Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Tónlistin fann Aldísi Fjólu aftur og aftur: „Rosalegt að koma tilfinningum út á þennan hátt“

Tónlistin fann Aldísi Fjólu aftur og aftur: „Rosalegt að koma tilfinningum út á þennan hátt“
Aldís Fjóla Borg­fjörð Ásgeirs­dóttir. Mynd: Aðsend.

Tón­list­ar­konan Aldís Fjóla heldur útgáfu­tón­leika í Iðnó á morgun, laug­ar­dag­inn 23. apríl. Það óvenju­lega við þessa útgáfu­tón­leika, eins og gildir um marga við­burði um þessar mundir, er að fyrsta plata Aldísar, sem tón­leik­arnir hverf­ast um, er tveggja ára gömul.

„Ég er í raun­inni bara búin að halda á plöt­unni minni síðan hún kom út 2020 og bíða eftir að fá að halda tón­leika í Reykja­vík til að fagna henni með öllum sem vilja,“ segir Aldís Fjóla um tíma­setn­ingu tón­leik­anna. Það hefur enda verið flókið fyrir tón­list­ar­fólk að gefa út nýjar plötur síð­ustu tvö ár í heims­far­aldri, þegar tón­leika­hald hefur lítið sem ekk­ert verið í boði.

Aldís Fjóla á mynd­inni framan á plöt­unni hennar, Shadows.

Aldís Fjóla kemur frá Borg­ar­firði eystra og vissi snemma að hún vildi standa uppi á sviði. „Öll hádegi voru dans­há­degi í stof­unni heima, þar sem ég var bara ein að dansa við Ruth Reg­in­alds, Stjórn­ina og Mini Pops. Ég og frænka mín tókum síðan upp enda­laus mynd­bönd af okkur að mæma lög af gríð­ar­legri til­finn­ingu. Ellefu ára samdi ég fyrsta lagið mitt um kött­inn minn sem dó. Það var rosa­legt að koma til­finn­ingum út á þennan hátt.“ Aldís var þó lengi að láta draum­inn sinn um að syngja ræt­ast. Með aldr­inum kom óör­yggið og efinn. „Þegar ég sá og heyrði að umhverfið og sam­fé­lagið í kringum mig sagði mér stans­laust að ég gæti ekki unnið eða lifað á því sem ég brenn fyrir, þá tók rök­hugs­unin yfir og ég fór ein­hvern veg­inn í allar áttir til að reyna að finna eitt­hvað annað. Það er ekki svo auð­velt þegar tón­listin lætur þig varla í friði. Árið 2006 fór ég fyrir algjöra heppni í Complete Vocal Institute í Kaup­manna­höfn og þar fann ég mína rödd, fékk þau hrós og hvatn­ingu sem ég þurfti og samdi og kláraði mitt annað lag. Þarna kvikn­aði eitt­hvað sem ég var búin að bæla niður svo lengi,“ segir Aldís.

Aldís Fjóla opn­aði aftur á tón­list tveimur árum eftir and­lát móður sinnar, sem lést eftir erf­iða bar­áttu við krabba­mein, með því að stofna hljóm­sveit­ina Borg­fjörð með nokkrum vinum sínum. Sú hljóm­sveit gaf út tvö lög og Aldís fann neist­ann á ný. Skömmu síðar flutti hún aftur suður til Reykja­víkur til að vera nær hljóm­sveit­inni – en ekk­ert gerð­ist. „Ég var ein­hvern veg­inn alltaf að bíða eftir því að það myndi eitt­hvað ger­ast. Að strák­arnir í band­inu hefðu tíma, að ein­hver myndi „finna“ okkur eða við myndum henda í meiri tón­list. Eftir mikla sjálfs­vinnu og pæl­ingar lærði ég að það gerir eng­inn þetta fyrir þig. Það hefur eng­inn jafn­mik­inn metnað og þú fyrir þinni tón­list og ég þurfti að gera þetta sjálf til að það myndi eitt­hvað ger­ast hjá mér.“

Frá tón­leikum hljóm­sveit­ar­innar.

Plötuna, sem nefn­ist Shadows, gerði Aldís í sam­vinnu við Stefán Örn Gunn­laugs­son, upp­töku­stjóra. „Árið 2018 þorði ég að senda honum skila­boð með tveimur demóum frá mér og spurði hvort hann vildi hjálpa mér. Tíu mín­útum seinna sagði hann já og hann hefur ekki losnað við mig síðan.“ Aldís og Stefán Örn semja lögin saman en Aldís Fjóla semur text­ana. „Ég hef alltaf hlustað rosa­lega mikið á texta og túlkað þá í gegnum mig og mína líðan hverju sinni. Mínir textar eru inn­blásnir af minni reynslu, umhverf­inu og vinum, ásamt því að ég gríp oft línur úr kvik­myndum og þáttum sem sting­ast inn í mig þegar ég horfi.“

Útgáfu­tón­leikar Aldísar Fjólu fara fram í Iðnó á morgun, laug­ar­dag­inn 23. apríl klukkan 20:00. Um upp­hitun sér tón­list­ar­konan Zöé. Aldís biður tón­leika­gesti um að koma með dans­skóna með sér. „Það verður farið alla leið og skálað og dansað eftir tón­leika, þar sem ég verð nýorðin fer­tug þarna,“ segir hún, afar spennt fyrir laug­ar­deg­inum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu