Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sturtuvenjur geta sagt sitthvað um persónuleika þinn – Hvaða líkamshluta þværðu fyrst?

Sturtuvenjur geta sagt sitthvað um persónuleika þinn – Hvaða líkamshluta þværðu fyrst?

Sumir vilja meina að það hvaða lík­ams­hluta fólk velur að þvo fyrst þegar í sturt­una er komið, geti gefið ákveðnar vís­bend­ingar um per­sónu­leika þess.

Í dag má segja að offram­boð sé af hinum ýmsu per­sónu­leika­prófum og grein­ingum. Eitt próf getur svarað þeirri mik­il­vægu spurn­ingu hvaða per­sónu í Harry Potter þú lík­ist mest, á meðan annað vís­inda­legra próf flokkar þig niður í einn af 16 per­sónu­leikum og svarar þannig öllu sem þú þarft að vita til þess að finna ham­ingju og til­gang. Þægilegt, ekki satt?

Þótt hér verði látið vera að leggja mat á gagn­semi slíkra prófa er í það minnsta ljóst að fólk hefur þónokkurn áhuga á sjálfu sér og elskar að láta greina sig, með einum eða öðrum hætti.

Allt sem við gerum, með­vitað og ómeð­vitað, getur gefið vís­bend­ingu um þanka­gang okkar og þá mann­eskju sem við höfum að geyma, eins og ótal lítil púsl verða að einni heild­ar­mynd.

Það ætti svo sem ekki að koma á óvart að ein­hverjum hafi dottið í hug að greina per­sónu­leika fólks út frá sturtu­ferðum. Við eigum jú flest ein­hverja ófrá­víkj­an­lega siði í kringum slíkt, að minnsta kosti þegar vel er að gáð.

Ein­hverjir eru á því að sá lík­ams­partur sem fólk þvær fyrst þegar það fer í sturtu geti gefið ákveðnar vís­bend­ingar um per­sónu­leika þess, enda sé það að setja þann lík­ams­part í for­gang og leggja áherslu á hann. India Times tóku saman eft­ir­far­andi lista.

Hvar þværð þú þér fyrst? Skoðum málið nánar.

1. Andlit

Ef and­litið er það fyrsta sem þú þværð þegar þú ferð í sturtu, gefur það til kynna að þú leggir tölu­verða áherslu á það hvernig þú kemur fyrir og hvernig aðrir sjá þig. Þú átt það til að velta þér of mikið upp úr því hvað öðrum finnst um þig og það getur vakið hjá þér áhyggjur og kvíða. Þú átt það til að vera hör­undsár og finnst erfitt að mis­takast, jafn­vel þótt um lít­il­vægt atriði sé að ræða.

2. Handakrikar

Ef þú setur handa­krik­ana í for­gang ertu lík­lega vin­sæll og félags­lyndur ein­stak­lingur. Þú ert traustur og þekktur fyrir að standa með vinum þínum. Til­finn­ingar þínar gagn­vart öðru fólki eru ýktar; annað hvort elskarðu eða hatar. Það er lítið um grá svæði í lífi þínu. Þú ert með fal­legt hjarta­lag.

3. Axlir/háls

Ef þú þværð axl­irnar og háls­inn fyrst eftir að í sturt­una er komið, ertu lík­lega metn­að­ar­gjarn. Þú skarar gjarnan fram úr í því sem þú tekur þér fyrir hendur. Þú ert ákveð­inn ein­stak­lingur og sæk­ist eftir því sem þú vilt; ekk­ert verk­efni er of stórt. Þú trúir því að með vinnu­semi séu allir vegir færir. Þú átt það til að verða fangi eigin metn­aðar og finnst þú stundum vera að slig­ast undan eigin draumum og vænt­ingum. Þú ert mikil keppn­is­mann­eskja og vilt ávallt vera skref­inu á undan.

4. Bringa

Þvoir þú bring­una á þér fyrst ertu að öllum lík­indum sjálfsör­uggur ein­stak­lingur sem líður vel í eigin skinni. Ákveðni og sjálf­stæði ein­kennir þig. Þú ert fæddur leið­togi, kemur til dyr­anna eins og þú ert klæddur og þolir ekk­ert hálf­kák.

5. Kynfærasvæði

Ef kyn­færa­svæðið er sá staður sem þú þværð fyrst í sturt­unni, gefur það til kynna að þú sért feim­inn og haldir þig dálítið til baka. Þú lætur fólk ef til vill stundum ráðskast með þig og átt erfitt með að standa klár með eigin sann­fær­ingu. Þú ert ein­lægur og umhyggju­samur ein­stak­lingur í kjarna þínum, en það getur tekið fólk tíma að kom­ast inn fyrir varn­ar­veggi þína.

6. Handleggir/fótleggir

Ef þú þværð hand­leggi eða fót­leggi fyrst gefur það vís­bend­ingu um hóg­værð. Þú kemur lík­lega fyrir sem kurt­eis og sýnir auð­mýkt. Þú ert öruggur með þig og átt auð­velt með að tjá skoð­anir þínar.

7. Bak

Ef bakið er sá lík­ams­hluti sem þú setur í for­gang gefur það til kynna að þú farir almennt var­lega og treystir engum í blindni. Bakið táknar með­vit­und. Þú ert að öllum lík­indum inn­hverfur ein­stak­lingur sem kýs ein­veru fram yfir mikil félags­leg sam­skipti í hóp.

8. Hendur

Það að þvo hendur sínar fyrst gefur til kynna and­legan styrk. Þú ert með sterka rétt­læt­is­kennd og stendur með því sem þú telur rétt, án þess að hafa áhyggjur af útkom­unni hverju sinni. Þú myndir seint telj­ast diplómat­ískur, heldur stendur þú fast á þínu og kemur til dyr­anna eins og þú ert klæddur. Þú átt ekki erfitt með óvissu og trúir á sam­ein­ingu og sam­taka­mátt.

9. Hár

Ef þú þværð hár þitt fyrst af öllu í sturt­unni ertu lík­lega dálítið upp­tek­inn af því að hafa hlut­ina í röð og reglu. Það er mik­il­vægt fyrir þig að vera við stjórn­völ­inn og óvissa hentar þér illa. Þú ert með sterkar skoð­anir og hefur eitt­hvað að segja um flest sem kemur upp. Þú ert skipu­lagður ein­stak­lingur sem á auð­velt með tíma­stjórnun.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu