Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dularfullt bréf til Bryndísar Schram: „Ungur kennari sem ærslaðist í stelpunum“

Dularfullt bréf til Bryndísar Schram: „Ungur kennari sem ærslaðist í stelpunum“
Jón Baldvin Hanni­bals­son

Hjónin Jón Baldvin Hanni­bals­son og Bryndís Schram standa í hreinni nauð­vörn vegna ásak­ana fjölda kvenna um káf og kyn­ferð­is­lega áreitni ráð­herr­ans fyrr­ver­andi í gegnum tíð­ina. Jón Baldvin hefur þurft að verj­ast dóttur sinni og fjölda ann­ara kvenna. Bryndís hefur staðið sem klettur að baki manni sínum  og full­yrðir að kon­urnar ljúgi öllu upp. Á dög­unum hljóp á snærið hjá Bryndísi þegar fyrr­ver­andi nem­andi við Mennta­skól­ann á Ísafirði sendi henni bréf þar sem hún rekur til baka ásak­andir ann­arra nem­enda um að Jón Baldvin, þáver­andi skóla­meist­ari, hefði hegðað sér mjög ósið­lega í sundi í Bol­ung­ar­vík og víðar um Vest­firði þar sem nem­endur og kenn­arar gerðu sér glaðan dag. Bryndís birtir bréf á bb.is þar sem kona lýsir annarri upp­lifun. „… Kenn­ar­arnir voru margir ungir að árum, sumir hverjir nán­ast jafn­aldrar útskrift­ar­nem­anna. Þarna var til dæmis ungur kenn­ari sem ærsl­að­ist í stelp­unum, kaf­aði undir þær í laug­inni og kitl­aði þær. Einhver hélt því fram að hann hefði gripið í bik­iní­buxur á einni þeirra – ég veit ekki hvað satt er í því …,“ stendur að sögn í dul­ar­fulla bréf­inu. Bréf­rit­ari kveðst hvergi hafa séð neitt ósæmi­legt til skóla­mest­ar­ans í hinnui umtöl­uðu ferð. Vandinn er sá að konan er nafn­laus og nýt­ist því ekki í málsvörn­inni. Magir hafa samúð með Bryndísi. Jón Baldvin stendur í mála­ferlum vegna mál­anna á tvennum víg­stöðvum. Annars vegar er hann að eigin frum­kvæði í mála­ferlum við dóttur sína, Aldísi Bald­vins­dóttur, en hins vegar verst hann ásök­unum um að hafa káfað á Carmen Jóhanns­dóttur og sært blygð­un­ar­kennd hennar á Spáni.

Dul­ar­fulla bréfið í heild sinni:

“Ég man vel eftir dimmi­sjón­inni 1979. Hún hófst með sigl­ingu yfir í Súðavík þar sem Hálfdán sveit­ar­stjóri (fyrr­ver­andi skóla­bróðir í MÍ) tók á móti okkur á bryggj­unni og bauð okkur til kaffi­sam­sætis í mötu­neyti frysti­húss­ins. Síðan var siglt yfir til Bol­ung­ar­víkur þar sem hóp­ur­inn fór í sund áður en haldið var til veislu heima hjá for­eldrum Elíasar Jón­atans­sonar. Í sund­laug­inni var fólk farið að finna á sér og hlaupin ærsl í mann­skap­inn, bæði kenn­ara og nem­endur.

Kenn­ar­arnir voru margir ungir að árum, sumir hverjir nán­ast jafn­aldrar útskrift­ar­nem­anna. Þarna var til dæmis ungur kenn­ari sem ærsl­að­ist í stelp­unum, kaf­aði undir þær í laug­inni og kitl­aði þær. Einhver hélt því fram að hann hefði gripið í bik­iní­buxur á einni þeirra – ég veit ekki hvað satt er í því.

Hins vegar fannst mér vont að sjá, ára­tugum seinna, þegar þessir atburðir voru rifj­aðir upp í blöðum – og þá í tengslum við ásak­anir Aldísar í garð föður síns – að hegðun þessa unga manns skyldi vera yfir­færð á Jón Baldvin.

Það var alls ekki Jón Baldvin sem ham­að­ist í stelp­unum í laug­inni – heldur var það þessi umræddi og þáver­andi kenn­ari sem nú er ráð­settur maður – og engum dettur í hug, held ég, að orða hann við áreitni eða óvið­eig­andi hegðun gagn­vart konum, svo ég viti. Þarna var vissu­lega vín á fólki og eitt og annað sem úrskeiðis fór. Þessi ungi kenn­ari og annar til voru full upp­teknir af náms­meyj­unum.

Ég man þó ekk­ert eftir Jóni Baldvini í því sam­hengi, og ekki heldur eldri kenn­ur­unum, sem voru með í för, að þeir hafi neitt skipt sér af kven­fólk­inu í sund­laug­inni.

Ég get ekki úti­lokað að ein­hver skóla­systk­ini mín hafi upp­lifað eitt­hvað annað en ég eða séð þessi atvik í öðru ljósi.

Ég get bara vottað það sem ég upp­lifði og man.

Svona man ég þetta”.

—————————————-

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Slúður