Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Johnny Depp vann málið gegn Heard: „Það besta á enn eftir að koma og nýr kafli hefur loks hafist“

Johnny Depp vann málið gegn Heard: „Það besta á enn eftir að koma og nýr kafli hefur loks hafist“
Amber Heard og Johnny Depp í rétt­ar­salnum.

Dómur féll í dag í meið­yrða­máli leik­ar­ans Johnny Depp gegn fyrr­ver­andi eig­in­konu sinni, leikkon­unni Amber Heard.

Alls tók það kvið­dóm­inn um það bil 14 klukku­stundir að kom­ast að þeirri nið­ur­stöðu að Amber Heard hefði gerst sek um meið­yrði er hún skrif­aði grein í Washington Post árið 2018 þar sem hún sagði frá ofbeld­is­sam­bandi sem hún hafi átt í. Aldrei minnt­ist hún á Depp en duld­ist það engum að átt var við hann.

Var kvið­dóm­ur­inn sam­mála Depp að greinin hafi falið í sér meið­andi ásak­anir í hans garð og að Heard hefði skrifað grein­ina af slæmum ásetn­ingi. Voru honum greiddar 15 millj­ónir Banda­ríkja­dala í bætur eða tæpir tveir millj­arðar króna en hann hafði kraf­ist 50 millj­óna.

Johnny fylgd­ist með úrskurð­inum í gengum tölvu­skjá en hann var staddur í Bret­landi við störf. Amber var í rétt­ar­salnum og átti erfitt með að halda aftur af tár­unum að því er virt­ist.

Mikil fagn­að­ar­læti brut­ust út fyrir utan dóms­húsið er úrskurð­ur­inn var les­inn upp en þar höfðu aðdá­endur Depp safn­ast saman.

Heard stefndi Depp á móti í gangsök og fór fram á 100 milljón doll­ara skaða­bætur fyrir rógs­her­ferð sem hún segir að Depp hafi háð gegn henni. Féllst kvið­dóm­ur­inn á part af kröfum Heard og var henni greiddar tvær millj­ónir í bætur eða 258 millj­ónir króna.

Heard fær 2 milljónir

Depp fór fram á 50 millj­ónir doll­ara í skaða­bætur, en Heard stefndi svo Depp á móti í gagn­sök þar sem hún fór fram á 100 milljón doll­ara skaða­bætur fyrir óhróð­urs­her­ferð sem hún sagði Depp hafa háð gegn sér.

Kvið­dómur féllst eins á hluta af kröfum Heard. Voru henni dæmdar ann­ars vegar 2 millj­ónir Banda­ríkja­dala í bætur og hins vegar 0 krónur í það sem í banda­ríkj­unum kall­ast refsi­kenndar bætur (e. punitive), sem eru eins konar miska­bætur sem eru dæmdar þegar um sér­stak­lega meið­andi hátt­semi er að ræða. Til að setja það í sam­hengi skipt­ust bæt­urnar til Depp þannig að 10 millj­ónir Banda­ríkja­dala voru skaða­bætur en 5 millj­ónir voru þessar svoköll­uðu refsi­kenndu bætur.

Johnny Depp birti yfir­lýs­ingu á Instagram-reikn­ingi sínum eftir að dóm­ur­inn var kveð­inn upp. Hér má lesa þýð­ingu Vísis:

„Fyrir sex árum síðan breytt­ist líf mitt, líf barn­anna minna, líf þeirra sem standa mér næst og líf þeirra sem hafa staðið við bakið á mér og haft trú á mér. Allt á örskots­stundu

Rangar, alvar­legar og glæp­sam­legar ásak­anir voru bornar á mig í gegn um fjöl­miðla, sem hrinti af stað hræði­legri atburð­ar­rás, þó svo að ég hafi aldrei verið ákærður fyrir neitt. Þessar ásak­anir fóru um heim­inn allan á örskots­stundu og höfðu rosa­leg áhrif á líf mitt og feril minn.

Sex árum síðar hefur kvið­dóm­ur­inn gefið mér líf mitt aftur. Ég er mjög þakk­látur.

Ákvörðun mín um að höfða þetta mál, þrátt fyrir að vita hve erfitt það yrði, var tekin eftir mikla íhugun.

Frá upp­hafi var mark­miðið að varpa ljósi á sann­leik­ann, sama hver nið­ur­staðan yrði. Ég skuld­aði börn­unum mínum, sem hafa staðið þétt við bakið á mér, það að segja sann­leik­ann. Ég finn frið í hjarta mínu nú þegar mér hefur loks tek­ist þetta ætl­un­ar­verk.

Ég á engin orð yfir þann stuðn­ing og ást sem fjöldi fólks um allan heim hefur sýnt mér. Ég vona að þessi veg­ferð mín muni hjálpa öðrum, karl­mönnum og konum, sem hafa upp­lifað það sama og ég. Og ég vona að þau gef­ist aldrei upp. Ég vona líka að fólk líti nú svo á að fólk sé sak­laust uns sekt sé sönnuð, bæði innan rétt­ar­kerf­is­ins og í fjöl­miðlum.

Ég vil þakka dóm­ar­anum fyrir hans mögn­uðu vinnu, þakka kvið­dóm­end­unum, starfs­mönnum dóms­ins og lög­reglu­mönn­unum sem hafa unnið að mál­inu. Ég vil sér­stak­lega þakka mínu frá­bæra lög­mannateymi sem hefur staðið sig frá­bær­lega og hjálpað mér að varpa ljósi á sann­leik­ann.

Það besta á enn eftir að koma og nýr kafli hefur loks haf­ist.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu