Davíð Oddsson
, ritstjóri Morgunblaðsins, þykir á köflum vera bæði óvæginn og fyndinn. Þessu hefur
Bjarni Benediktsson
, formaður Sjálfstæðisflokksins, fengið að finna fyrir svo undan svíður. Davíð hefur haft sérstaklega gaman að því að velta Bjarna upp úr ríkidæmi fjölskyldu sinnar, Engeyinganna.„Ættarvitar fara illa í sólgosum og í nálægð segulmagnaðra manna,“ skrifaði Davíð í Reykjavíkurbréfi þegar Bjarni var að hans mati áttavilltur.
Ragnar Önundarson
, fyrrverandi forstjóri rifjaði upp á Facebook alræmt Reykjavíkurbréf Davíðs þar sem hann hraunaði yfir ættarlaukinn Bjarna og undirstrikaði gæfu og hæfni fyrri formanna. Þá fær
Halldór Blöndal
, fyrrverandi ráðherra, á baukinn fyrir að fylgja Bjarna að málum. „Halldór Blöndal gat stundum forðum tíð haft áttavita sem mátti hafa hliðsjón af. En hann ratar illa eftir að notkunin á ættarvitanum óx. Og lendir þá í hverri hafvillunni af annarri …“. Davíð klykkir út með því að ættarvitar hafi aldrei náð nokkurri átt …





















Athugasemdir