Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einkaskilaboð milli Kanye og Pete birt: „Það sem þú ert að gera fjölskyldunni þinni er hættulegt“

Einkaskilaboð milli Kanye og Pete birt: „Það sem þú ert að gera fjölskyldunni þinni er hættulegt“
Pete Davidson og Kanye West.

Engar sættir virð­ast í sjón­máli milli þeirra Kanye West og Pete Davidson. Nú hefur vinur Pete, grínist­inn Dave Sirus, birt röð skila­boða sem hann segir vera á milli Kanye og Pete. Dave Sirus hefur áður birt færslur fyrir hönd Pete, þar sem sá síð­ar­nefndi er ekki á sam­fé­lags­miðlum.

Rapp­ar­inn Kanye West og grínist­inn og leik­ar­inn Pete Davidson hafa eldað grátt silfur saman í nokkurn tíma. Pete er í ást­ar­sam­bandi með fyrrum eig­in­konu Kanye, raun­veru­leika­stjörn­unni og frum­kvöðl­inum Kim Kar­dashian, en þau byrj­uðu að stinga saman nefjum síð­ast­liðið haust. Kanye hefur ekki farið leynt með óánægju sína með sam­band þeirra og farið mik­inn á sam­fé­lags­miðlum síð­ustu miss­eri í róg­burði gegn þeim. Þykir mörgum nóg um og rætt hefur verið um að hegðun Kanye sé afar eitruð; hún jaðri jafn­vel við and­legt ofbeldi, væn­is­sýki og umsátur.

Skiln­aður þeirra Kim og Kanye hefur dreg­ist á lang­inn vegna mót­spyrnu hans. Hún hefur þó látið fella niður eft­ir­nafn Kanye úr sínu eigin nafni og fengið dóm­ara til þess að lýsa því yfir að hjú­skap­ar­staða hennar sé ein­hleyp, þrátt fyrir að enn eigi eftir að ganga frá eigna­skiptum og for­sjár­málum vegna barna þeirra, áður en form­legur lög­skiln­aður getur gengið í gegn.

Dave Siras birti skjá­skot af skila­boð­unum eftir að Kanye hafði birt nokkrar færslur yfir síð­ustu helgi, þar sem hann sak­aði Kim um að nota dóttur þeirra, North West, gegn honum. Hann sak­aði hana einnig um tálm­anir og fleira. Kanye deildi einnig mynd­bandi af sjálfum sér þar sem hann bað til guðs og sagði Pete senda sér skila­boð, ögra sér og monta sig af því að vera uppi í rúmi með eig­in­konu sinni. Fyrir rúmri viku gaf Kanye út tón­list­ar­mynd­band þar sem hann grefur leir-eft­ir­lík­ingu af Pete lif­andi.

Nýleg mynd af Kim Kar­dashian og Pete Davidson saman.

„Ég ætla ekki að þegja lengur“

Dave birti skjá­skotin með yfir­skrift­inni „Skilaboð frá Pete“ og virð­ist til­gang­ur­inn vera sá að sýna sam­skipti mann­anna tveggja í sam­hengi.

„Sælinú, þetta er Skete. Geturðu vin­sam­leg­ast slakað á. Klukkan er átta um morgun og þetta þarf ekki að vera svona. Kim er bók­staf­lega besta móðir sem ég hef kynnst. Allt það sem hún gerir fyrir börnin er magnað og þú ert svo fjári hepp­inn með að hún sé barns­móðir þín. Ég hef ákveðið að ég ætla ekki að leyfa þér að koma svona fram við okkur og ég ætla ekki að þegja lengur. Þroskastu,“ segir í skila­boð­unum sem eiga að vera frá Pete. Samkvæmt E!News eru þau ósvikin og sann­ar­lega vinur Pete sem á Instagram-reikn­ing­inn sem birti skjá­skotin. Þess ber að geta að „Skete“ er það upp­nefni sem Kanye notar á Pete.

„Ó, ertu að nota blóts­yrði,“ er það eina sem Kanye hefur að segja við þessu og spyr síðan: „Hvar ertu núna?“

Pete svarar þá: „Uppi í rúmi með kon­unni þinni“ og sendir sjálfu af sér liggj­andi í rúm­inu.

„Það gleður mig að sjá að þú sért kom­inn af spít­al­anum og úr með­ferð,“ segir Kanye þá.

Pete svarar: „Mig líka. Það er ótrú­legt hvað þessir staðir geta gert þegar þú ferð og biður um hjálp. Þú ættir að prófa það. Ég er í LA í dag ef þig langar til að hætta að vera lít­ill inter­net-ræf­ill og eiga sam­tal.“

„Þú hræðir mig ekki félagi,“ bætir Pete við. „Gjörðir þínar eru svo vand­ræða­legar. Það er sorg­legt að fylgj­ast með þér eyði­leggja arf­leifð þína á hverjum degi.“

„Það sem þú ert að gera fjöl­skyld­unni þinni er hættu­legt“

Kanye svar­aði ekki beiðni Pete um að þeir hitt­ust tveir til að ræða málin beint, en bauð honum þess í stað að mæta í kirkju og hitta sig. Um er að ræða „Sunday service“, sem eru trú­ar­legar athafnir sem Kanye stendur sjálfur fyrir á sunnu­dögum. Þar er ávallt marg­menni og fjöl­miðlar stundum á svæð­inu.

„Eigum við ekki bara að hitt­ast eftir Sunday service og Saints-leik­inn… Ég verð á Beverly Hills hót­el­inu, við getum borðað og talað saman inni á her­berg­inu mínu. Í ein­rúmi, undir fjögur augu. Maður á mann,“ segir Pete þá og bætir síðan við: „Það sem þú ert að gera fjöl­skyld­unni þinni er hættu­legt og mun marka þau fyrir lífs­tíð. Viltu vin­sam­leg­ast vinna úr þessum hlutum í ein­rúmi félagi, ég bið þig.“

„Ef þú vilt hitta mig þá kem­urðu í Sunday service,“ svarar Kanye.

„Leyfðu mér að hjálpa þér“

„Þetta á ekk­ert erindi við almenn­ing. Ég er ekki að sækj­ast eftir myndum og fjöl­miðla­fári, sem er greini­lega það eina sem þú hugsar um. Boð mitt stendur. Ég vildi að þú myndir manna þig upp, svona einu sinni á ævinni,“ svarar Pete og gerir til­raun til að höfða til Kanye í gegnum sam­eig­in­legan reynslu­heim þeirra af and­legum veik­indum. „Leyfðu mér að hjálpa þér. Ég glími við geð­ræna hluti líka, það er ekki auð­velt ferða­lag. Þér þarf ekki að líða svona lengur. Það er engin skömm í því að fá smá hjálp. Þú munt verða svo ham­ingju­samur og finna frið.“

Að lokum gerir Pete Kanye ljóst að hann sé búinn að vera mun almenni­legri við hann en til­efni hafi verið til. „Þú hefur ekki hug­mynd um það hversu almenni­legur ég hef verið við þig, þrátt fyrir allt sem þú hefur gert á minn hlut. Ég hef komið í veg fyrir að SNL tali um þig og geri grín að þér, sem þau hefur langað að gera mán­uðum saman,“ segir Pete og talar þar um skemmti­þátt­inn vin­sæla Saturday Night Live, en Pete er einn af umsjón­ar­mönnum þátt­ar­ins.

Pete heldur áfram: „Ég hef komið í veg fyrir að uppi­stand­arar geri grín að þér vegna þess að ég vil ekki að barns­faðir kærust­unnar minnar líti illa út. Ég ver þig þrátt fyrir að þú komir ömur­lega fram við mig, vegna þess að mig langar til þess að allt gangi vel.“

„En ef þú heldur áfram að ýta á mig eins og þú hefur gert síð­ustu sex mán­uði þá mun ég hætta að vera almenni­legur,“ segir Pete að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu