 16 með mínum gömlu félögum í Zúúber. Zúúber var morg­un­þáttur sem rúll­aði í 6 ár snemma á þess­ari öld. En það góða við þá vinnu er að ég get auð­veld­lega sent út frá Tenerife þegar ég svo loks kemst þangað,“ segir hann og bætir við að fjöl­skyldan sé einmitt stað­ráðin að fara út aftur og halda rekstri fyr­ir­tæk­is­ins áfram.

„Þetta er svarið við spurn­ing­unni sem ég hef fengið aftur og aftur síð­ustu vik­urnar.“

„Eins og staðan er nú þegar þetta er skrifað, getur í raun­inni eng­inn sagt hvenær allt verður farið í gang þar ytra. Í hrein­skilni sagt, þá held ég að það muni taka langan tíma þangað til þetta verður allt eins og það var. Staðan í dag er þannig að a.m.k 30 % allra veit­inga­staða á eyj­unni munu ekki opna aftur, margar versl­anir farnar á haus­inn og fjöl­mörg afþrey­ingar fyr­ir­tæki standa mjög illa,“ lýsir Svali og segir marga ugg­andi yfir kom­andi vetri sem alla jafna ætti að vera þétt bók­aður því þá sé háanna tími á Tenerife og Gran Canary.

Ný tækifæri

„En þetta er ekki alslæmt og það er margt jákvætt sem á eftir að koma út úr þessu á Tenerife svo að því sé til haga haldið. Það verður gríð­ar­leg hreinsun og ljóst að þau fyr­ir­tæki sem stóðu illa fyrir, verða ekki til staðar þegar um hægist. Þá opn­ast von­andi tæki­færi fyrir nýja aðila sem geta gert hlut­ina enn betur. Ferða­þjón­ustan mun ekki taka gestum sem sjálf­sögðum hlut og margt er það sem mun breyt­ast til hins betra.“

Svali segir að ann­ars sé margt í fæð­ingu hjá Tenerifeferðum en aðeins of snemmt fyrir hann að segja frá því að svo stöddu. „Góðir hlutir ger­ast hægt.  Við horfum nefni­lega björtum augum fram á veg­inn.“

Þetta kemur fram í nýj­ustu færslu Svala á Facebook.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu