Hollywood stjarnan Jennifer Lawrence er orðin móðir en eignaðist hún barn á dögunum með eiginmanni sínum, Cooke Maroney.
Greindi TMZ frá því að barn hjónanna væri fætt en lítið hefur sést til óskarsverðlaunaleikkonunnar frá því í lok janúar þegar ættingjar og vinir héldu fyrir hana steypiboð.

Jennifer og Cooke
Ekki er vitað hvort hjónin hafi eignast stúlku eða dreng en hafa þau verið gift frá árinu 2019.
Sagði Jennifer á síðasta ári að hún ætlaði sér að reyna að halda barninu utan við fjölmiðla og vernda einkalíf fjölskyldunnar.































Athugasemdir