Vítalía Lazareva
skók samfélagið með því að ljóstra upp um ósæmilegt athæfi og kynferðislegt áreyti klámkarla gagnvart sér og sagði frá sambandi sínu við giftan mann,
Arnar Grant
, í hlaðvarpinu Eigin Konur. Vítalía var í viðtali við Fréttablaðið um helgina þar sem hún lýsti því að hún lokaði sig af eftir að hafa afhjúpað mennina. Meðal þeirra sem Vítalía sagði að hefðiu áreitt sig í heitum potti var
Ari Edwald
sem var látinn fara frá Ísey. Í öðru tilviki ásakaði hún sjónvarpsstjörnuna
Loga Bergmann
um að hafa misboðið sér á hótelherbergi í Borgarfirði. Logi fór í leyfi frá starfi sínu á Morgunblaðinu eftir að hafa lýst yfir sakleysi sínu. Sjálf upplýsti Vítalía í Fréttablaðinu að hún ætlaði að flytja tímabundið, til Napólí á Ítalíu í sumar og starfa þar á veitingastað. Ekkert kom fram í viðtalinu um framvindu mála hennar gagnvart mönnunum fimm …





















Athugasemdir