Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Skuggahliðar merkjanna – Seinni hluti

Skuggahliðar merkjanna – Seinni hluti

Eins og flest fólk er hvert og eitt merki stjörnu­spek­innar ýmsum kostum gætt. Að sama skapi eiga þau öll sína galla, jafn­vel skugga­hliðar, sem fólk í þeim merkjum gæti þurft að vinna meira í en öðrum.

Í hinum og þessum spi­ritúal­ism­anum er oft talað um skugga­vinnu, eða „shadow work“, þar sem við­kom­andi skoðar sér­stak­lega og vinnur með eigin skugga­hliðar. Ekki með því að reyna að hrekja þær burt eða fela þær, heldur þvert á móti með því að við­ur­kenna þær, skoða þær, læra að skilja þær og svo vinna með þær. Oft getum við lært margt af þessum hliðum okkar og stundum er okkur hrein­lega lífs­nauð­syn­legt að tjá sumar þeirra, í réttu jafn­vægi.

Skugga­hliðar okkar eru jafn stór partur af okkur eins og þær björtu – enda getur ekk­ert ljós orðið án myrk­urs. Eða, eins og meist­ari Leonard Cohen orti:

„There is a crack, a crack in everyt­hing. That’s how the light get’s in.“

Hér á eftir verður farið yfir nokkrar best þekktu eða mest áber­andi skugga­hliðar hvers stjörnu­merkis fyrir sig. Taki þeir það til sín sem eiga.

Í síð­asta helg­ar­blaði Mannlífs birt­ust skugga­hliðar fyrstu sex stjörnu­merkj­anna í hringnum – frá Hrúti til Meyju. Hér á eftir verður farið yfir seinni helm­ing merkj­anna, frá Vog til Fiska. 

Vog

Óákveðni – Flestar ákvarð­anir, hvort sem þær eru stórar eða smáar, eiga það til að verða vog­inni þrautin þyngri. Það er til dæmis yfir­leitt alveg von­laust að láta þær ákveða hvað á að vera í mat­inn. Stærri ákvarð­anir valda þeim val­kvíða og þær sjá fyrir sér alla mögu­leika og ómögu­leika. Vogir eru samt hreint ekki skoð­ana­lausar – þær láta þig nefni­lega sann­ar­lega heyra það, finn­ist þeim þú hafa valið rangt. Þær þurfa að hafa það í huga, að það að taka ekki ákvörðun er ákvörðun út af fyrir sig.

Fórn­ar­lamb – Vogir eiga auð­velt með að setja sig í fórn­ar­lambs­hlut­verk. Lífið kemur fyrir þær. Í átökum, eins og rifr­ildi við vini eða maka, eru þær fljótar að setja hlut­ina þannig upp að þær séu fórn­ar­lamb í aðstæð­unum og allt sé hinum aðil­anum að kenna; jafn­vel að hinn sé vondur eða grimmur við þær. Þær geta verið dálítið slyngar í þessu, jafn­vel án þess að gera sér grein fyrir því sjálfar.

Ástsýki – Hvort of djúpt sé í árina tekið með því að nefna ást­sýki, er alveg á hreinu að vogir hafa á sér orð­spor fyrir að sækja í sam­bönd og vilja eiga maka. Þeim hugn­ast ein­vera ekki og þær eru ófáar vog­irnar sem stökkva sífellt úr einu sam­band­inu yfir í það næsta.

Sporðdreki

Hefnigirni – Hefndin er sann­ar­lega sæt í huga sporð­drek­ans. Hann trúir á „auga fyrir auga, tönn fyrir tönn“. Sumir sporð­drekar þyrftu að læra þá lexíu að yfir­leitt gefur hefnd þeim ekki mikla gleði þegar allt kemur til alls. Sumir sporð­drekar vita þetta þó, en hafa gaman af því að plana útpælda og ískalda hefnd og tala um hana, þrátt fyrir að þeir fram­kvæmi hana senni­lega ekki. Senni­lega.

Lang­rækni – Þetta er gott fyrir alla nákomna sporð­drekum að vita: Sporð­drekar gleyma engu. Það er ótrú­legt hvað þeir geta haldið dauða­haldi í eitt­hvað sem ein­hver gerði á hlut þeirra ein­hvern tíma. Flestir þeirra eiga ein­hvers konar svartan lista, hvort sem hann er í föstu formi eða í höfð­inu á þeim. Það er erfitt að kom­ast af þeim lista, hafir þú á annað borð ratað þangað.

Stjórn­semi – Sporð­drekar sækja í völd og vilja hafa ákveðna stjórn á aðstæðum. Þeir vilja bæði skrifa og leik­stýra atburða­rásinni. Þeir eiga það til að sýna stjórn­un­ar­hegðun í garð sinna nán­ustu, sem eðli­lega getur fallið í grýttan jarð­veg.

Bogmaður

Flótti – Bogmenn eru sífellt á hlaupum. Hvort sem það eru verk­efni, áhuga­mál eða utan­lands­ferðir, þá eru þeir á ferð og flugi og er oft þvert um geð að nema staðar til þess að fara djúpt í saumana á ein­hverju. Þeir eiga það til dæmis til, að byrja í nýju sam­bandi og stinga svo af til Honulúlú eða ann­ars spenn­andi staðar. Þú færð kannski póst­kort.

Óáreið­an­leiki – Það getur verið dálítið erfitt að treysta á bog­menn. Þeim virð­ist sumum til dæmis lífs­ins ómögu­legt að vera stund­vísir. Klukkan þeirra bara virkar ekki og þannig er það. Þetta er sums staðar í lagi, en getur verið flókið þegar fólk þarf að treysta á bog­mann í mik­il­vægum verk­efnum.

Skapofsi – Já, þótt bog­menn séu gjarnan taldir hress­asta og jákvæð­asta stjörnu­merkið þá eru þeir ansi skap­stórir. Þeir geta orðið ösku­reiðir á ofsa­hraða og sagt ýmis­legt sem þeir ef til vill iðr­ast seinna. Eða ekki, því þeir eiga það líka hrein­lega til að gleyma því sem þeir hafa sagt og skilja svo ekk­ert hvers vegna fólk er súrt.

Steingeit

Stjórn­semi – Stein­geitur vilja hafa stjórn á lífi sínu og kunna best við að hafa eitt­hvert plan í hönd­unum. Þær eiga það þó til að reyna að stjórna öllu og öllum. Málið er ein­fald­lega að þær treysta engum betur en sjálfum sér.

Valda­græðgi – Stein­geitur eru róm­aðar fyrir metn­að­ar­girni sína en sú metn­að­ar­girni getur líka farið út í öfgar og orðið að valda­græðgi. Völd eru alltaf heill­andi í augum stein­geita, á einn eða annan hátt. Þær verða að reyna að láta það ekki stíga sér til höf­uðs, sér í lagi ef þær fá ein­hver völd í hend­urnar.

Kald­lyndi – Þegar stein­geitur verða of upp­teknar af mark­miðum og tapa sér í vinnu geta þær virst kaldar og ekki sýna til­finn­ingum ann­arra mikla til­lits­semi. Stein­geitur eru kald­hæðnar í eðli sínu, en í þessu ástandi verður kald­hæðnin beitt­ari en nokkrum sinni fyrr og stundum notuð ótæpi­lega, jafn­vel gegn þeirra nán­ustu.

Vatnsberi

Skeyt­ing­ar­leysi – Þegar vatns­berar eru á kafi í hugð­ar­efnum sínum er þeim yfir­leitt sama um allt annað. Það er eins og þeir nái að aftengja sig og annað fólk og hlutir hafi hrein­lega ekki áhrif á þá. Þeir halda til í eigin heimi og allt annað verður lít­il­vægt í þeirra augum.

Þrjóska – Eins víð­sýnn og vatns­ber­inn er gjarnan, er alveg merki­legt hvað hann getur verið þrjóskur. Þegar hann hefur myndað sér skoðun eða bitið eitt­hvað í sig er fátt sem fær honum haggað. Hann egnir fólk jafn­vel í rök­ræður og er síðan álíka sveigj­an­legur og múr­steinn.

Sjálfselska – Vatns­berar botna stundum ekk­ert í því, þegar þeir átta sig allt í einu á því að þeir hafa fælt vini, vanda­menn og elsk­huga frá sér. Þegar þeir hafa verk­efni fyrir stafni finnst þeim oft ekk­ert mik­il­væg­ara til. Þeim þykir þá ekki mik­il­vægt að rækta sam­bandið við aðra. Þeir fá ofur­fókus á það sem þeir vilja fyrir sjálfa sig.

Fiskar

Tvö­feldni – Þetta fyr­ir­bæri er flókið í til­felli fiska. Þeir eru í eðli sínu síbreyti­legir og flæða eins og vatnið. Þegar þeir veigra sér of mikið við því að taka afstöðu og koma hreint fram með skoð­anir sínar, geta þeir virst tvö­faldir í roð­inu. Þeir eiga það til að segja eitt í dag og annað á morgun, lofa þessum ein­hverju en hinum öðru og ekk­ert af þessu fer saman.

Við­kvæmni – Fiskar eru afskap­lega til­finn­inga­ríkir. Þeir finna bók­staf­lega fyrir öllu. Stundum finnst þeim eins og sárs­auki heims­ins hvíli á herðum þeirra og þá eiga þeir það til að draga fyrir glugg­ana og leggj­ast í rúmið. Það getur liðið ein­hver tími þar til þeir treysta sér út í lífið aftur.

Leti – Fiskum þykir gott að láta ber­ast með straumnum, sem er stundum gott og blessað en getur farið út í öfgar þegar fisk­arnir hætta að láta til sín taka og flat­maga heilu og hálfu dag­ana að „velta hlut­unum fyrir sér“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu