Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Veiran vofir yfir öllum – Frægir hérlendis og erlendis með Covid-19

Veiran vofir yfir öllum – Frægir hérlendis og erlendis með Covid-19

Eiríkur Jónsson, fjöl­miðla­maður og fyrrum rit­stjóri Séð og Heyrt, greindi frá því að hann hafi veikst af COVID-19. Sagðist hann hafa vaknað sveittur og kaldur með dynj­andi höf­uð­verk á laug­ar­dag. Þá var hann kom­inn með bull­andi hita og seg­ist ekki hafa getað stigið í fæt­urna.

Mynd / eirik­urjons­son.is

„Vissi strax að þetta væri Covid. Svaf allan laug­ar­dag­inn í renn­andi blautum rúm­fötum og hita­stig lík­am­ans virt­ist sveifl­ast frá frosti í funa. Missti þó aldrei and­ann. Bragg­að­ist um kvöldið og var kom­inn í sýna­töku í hádeg­inu á sunnu­dag þar sem grunur minn var stað­festur,“ segir Eiríkur. „Það skrýtna er að síðan hef ég ekki kennt mér meins. Ekki fundið fyrir neinu og er á fjórða degi í ein­angrun; stál­sleg­inn. Þetta er svona eins og hjá Trump. Hann tók þetta á fjórum dögum og var þá mættur á fjölda­fund.“

Hann segir að engin leið sé að vita með vissu hvaðan smitið kom en sjálfur er hann á því að hann hafi smit­ast í Breið­holts­laug­inni, þar sem hann var á sunnu­dag í síð­ustu viku. Lauginni var lokað þriðju­deg­inum á eftir vegna smits sem þar kom upp.

Eins og frægt er orðið greindust Trump-hjónin, banda­rísku for­seta­hjónin, bæði með Covid-19. Donald Trump for­seti greindi sjálfur frá því á Twitter að hann og Melania, eig­in­kona sín, væru bæði smituð.

Donald Trump og Melania Trump

Þor­grímur Þrá­ins­son, rit­höf­undur og starfs­maður íslenska karla­lands­liðs­ins í knatt­spyrnu, greind­ist með COVID-19. Hann seg­ist ánægður með að hann hafi greinst smit­aður en ekki ein­hver annar, en allt starfs­lið A-lands­liðs­ins er komið í sótt­kví vegna smits­ins.

Þor­grímur seg­ist stál­sleg­inn og ekki finna til neinna ein­kenna, og leggur áherslu á að sé ekki feimn­is­mál að hann sé smit­aður.

Ljósmynd / Lög­reglan

Segir hann að hann hafi mögu­lega smit­ast á tíma­bil­inu mið­viku­dag til föstu­dag í síð­ustu viku, en lands­liðið hefur verið á Hótel Nordica.

„Það eru enda­lausir snertifletir, við vorum ekki einir á hót­el­inu,“ segir Þor­grímur og alltaf sé mögu­leiki á smiti, þrátt fyrir að strangar reglur hafi gilt um leik­menn og starfs­lið.

„Það er alltaf hætta. Kannski var þetta gott á mig. Ég hef alltaf hugsað þannig að þetta gæti ekki komið fyrir mig,“ segir Þor­grímur, sem bíður eftir nið­ur­stöðum úr mótefna­mæl­ingu en mögu­legt sé að um gam­alt smit sé að ræða.

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, veikt­ist af Covid-19. Í mynd­bandi sem hann póstaði á Twitter fyrir stundu greindi Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, frá því að hann hefði greinst með COVID-19.

Boris Johnson for­sæt­is­ráð­herra

„Síðasta sól­ar­hring­inn hef ég fundið fyrir vægum ein­kennum og próf sýndi að ég er með kór­óna­vírus,“ segir for­sæt­is­ráð­herr­ann. „Ég er nú í sjálf­skip­aðri ein­angrun en mun halda áfram að leiða við­brögð rík­is­stjórn­ar­innar í gegnum mynd­bands­fundi á meðan við berj­umst við þennan vírus. Við munum sigr­ast á þessu saman #stay­homes­a­veli­ves “

Ármann Þor­valds­son, aðstoð­ar­for­stjóri Kviku banka, slapp við að fara í covid-ein­angrun þegar fjár­festir­inn Michelle Ballarin margraut sótt­varn­ar­reglum hér­lendis á dög­unum. Hún fór á leyni­fund í bank­anum og hrakti Marínó Erni Tryggva­son for­stjóra í ein­angrun eftir fund­inn. Ármann þurfti ekki í sótt­kví því hann hafði áður smit­ast af Covid-19 og var því með upp­á­skrifað ónæmi frá Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varn­ar­lækni.

Ármann Þor­valds­son. Mynd / Kvika.is

Rögn­valdur Ólafsson aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn veikt­ist nýlega af Covid-19. Til­kynn­ing þess efnis barst frá emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra.

„Covid-19 smit hefur komið upp innan almanna­varna­deildar rík­is­lög­reglu­stjóra. Rögn­valdur Ólafsson, aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónn reynd­ist jákvæður fyrir veirunni og hefur verið í ein­angrun síð­ustu daga. Hann hefur ein­kenni veirunnar og heils­ast vel miðað við aðstæður. Þrír aðrir sam­starfs­menn fóru í sótt­kví eftir að smitið upp­götv­að­ist. Almanna­varna­deild fer ítar­lega eftir reglum og leið­bein­ingum um sótt­varnir og sam­komu­tak­mark­anir og hafa veik­indi Rögn­valds og sótt­kví þriggja starfs­manna ekki haft áhrif á starf­semi almanna­varna­deildar.“

Rögn­valdur Ólafsson. Mynd / Almanna­varnir.is

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírat, greind­ist með COVID. Hann sagði frá því á Facebook-síðu sinni þar sem hann bað þá sem ótt­ast sjúk­dóm­inn að hafa sam­band við sig, sér­stak­lega þá sem hafa ungeng­ist sig í 15 mín­útur eða meira í vik­unni sem hann greind­ist.

„Af þeirri örstuttu reynslu sem ég hef af þessum sjúk­dómi er mér orðið ljóst að fólk verður hratt ótta­slegið og óþreyju­fullt eftir upp­lýs­ingum. Því vil ég minna á að þetta er ferli, og smitrakn­ing tekur ein­hvern tíma. Grein­ingin kom í gær­kvöldi og ég hef gert lítið annað en að tala við fólk, ýmist sér­fræð­inga eða nákomna, sinna smitrakn­ingu og til­flutn­ingi í ein­angrun.
Ef þið hittuð mig á mánu­dag eða þriðju­dag og við umgeng­umst hvort annað í meira en 15 mín­útur, og ekki hefur verið haft sam­band við ykkur frá smitrakn­ingu nú þegar, getið þið haft sam­band við mig og ég svara eftir bestu getu.“

Skemmti­kraft­ur­inn Pétur Jóhann Sig­fús­son veikt­ist af COVID-19. Pétur sagði sjúk­dóm­inn hreinan við­bjóð og hann hafi aldrei verið svona veikur. Hann glímir við vondan höf­uð­verk, bein­verki, vöðva­verki, var á tíma með hita auk þess sem hann hefur misst bragð- og lykt­ar­skyn – en allt eru þetta algeng ein­kenni COVID-19.

„Takk fyrir þetta. Þetta er bara því­líkur heiður,“ sagði Pétur Jóhann í sam­tali við félaga sína í útvarps­þætt­inum FM957Blö og full­yrti þá að hann hefði aldrei orðið svona veikur um ævina. „Fjöl­skyldan mín er búin að vera að koma með mat sem er kom­inn á dag­setn­ingu. Ég borða bara mat sem er nán­ast útrunn­inn. Breytir engu hvað ég borða.“

Pétur Jóhann Sig­fús­son

Tom Hanks og Rita Wil­son voru fyrstu stjörn­urn­ar til þess að stíga fram og viður­kenna að hafa greinst með veiruna. Veir­an á að hafa lagst verr á Wil­son, hún hafi haft hærri hita en Hanks og missti al­gjör­lega bragð- og lykt­ar­skyn. Hanks fann aðeins fyr­ir minni hátt­ar kve­f­ein­kenn­um.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dótt­ir, ann­ar af rit­stjór­um Stund­ar­inn­ar, greind­ist með kór­ónu­veiruna. Í ein­læg­um pistli á Stund­inni lýsti hún því hvernig henni leið.

„Ég er nú á 24. degi í ein­angr­un og hef aldrei verið svona lengi ein, án snert­ing­ar við annað fólk. Stund­um upp­lifi ég heim­ilið eins og fang­elsi.

Ingi­björg Dögg Kjart­ans­dóttir rit­stjóri.

Ég veit samt að það er ósann­gjörn sam­lík­ing, það að vera heima hjá sér í ein­angr­un er ekk­ert í lík­ingu við það að vera fast­ur í fang­elsi. Ég veit það vegna þess að ég hef farið í fang­elsi til að fjalla um aðstæður fanga. Eft­ir fjóra daga í Kvenna­fang­els­inu í Kópa­vogi hellt­ist skyndi­lega yfir mig inni­lok­un­ar­kennd, ég varð að fara strax og kom aldrei aft­ur. Samt hafði ég alltaf farið heim á kvöld­in til að sofa. Á Hólms­heiði fékk ég svip­aða til­finn­ingu, þótt aðbún­aður væri betri var snert­ing­in við starfs­fólkið minni, lítið um lausn­ir og kon­ur sem voru læst­ar inni fóru jafn­vel aft­ur út, beint á göt­una þaðan sem leiðin lá aft­ur í fang­elsi. Í fang­els­um er meðal ann­ars fólk sem hef­ur átt erfitt upp­drátt­ar í upp­eldi, þar er fólk sem hef­ur lent í áföll­um, ein­elti, mis­notk­un og mis­notað fíkni­efni. Fólk sem hef­ur valdið sér og öðrum skaða og þarf að tak­ast á við af­leið­ing­arn­ar af því. Þar er fólk sem er með al­var­leg­an geð­ræn­an vanda og þar er fólk sem miss­ir geð­heils­una vegna þess að það er lokað inni. Far­ald­ur­inn hef­ur aukið enn á ein­angr­un þeirra. Sam­an­b­urður­inn er skakk­ur, ég veit það. Ég er hins veg­ar far­in að skilja bet­ur af hverju ein­angr­un hef­ur svona slæm áhrif á fólk.“

Portú­galski fót­bolta­mað­ur­inn Cristiano Ronaldo, sem leikur með Juventus, er kom­inn í ein­angrun eftir að hafa greinst með COVID-19.

Ronaldo

Samkvæmt til­kynn­ingu er Ronaldo hress og án allra ein­kenna. Hann lék allan leik­inn á móti Frakk­landi í Þjóða­deild­inni á sunnu­dag og einnig í leik móti Spáni í síð­ustu viku. Ronaldo missir af leik í Þjóða­deild­inni gegn Svíþjóð á morgun, og spurn­ing er með leiki helg­ar­innar og næstu viku.

Félagar hans í lands­lið­inu fóru í skimun og var nið­ur­staðan nei­kvæð.

Bryn­hildur Ólafs­dóttir leið­sögu­maður veikt­ist af Covid-19 og ræddi veik­dingin í Síð­deg­is­þætt­inum.

Bryn­hildur Ólafs­dóttir leið­sögu­maður. Mynd / Skjáskot RÚV

Þar sagð­ist hún vera orðin mun betri en líðan hennar sveifl­að­ist svo­lítið upp og niður. „Annan hvern dag fær maður bakslag og hinn dag­inn er maður algjör­lega með þetta,“ sagði hún. „Það eru alveg 10 dagar síðan ég var verst. Þá hélt ég að ég væri að drep­ast.“ Verstu ein­kennin hefðu verið kulda­hrollur og svaka­legir bein­verkir að sögn Bryn­hildar.

Róbert Marshall, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar og eig­in­maður Bryn­hildar, greind­ist einnig með veiruna nokkrum dögum á eftir henni. Einkenni hans voru þó mun væg­ari en hann hafði þá verið nýráð­inn til starfa hjá rík­is­stjórn­inni. Hjónin smit­uð­ust bæði í hóp­ferð göngu­skíða­fólks norður í Mývatns­sveit í mars. Alls greindust 19 af 23 úr hópnum með sjúk­dóm­inn. Sjálfur seg­ist Róbert hafa fengið „lúxus­út­gáfu af þessum veik­indum” en sá þarna hversu gríð­ar­lega smit­andi sjúk­dóm­ur­inn var.

Róbert Marshall, upp­lýs­inga­full­trúi rík­is­stjórn­ar­innar, Mynd Alþilngi

Í apríl greindi Madonna frá því að hún hefði greinst með mót­efni gegn veirunni. Talið er lík­legt að hún hafi veikst af veirunni á tón­leika­ferða­lagi en á þeim tíma hélt hún að um venju­lega flensu að ræða.

Mynd / EPA
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu