Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Dóra og Sævar eignuðust son – „Velkominn í heiminn elsku barnið mitt“

Dóra og Sævar eignuðust son – „Velkominn í heiminn elsku barnið mitt“
Mynd / Hákon Davíð

Dóra Björt Guð­jóns­dóttir, borgar­full­trúi og odd­viti Pírata til­kynnti fæð­ingu barns hennar og Sæ­vars Ólafs­sonar íþrótta­fræð­ings á Facebook í gær. Eign­uð­ust þau dreng, fimm dögum fyrir settan dag og er Dóra í skýj­unum. ,,Hann er svo undur­fal­legur og bjartur og lýsir upp hjörtun okkar. Ég hef aldrei upp­lifað slíka ást,“ skrifar Dóra um erf­ingj­ann í fal­legum pistli. Við óskum Dóru og Sævari inni­lega til ham­ingju með son­inn, pistil­inn má lesa í heild hér að neðan.

„Bar­áttu­barnið okkar er fætt 

Í dag 1. maí er settur dagur drengs­ins okkar Sævars, sem er bar­áttu­barn í víðum skiln­ingi. En hann lét sjá sig fyrir fimm dögum síðan, á þriðju­dag. Hann var 16,5 merkur og 52 cm og litli ljóns­ung­inn fædd­ist með dökkan makka eins og mamma sín. Hann er svo und­ur­fal­legur og bjartur og lýsir upp hjörtun okkar. Ég hef aldrei upp­lifað slíka ást.

Koma hans í heim­inn og fyrstu dagar hafa þó reynst okkur fjöl­skyld­unni krefj­andi. Áætluð heima­fæð­ing end­aði uppi á Land­spít­ala í tölu­verðum hasar og aðeins tveggja daga gamlan þurfti að leggja hann inn á vöku­deild Barna­spít­al­ans vegna slapp­leika. Allt hefur þó gengið upp og við fjöl­skyldan fengum að fara heim í dag, á settum degi. Við njótum þess að vera saman og kynn­ast. Hann setur allt lífið vissu­lega í alveg nýtt sam­hengi.

Í dag á 1. maí er líka eins og við vitum öll bar­áttu­dagur vinn­andi fólks. Mér hefur alltaf þótt svo vænt um þennan mik­il­væga dag. Barátta launa­fólks um bætt kaup, kjör og vinnu­að­stæður og fyrir því að hlustað sé á raddir verka­fólks og vinn­andi fólks hefur skipt sköpum þegar kemur að efl­ingu lífs­gæða okkar allra. Ég brenn fyrir því að þessar raddir fái að heyr­ast og að á þær sé hlustað og að mik­il­væg vinna í þágu sam­fé­lags­ins sé metin að verð­leikum.

Í því sam­hengi vil ég nefna botn­lausa virð­ingu mína fyrir vinnu og mik­il­vægi heil­brigð­is­starfs­fólks í ljósi nýlið­innar reynslu okkar. Heil­brigð­is­starfs­fólk er okkur til halds og trausts á okkar bestu og erf­ið­ustu stundum og stendur vörð um okkar allra dýr­mætasta og hefur sann­ar­lega gert það í okkar til­felli. Ég vil þakka ljós­mæðrum, hjúkr­un­ar­fræð­ingum, fæð­ing­ar­læknum og barna­læknum bæði Bjark­ar­innar og Land­spít­ala frá innstu hjartarótum fyrir að grípa mig og fjöl­skyld­una mína á ögur­stundu. Fagleg og styrk hjálp­ar­hönd þeirra í bland við botn­lausa umhyggju og hlýju sem við höfum hlotið síð­ustu daga frá þessu ynd­is­lega fólki gerir mig klökka.

Þau hafa ekki bara tryggt okkur fjöl­skyld­unni við­eig­andi og rétta með­höndlun og með­ferð sem hefur lyft okkur yfir þessa erf­iðu hjalla heldur líka sálu­hjálp, ráð­gjöf og öxl til að gráta á. Und­ur­sam­legar ljós­mæður og hjúkr­un­ar­fræð­ingar hafa bæði fyrir, undir og eftir fæð­ingu og á meðan dvöl okkar á vöku­deild stóð hlustað á mig, ráð­lagt mér, sýnt mér enda­lausan skiln­ing og stuðn­ing og hafa bók­staf­lega gripið mig í sinn faðm þegar tárin hafa streymt niður vang­ana í rosa­leg­asta til­finn­inga­rús­sí­bana­kok­teil lífs míns.

Borið hefur á þungri umræðu um fæð­ingar og heil­brigð­is­starfs­fólk síð­ustu mán­uði en ég vil segja að mín erf­iða reynsla er þó böðuð ljóma þessa fólks. Þeirra visku og hjarta­gæsku. Ég verð þessu fólki ævin­lega þakk­lát. Þetta fólk á allt gott skilið. Það á skilið miklu meira en það fær. Gleði­legan 1. maí. Baráttan lifir. Vel­kom­inn í heim­inn elsku barnið mitt.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu