Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Pete lét ekki sjá sig í SNL á laugardag: Talið tengjast deilunum við Kanye West

Pete lét ekki sjá sig í SNL á laugardag: Talið tengjast deilunum við Kanye West
Pete Davidson og Kanye West.

Pete Davidson, grínisti, leik­ari og fastur með­limur í skemmti­þætt­inum Saturday Night Live, var fjarri góðu gamni í þætt­inum síð­asta laug­ar­dag, 26. febr­úar. Strax fóru af stað vanga­veltur um að fjar­vera hans hlyti að vera vegna erja hans við rapp­ar­ann Kanye West.

Deil­urnar milli Kanye West og Pete Davidson hafa eflaust ekki farið fram­hjá þeim sem á annað borð fylgj­ast með slúð­ur­miðlum vest­an­hafs – nú, eða Instagram-reikn­ingi West, sem hefur farið mik­inn und­an­farið. Þar hefur hann birt hverja árás­ina á fætur annarri á Pete Davidson, ýmist í formi myndefnis eða færslna um hatur sitt á þeim síð­ar­nefnda.

Davidson er nú í sam­bandi með Kim Kar­dashian, en hjóna­bandi hennar og West lauk snemma á síð­asta ári. West hefur ekki farið leynt með að sam­band þeirra tveggja hafi verið upp­haf þess æsings sem hann hefur við­haft und­an­farið. Hann hefur til að mynda birt skjá­skot af skila­boðum milli hans og Davidson, þar sem Davidson virð­ist reyna að lægja öld­urnar og seg­ist vona að með tím­anum geti þau öll átt góð sam­skipti. Kanye gaf ekki mikið út á það í færsl­unni og bætti um betur með því að full­yrða að Davidson fengi aldrei nokkurn tíma að hitta börn þeirra Kar­dashian.

Fjarvist Davidson úr þætt­inum hefur þó verið skýrð með þeim hætti að hann hafi verið önnum kaf­inn í vinnu við nýj­ustu kvik­mynd­ina sína, The Home. Tíma­setn­ingin sé því hrein til­viljun. Ekki virð­ast þó allir á eitt sáttir við þá skýr­ingu og aðdá­endur kepp­ast við að koma með kenn­ingar sem flestar snúa að deilum mann­anna tveggja.

Mynd sem nýlega náð­ist af Kim Kar­dashian og Pete Davidson.

Kuldi allt frá árinu 2018 – SNL og MAGA-húfan

Þeir West og Davidson hafa þó eldað grátt silfur saman um lengra skeið, allt frá árinu 2018. West varð víst ævar­eiður út í Davidson eftir að sá síð­ar­nefndi kom fram í Saturday Night Live og tal­aði um hegðun West í þætt­inum vik­una á undan, þar sem hann kom fram með MAGA-húfu og hélt ræðu til stuðn­ings Donald Trump. MAGA stendur einmitt fyrir Make America Great Again, sem hefur verið slag­orð Trump frá því í fyrstu kosn­inga­bar­áttu hans áður en hann var kjör­inn for­seti Banda­ríkj­anna.

„Hann byrj­aði á því að segja að fólkið bak­sviðs hefði reynt að þjarma að honum svo hann væri ekki með hana [húf­una]. Hann var með hana alla vik­una. Enginn sagði honum að klæð­ast henni ekki. Ég vildi að ég hefði þjar­mað að þér. Ég vildi að ég hefði bent á að, þú veist, það gæti mis­boðið ein­hverjum, eins og kon­unni þinni eða öllum svörtum mann­eskjum, nokkurn tíma,“ sagði Davidson í þætt­inum og var ómyrkur í máli.

Hann bætti við að Kanye West væri snill­ingur, en að það ein­skorð­að­ist við tón­list. Hann hefði tak­mark­aðan áhuga á að heyra um skoð­anir West á öðru en tón­list­ar­tengdum hlutum. Hann kom einnig inn á geð­ræn vanda­mál West, en hann er greindur með geð­hvarfa­sýki og hefur gefið það opin­ber­lega út að hann neiti að taka inn lyf til þess að hafa stjórn á sjúk­dómnum.

Davidson sagði það frá­leitt að West væri skýlt á bak við veik­indin þegar hann kæmi illa fram. Hann lagði það til að West end­ur­skoð­aði alvar­lega þá ákvörðun að taka ekki inn lyf. Davidson var sjálfur greindur með jað­ar­per­sónu­leika­röskun árið 2017 og hefur talað opin­skátt um sína bar­áttu og það hvernig hann vinnur í að halda jafn­vægi og líða vel.

„Það að vera með geð­röskun er ekki afsökun fyrir því að haga sér eins og fáviti, allt í lagi?“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu