Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Innlent

Hörður hót­aði lög­reglu­manni nauðgun og spark­aði í annan

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Kolbeinn Sigþórsson iðraðist og greiddi bætur eftir kynferðisofbeldi – Guðni þaggaði málið niður

Kolbeinn Sigþórsson iðraðist og greiddi bætur eftir kynferðisofbeldi – Guðni þaggaði málið niður

Lands­liðs­mað­ur­inn Kolbeinn Sig­þórs­son beitti Þórhildi Gyðu Arn­ars­dóttur kyn­ferð­is­legu og lík­am­legu ofbeldi haustið 2017 á skemmti­stað í miðbæ Reykja­víkur. Hún og vin­kona hennar, sem lenti í svip­uðu atviki af hendi Kolbeins, kærðu til lög­reglu og málið var til­kynnt til stjórnar KSÍ.

Þetta herma heim­ildir Mannlífs. Kolbeinn greip í klof Þór­hildar og tók hana seinna háls­taki svo hún hlaut af áverka. Hann gekkst við broti sínu, iðr­að­ist, og greiddi henni miska­bætur.

Sjá einnig: Lands­liðið í stormi sam­fé­lags­miðla – Ásakanir um kyn­ferð­is­brot og heim­il­is­of­beldi

Þór­hildur Gyða kom fram í við­tali við RÚV í gær­kvöldi og gagn­rýndi for­mann KSÍ, Guðna Bergsson. Þór­hildur var mjög ósátt við að Guðni sagði í við­tali í Kast­ljósi í fyrra­dag að engin til­kynn­ing um kyn­ferð­is­of­beldi lands­liðs­manna hefði borist inn á hans borð.

Þór­hildur sagði að lands­liðs­mað­ur­inn sem braut á henni kyn­ferð­is­lega hefði við­ur­kennt brot sitt og greitt miska­bætur. Hún nafn­greindi Kolbein ekki.

Þór­hildur sagði um atvikið að „hann grípur sem sagt í klofið á mér. Síðan á sér stað lík­ams­árás aðeins seinna þar sem hann tekur mig háls­taki í stutta stund. Þar sem það skarst annar ein­stak­ling­ur­inn inn í. Ég var með áverka í tvær til þrjár vikur eftir hann. Strax dag­inn eftir fæ ég áverka­vott­orð og fer síðan niður á lög­reglu­stöð og legg fram kæru. Við vorum tvær sem urðum fyrir því sama af hans hálfu þetta umrædda kvöld og við fórum saman að kæra,“ sagði Þór­hildur.

Sjá einnig: Segir tvo þjóð­þekkta Íslend­inga hafa nauðgað sér ítrekað: „Ég skila skömminni, FOKKIÐ YKKUR “

Kolbeinn lék engan lands­leik á árinu 2017, og var fjar­veran skýrð með meiðslum hans. Kolbeinn, sem er einn mesti marka­hrókur lands­liðs­ins frá upp­hafi, hefur vissu­lega glímt mikið við meiðsli allan sinn feril, en hann var hins vegar tek­inn úr hópnum eftir atvikið umrædda, en ein­ungis í stuttan tíma. Síðan var bann­inu aflétt og í raun er það stað­fest­ing á því að umræðan um þöggun innan KSÍ á sér stoð í raun­veru­leik­anum.

Kolbeinn hefur áður kom­ist í hann krapp­ann en fyrir tveimur árum síðan var hann hand­tek­inn á næt­ur­klúbbi í Svíþjóð vegna drykkjuláta, eins og lesa má hér um.

Guðni Bergsson, for­maður Knatt­spyrnu­sam­bands Íslands, sagði ósatt í Kast­ljósi í fyrra­dag, þegar hann full­yrti að engin erindi vegna ofbeldis lands­liðs­manna hefðu borist inn á borð sam­bands­ins. Hann bar í gær­kvöld við mis­skiln­ingi í við­tali við RÚV, sagð­ist hafa haldið að brotið væri ekki kyn­ferð­is­legs eðlis.

KSÍ hefur lítið sem ekk­ert tjáð sig um meint kyn­ferð­is­af­brot og aðrar teg­undir af ofbeldi sem virð­ast því miður loða við „Gull­dreng­ina“ okkar sem komust í loka­keppni EM árið 2016 og í loka­keppni HM tveimur árum síðar.

Sjá einnig: Tengda­faðir Gylfa Þórs knatt­spyrnu­kappa: „Þau eru ekki að skilja“

Allir þekkja til máls Gylfa Sig­urðs­sonar og svo eru uppi háværar raddir um nauðgun sem tveir lands­liðs­menn eiga að hafa gerst sekir um fyrir nokkrum árum. Þá var Ragnar Sig­urðs­son til­kynntur til KSÍ eftir að hann gekk ber­serks­gang á heim­ili sínu.

Í við­tali RÚV við Guðna í kvöld var ekk­ert komið inná um hvaða leik­mann ræðir. Slíkt gerir það að verkum að allir sem léku með lands­lið­inu á sama tíma og ofbeldið átti sér stað liggja undir grun.

Árásin á ungu kon­una kom inn á borð Guðna Th. Jóhann­es­sonar, for­seta Íslands, sem gat að sögn ekki aðhafst beint. Annað mál sem kom til kasta KSÍ var mál Ragnars Sig­urðs­sonar sem sætti yfir­heyrslu eftir að hafa tryllst á heim­ili sínu. Nágranni hans til­kynnti um málið en KSÍ aðhafð­ist ekki. Þriðja málið snýr að meintri nauðgun þar sem tveir lands­liðs­menn eru nefndir til sögu. Ljóst er að staða Guðna Bergs­sonar sem for­manns KSÍ er afar slæm, og allt virð­ist benda til þess að múrar þögg­unar séu að hrynja.

Sjá einnig: Fjöl­skylda og lög­menn umvefja Gylfa

Mannlíf hefur gert ítrek­aðar til­raunir til að ná tali af Kolbeini, án árang­urs. Líka af bróður hans, Andra, sem er umboðs­maður Kolbeins. Hvorugur svar­aði sím­tölum eða smá­skila­boðum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Neyt­endur beðnir um að farga jógúrt frá Örnu

Plastbiti fannst í 200 gramma dós af jógúrt
Innlent

Tíu nýir leitar- og björg­un­ar­kaf­arar útskrif­aðir

Innlent

Rað­kúk­ari Ragnars snéri aftur á Hrekkja­vöku

Innlent

Fertugur maður ákærður fyrir 267 kanna­bis­plöntur í bíl

Innlent

Brynjar ók á bíl og far­þegi þurfti í umfangs­mikla aðgerð

Innlent

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Innlent

Íslenska haustið sýnir klærnar í dag

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Innlent

Rétt­ar­höld yfir Írisi „elti­hrelli“ hefj­ast á mánu­dag

Innlent

Hrekkja­vakan tekur yfir göt­urnar og lög­reglan varar öku­menn við

Innlent

Leigusal­inn kenndi utan­lands­ferð um veggjalús­ina