Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Helst illa á vinkonum: Jónína Ben elskar bara mikla menn

Helst illa á vinkonum: Jónína Ben elskar bara mikla menn
Mynd / Heiðdís

Jónína Bene­dikts­dóttir, frum­kvöð­ull og íþrótta­fræð­ingur, segir konur oft vera konum mjög erf­iðar. Hún segir það hel­bera lygi að konur séu konum alltaf bestar og seg­ist í raun skulda mjög fáum konum. Jónína elskar hins vegar bara mikla menn, aðrir eiga ekki mögu­leika.

Þetta kemur fram í podcast-spjalli Sölva Tryggva­sonar við Jónínu. Dæmi um mikla menn til­tekur hún Gunnar Þor­steins­son í Kross­inum, Jóhannes heit­inn Jónsson í Bónus og Kára Stef­áns­son, for­stjóra Íslenskrar erfða­grein­ingar. „Ég valdi mér menn eins og Jóhannes í Bónus og Gunnar í Kross­inum. Það er ekki nema von að Óttar Guð­munds­son læknir spyrji mig hvort ekki sé í lagi með mig. Hvers vegna vel ég mér menn með svona stóra áru? Mér finnst bara aðrir menn svo rosa­lega leið­in­legir og eitt­hvað svo litlir. Þegar ég er heima hjá mér nenni ég ekki að vera alvar­leg. Ég er viss um það að það eru fleiri hund­ruð konur sem hafa strokið Kára, Jóhann­esi og Gunnari um rass­inn,“ segir Jónína.

Hjóna­kornin fyrr­ver­andi, Jónína Bene­dikts­dóttir og Gunnar Þor­steins­son. Mynd/ skjá­skot Facebook
„Sko, pen­ingar búa aldrei til hug­myndir.“

Jónína ræðir einnig sam­band sitt við konur í gegnum tíð­ina. Sjálf seg­ist hún aldrei hafa skil­greint sig sem konu. „Ég hef aldrei verið kona og hef aldrei vaknað hugs­andi að ég sé kona. Það er ekki til nafn yfir mig. Allt mitt líf hef ég aldrei þurft að skil­greina kyn mitt, nema þá kannski við sam­farir. Konur eru konum oft erf­iðar. Það er bara hel­ber lýgi að konur séu alltaf konum bestar. Ég reyni að vera það en það tekur oft á. En ég skulda rosa­lega fáum konum, þær eru fáar vin­kon­urnar sem hafa tollað með mér,“ segir Jónína.

Jónína er mik­ill frum­kvöð­ull þegar kemur að heilsu­rækt og heil­brigðum lífstíl. Í upp­hafi seg­ist hún hafa reynt að starfa með Birni Leifs­syni í World Class en það hafi engan veg­inn gengið upp. Henni finnst leitt hversu illa íslenskt sam­fé­lag tekur á móti frum­kvöðlum.„Öfund­sýkin og afbrýði­semin er svo mikil. Sko, pen­ingar búa aldrei til hug­myndir. Þeir geta það ekki og það er ekki til sá banka­stjóri sem vaknar að morgni hugs­andi „mikið væri nú gaman að gera þetta“, segir Jónína og beinir tal­inu einnig að nær­ing­ar­fræð­inni:

„Nær­ing­ar­fræðin er vís­inga­grein sem ég fæ alltaf hlát­ur­skast yfir. Það er eitt í dag og annað á morgun. Þetta er ekki svona rosa­lega flókið. Mat­ar­ræði fólks er komið alveg út á tún. Þú þarf að borða kær­leika og elska mat­inn þinn í stað þess að vera alltaf með sekt­ar­kennd.“

„Ég öfunda fólk sem fer í maníu og held að það sé alveg svaka­lega gott.“

Jónína kemur inn á eigin bar­áttu við and­leg veik­indi og kulnun. Hún segir bar­átt­una við geð­sveiflur hafa veirð mikla en það hafi breyst eftir að áfengið fjar­lægðis for­múl­una. „Ég er alltaf að róast meira og meira. Eftir að mann­eskja hættir að nota áfengi verður lífið grátt og sveifl­urnar hverfa. Ég öfunda fólk sem fer í maníu og held að það sé alveg svaka­lega gott. Vera klifr­andi upp um alla veggi. Maður þarf að borga fyrir sveifl­urnar og það er gert alltof lítið með dýf­urnar, þegar fólk fer niður í sína dýpstu dali. Ég hef verið meira í dalnum heldur en uppi, er kvíð­inn og treysti engum,“ segir Jónína sem lýsir kvíð­anum og kuln­un­inni nánar:

„Allt í einu er eins og það grass­eri eitt­hvað í þér og þú virð­ist vera með sótt­hita. Þú getur varla klætt þig og ert rosa­lega las­inn án þess að nokkur viti hvað er að þér. Það eru leiðir til að fyr­ir­byggja þetta og það er helst þegar mér tekst að vera í rútínu, hreyfa mig rétt, hug­leiða rétt og umgang­ast rétt fólk. Svefninn er martröð fyrir okkur kvíða­sjúk­linga. Við bara sofum ekki. Ég er búin að vera staul­ast með sjálfan mig á veikum mætti og hef verið á hálf­gerðum flótta svo lengi í með­virkni og skömm.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu