Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Satúrnus – ábyrgð, metnaður og lífskrísur

Satúrnus – ábyrgð, metnaður og lífskrísur

Satúrnus er ein af ytri plánet­unum í stjörnu­speki. Nokkrir árgangar í röð eru með Satúrnus í sama stjörnu­merk­inu og því er hún sögð ein af kyn­slóða­plánet­unum.

Satúrnus í stjörnu­speki stendur fyrir lög og reglur, strúktúr, skyldur, metnað og aga. Satúrnus er kenn­ar­inn í stjörnu­kort­inu. Það merki sem Satúrnus var í þegar þú fædd­ist getur gefið sterka vís­bend­ingu um það hvernig þú nálg­ast ofan­greind atriði og hvernig þú kemur fram í aðstæðum sem krefj­ast til að mynda aga og ábyrgðar. Sömu­leiðis gefur það sterk­lega til kynna hvaða atriðum þú munt þurfa að vinna hvað mest í varð­andi sjálfan þig.

Orka Sat­úrnusar er þung og raunar er um að ræða áhrif sem ýmsir eru ekk­ert ýkja hrifnir af. Það er ekki óal­gengt að fólk flýi undan eigin Sat­úrnusi. Plánetan neyðir okkur nefni­lega til þess að horfa á umhverfið og okkur sjálf gagn­rýnum augum; greina það sem virkar ekki, hvar er hægt að gera betur og hvar við erum hrein­lega ekki að standa okkur.

Það eru tvö áber­andi lífs­skeið um ævina sem hafa mikið með Satúrnus í stjörnu­korti okkar að gera og það er vegna þeirra sem Satúrnus hefur orðið alræmdur í dægur-stjörnu­speki.

Tíma­bilin eru í kringum þrí­tugt og sex­tugt, rétt áður raunar, þegar Satúrnus „snýr aftur“ (e. Saturn return). Þetta er í stjörnu­speki talið afar öfl­ugt „transit“.

Þegar fólk lítur yfir far­inn veg er ekki ólík­legt að stórir póstar í líf­inu; hjóna­band, skiln­aður, upp­sögn, nýr fer­ill og fleira með svipað mik­il­vægi – hafi einmitt átt sér stað í kringum þessi tíma­bil.

Þetta er þegar Satúrnus snýr til baka, nákvæm­lega á þann stað í stjörnu­kort­inu sem hann var í þegar þú fædd­ist. Yfir­leitt er hann með all­nokkrar lex­íur í fartesk­inu. Þetta tíma­bil er þegar þú ert um það bil á milli 27-29 ára, 56-60 ára og 84-90 ára. Nákvæm tíma­setn­ing fer eftir þínum fæð­ing­ar­degi, en tíma­bilið spannar yfir­leitt í kringum tvö til þrjú ár. Þetta tíma­bil sem Satúrnus færir þér er frægt fyrir að umbreyta fólki. Því fylgja yfir­leitt tölu­verðir vaxt­ar­verkir – þetta er að mörgu leyti þungt og alvar­legt tíma­bil sem getur valdið geð­rænum þyngslum, einkum og sér í lagi ef fólk streit­ist á móti þeim lex­íum sem Satúrnus færir því.

Málið er að þú færð lex­í­una, hvort sem þér líkar betur eða verr. Svo þá er bara um að gera að spenna beltin og taka fram glósu­bók­ina – það má nefni­lega græða heil­mikið á þessu tíma­bili. Það færir fólk gjarnan yfir á næsta þroska­stig. Oft er talað um að það sem þú hefur reynt að bæla niður, neitað að vinna í eða svið sem þú hefur ekki tekið út nauð­syn­legan þroska á – sé einmitt það svið sem Satúrnus hjóli hvað fast­ast í meðan á end­ur­kom­unni stendur.

Hér fyrir neðan má sjá hvaða þýð­ingu Satúrnus hefur í hverju stjörnu­merki fyrir sig. Hafið í huga að það skiptir líka miklu máli hvaða húsi plánetan lendir í, sem og teng­ingar hennar við aðrar sterkar plánetur og punkta í stjörnu­kort­inu. Þetta er sér­stak­lega sagt um Satúrnus, vegna þess að áhrif hans á allt stjörnu­kort okkar geta verið ansi sterk með til­liti til afstöðu.

Hrútur

Þú hefur mik­inn drif­kraft og átt auð­velt með að byrja á verk­efnum. Þú býrð yfir miklum metn­aði en átt stundum erfitt með að hafa þig í frammi og taka sterka afstöðu. Þú gætir verið átaka­fæl­inn en átt þrátt fyrir það erfitt með að sýna veik­leika. Það er mik­il­vægt að þú leyfir þér að vera orku­mik­ill, ákveð­inn og stundum dálítið árás­ar­gjarn. Þannig mun sjálfs­traust þitt vaxa og þú fylla betur út í sjálfan þig. Hugrekki er lyk­il­at­riði hér – það er allt í lagi að gera mis­tök.

Naut

Þú býrð yfir ákveðni og ró. Þú ótt­ast að missa það sem þú átt og hefur, að vera háð öðrum og að hafa ekki það sem þú þarfn­ast. Það er mik­il­vægt að þú látir þetta ekki standa í vegi fyrir tæki­færum – stundum þarf að láta slag standa og leggja eitt­hvað undir. Þú þarft að leyfa þér að hafa það gott og njóta ávaxta erf­iðis þíns, án þess að fá sam­visku­bit. Sam­visku­bitið er fylgi­fiskur þinn þegar þú leyfir þér eitt­hvað og þetta getur fætt af sér skömm sem er engum holl. Þú átt það til að fara djúpt ofan í hjól­för þess sem þú þekkir og er öruggt, þegar þú upp­lifir óör­yggi. Þannig get­urðu fest þig í sama fari. Lærðu að sleppa tak­inu á örygg­is­ventl­unum þínum og biddu um aðstoð endrum og sinnum.

Tvíburi

Þú átt það til að vera með of mörg járn í eld­inum í einu og átt þannig stundum erfitt með að ein­beita þér fylli­lega að verk­efn­unum. Þú færð stundum óbeit á sjálfum þér í félags­legum aðstæðum og neitar þér um léttúð og gam­an­semi, þótt það sé mik­il­vægur partur af per­sónu­leika þínum sem þú þarft að fá að tjá. Þú átt það til að verða afskap­lega áhyggju­fullur, yfir öllu og engu, svo jaðrar við tauga­veiklun. Stundum finnst þér erfitt að þekkja sjálfan þig og upp­lifir þig sem tvær mann­eskjur í einni – þú veist ekki hvor er hin rétta og það truflar þig. Hið rétta er að þær eru báðar hin rétta. Þú þarft að gefa báðum hliðum af þér gaum. Þú ert ein­stak­lega rökviss og klár.

Krabbi

Þrátt fyrir að hafa ríka þörf fyrir nánd og ástúð áttu stundum erfitt með að tjá þessa þörf, eða endar á því að vera alltaf í því hlut­verki fyrir aðra. Stundum finnst þér eins og verið sé að sjúga úr þér alla orku og líf. Þú gerir þó oft ekk­ert til að stöðva það, en verður sár og bitur í ein­rúmi. Biturð og lang­rækni er einmitt annað sem þú berst eflaust við. Þú þarft að var­ast það að sökkva sífellt dýpra ofan í þann dimma pytt. Það getur haft afskap­lega slæm áhrif á heilsu þína.

Þú átt oft erfitt með að hleypa fólki að þér og ert lok­aður. Þú byrgir mikið inni og þetta getur hrein­lega leitt til heilsu­far­s­vanda. Það er afskap­lega mik­il­vægt að þú forð­ist það ekki að biðja um ástúð og látir vita að stundum þurfir þú á því að halda að hugsað sé um þig. Þú þarft á öryggi í líf­inu að halda. Þetta á til að mynda við um heim­ili, fjöl­skyldu og fjár­mál.

Ljón

Þú berst við að finn­ast þú ekki eiga að þurfa á athygli að halda eða sam­þykki frá öðrum. Þú átt það til að þróa með þér ýktar, nei­kvæðar til­finn­ingar í garð fólks sem sækir í sviðs­ljósið. Þú átt erfitt með að eiga við egó ann­arra og fólk sem hefur sig mikið í frammi. Allt hefur þetta að gera með sömu hliðar hjá þér sjálfu, sem þú átt það til að bæla niður. Stundum ley­f­irðu þér ekki að tjá létt­ari, barns­legri og orku­rík­ari hliðar þínar af ótta við hvað fólk­inu í kringum þig gæti fund­ist. Gremja þín gagn­vart öðrum í sviðs­ljós­inu sprettur af þinni eigin þörf fyrir við­ur­kenn­ingu og athygli. Það vill nefni­lega þannig til að þegar þú færð enga við­ur­kenn­ingu og þegar litið er fram hjá þér, þá verð­urðu bit­urt.

Það er afar mik­il­vægt að þú leyfir þér að sleppa fram af þér beisl­inu og stígir fram á sviðið í ein­hverju sem þú hefur gaman af.

Meyja

Þú átt það til að vinna yfir þig án þess að finna gleði eða til­gang í því sem þú gerir. Stundum upp­li­f­irðu skyldur þínar sem bölvun og það er oft mikil þreyta og þyngsli sem umlykja þig. Þú ert nákvæm og með ein­stakt auga fyrir smá­at­riðum. Þetta getur hins vegar breyst í full­komn­un­ar­áráttu sem með tím­anum veldur þér kvíða og gerir það að verkum að þú átt erfitt með að klára verk­efnin – það er nefni­lega alltaf eitt­hvað sem má bæta. Þetta gerir það líka oft að verkum að þú verður hrædd við breyt­ingar, ný verk­efni og hug­myndir. Þú sérð skratt­ann í hverju horni og með honum til­efni til ótal mis­mun­andi mis­taka.

Þú þarft að við­ur­kenna þessa eig­in­leika og vinna í þeim til þess að geta smátt og smátt stigið inn í ótt­ann og tekið fagn­andi á móti nýjum verk­efnum og tæki­færum.

Vog

Valkvíði getur sann­ar­lega orðið þér að falli – þú vegur og metur út í hið óend­an­lega og átt erfitt með að standa með ákvörð­unum. Þú átt bara svo auð­velt með að sjá allar mögu­legar útkomur og það er þér nán­ast óbæri­legt að gera eitt­hvað „rangt“. Þú ert afar sann­gjörn og rétt­sýn. Þetta er í sjálfu sér mik­ill kostur en getur þó einnig orðið til þess að þú verðir sár út í heim­inn, finn­ist hann ljótur og ósann­gjarn. Þetta getur valdið dep­urð. Einnig áttu það til að fara að búa í hálf­gerðum fantasíu­heimi, til þess að þurfa ekki að takast á við allt órétt­lætið sem blasir við þér.

Þú sækir mikið í sam­bönd og sam­skipti við aðra. Félags­leg tengsl eru af hinu góða en það er mik­il­vægt að verða ekki með­virk með öðrum eða háð öðru fólki. Það er eitt­hvað sem getur vel hent þig. Þú þarft því að leggja rækt við eigið sjálf­stæði og æfa þig í að taka ákvarð­anir – enda er engin ákvörðun, ákvörðun út af fyrir sig. Hefurðu velt því fyrir þér?

Sporðdreki

Þú átt það til að reyna að afneita dimmari kimum sjálfs­ins og eigin til­finn­inga, sem búa þó svo kröft­ug­lega í þér. Dæmi um þetta er afbrýði­semi, lang­rækni, hefnigirni og fleira. Þér er eðl­is­lægt að tengj­ast dimmari kimum lífs­ins en það reyn­ist þér oft flókið að horfast í augu við þá. Þegar þú bælir hluta af sjálfum þér niður get­urðu orðið afar óham­ingju­samur.

Þú átt stundum erfitt með að opna þig fyrir öðrum, vilt byrgja til­finn­ingar þínar inni og líkar illa að sýna veika bletti. Þú átt það til að kæla allt niður í frost­mark og verða fjar­lægur ef þér sárnar. Þú þarft að æfa þig í að treysta og finna hvað það getur verið gott að opna sig og treysta öðrum fyrir sínum hjart­ans málum. Enginn er eyland.

Bogmaður

Þú þarft að ganga þinn eigin lífs­veg og semja þínar eigin reglur. Það hentar þér illa að fylgja upp­skriftum ann­arra. Þú nálg­ast lífið af ákveðnum heið­ar­leika og ert ekk­ert fyrir að flækja hlut­ina. Þú gætir átt í sterku eða flóknu sam­bandi við trú­ar­brögð. Hugs­an­lega fylgir þú einu trú­ar­kerfi fram í fing­ur­góma, af mik­illi ástríðu, eða þú ert hugs­an­lega alla leið­ina í hina átt­ina – full­kom­lega trú­laus, svo mjög að það er nán­ast trú út af fyrir sig.

Þú átt það til að vera svo­lítið hroka­fullur og finnst þú alltaf hafa rétt fyrir þér. Stundum reyn­ist þér erfitt að hlusta á fleiri hliðar. Það er mik­il­vægt fyrir þig að vera sveigj­an­legri. Það er hollt fyrir þig að stökkva á tæki­færin og það skiptir ekki alltaf máli að hafa rétt fyrir sér. Stundum þarf bara að láta sig ber­ast með straumnum.

Steingeit

Metn­að­ar­girni er þér í blóð borin. Það er partur af þér, jafn­vel stór, sem þráir vel­gengni og að áorka ein­hverju. Stundum teygir þessi þrá sig í völd. Þú átt hins vegar oft afar erfitt með að bæði við­ur­kenna og skilja þessa hlið á sjálfri þér og þú getur upp­lifað þetta sem yfir­þyrm­andi, eins og heim­ur­inn sé á herðum þínum. Þú hefur djúp­stæða þörf fyrir að hafa stjórn á hlut­unum. Þetta getur þró­ast út í þrá­hyggju og ef þú hefur ekki heil­brigða leið til þess að tjá þessa stjórn­semi, til dæmis í gegnum verk­efni eða störf, gæti þessi þörf tekið á sig myrk­ari mynd og farið að blæða inn í per­sónu­leg sam­bönd. Þú ert klók mann­eskja og býrð yfir ríkri ábyrgð­ar­til­finn­ingu. Stundum getur verið að þú finnir fyrir svo mik­illi pressu að þú afneitir þess­ari hlið og farir í öfgar í hina átt­ina; hristir af þér alla ábyrgð og aðhyllist algjört kæru­leysi. Þetta er ekki hollt fyrir þig heldur er þetta hrein­rækt­aður flótti.

Ef þú gengst ekki við metn­að­ar­gjarna hlut­anum af sjálfri þér er hætt við því að þú finnir fyrir bit­urð og nei­kvæðni sem getur dreift úr sér í alla kima lífs­ins.

Vatnsberi

Þú nálg­ast hlut­ina blákalt, skoðar stað­reyndir og ert vís­inda­lega þenkj­andi. Þú átt það til að eiga flókin sam­bönd við fólk. Þú missir vini ef til vill frá þér á þínum yngri árum. Fólki finnst þú stundum kaldur. Þú átt það til að ótt­ast að standa utan við hóp­inn, að vera skrýt­inn. Þú ert fastur fyrir og þetta getur stundum komið þér í hann krappan í sam­skiptum.

Fólk þarf að vera þol­in­mótt við þig í félags­legu sam­hengi. Hlutir koma gjarnan út úr þér órit­skoð­aðir. Þú ert rök­fastur og vilt ekki dvelja of mikið við drauma. Þú átt það til að mála þig út í horn í félags­legu sam­hengi, þrátt fyrir að það sé í raun það sem þú ótt­ast mest. Slíkar aðstæður gætu getið af sér ein­fara, sem er upp­fullur af bit­urð. Þú þrífst nefni­lega að hluta til á félags­legum sam­skiptum. Þú ættir að æfa þig í að vera dálítið óskyn­sam­ari og láta slag standa – fylgja hjart­anu. Það er hollt fyrir þig.

Fiskar

Þú ert sam­úð­ar­fullur og lætur þig vel­ferð ann­arra varða. Þú veðjar oft á svarta hest­inn og réttir fram hjálp­ar­hönd. Þú átt hins vegar erfitt með að taka á móti slíku sjálfur. Reyndar er það þér þvert um geð að finn­ast eins og aðrir líti á þig sem hjálp­ar­vana. Þetta stafar af því að þú átt það til að bæla niður til­finn­ingar þínar og þörf fyrir ástúð frá öðrum. Þú upp­lifir það oft sem veik­leika.

Reyndar finn­urðu fyrir vissri van­þóknun í garð fólks sem þér finnst leika fórn­ar­lamb og þú myndir seint vilja telj­ast til þess. Allt þetta gerir það að verkum að þú átt erfitt með að þiggja hjálp og taka á móti bæði hrósi og hlýjum orðum. Þú þarft samt mikið á þessu öllu að halda, en hegðun þín gerir það að verkum að fólk lærir oft að vera ekki að hafa sig í frammi með slíka hluti við þig. Þú átt afar erfitt með að nefna og greina eigin til­finn­ingar. Þannig situr þú oft uppi með dep­urð, áhyggjur og kvíða sem þú kannt ekki að útskýra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu