Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Jón Viðar er mjög ánægður með Vitjanir: „Frammistaða þeirra heilt á litið til fyrirmyndar“

Jón Viðar er mjög ánægður með Vitjanir: „Frammistaða þeirra heilt á litið til fyrirmyndar“

Einn þekkt­asti list­gagn­rýn­andi lands­ins, Jón Viðar Jónsson hefur fylgst með íslensku sjón­varps­þátt­unum Vitjanir á Rúv und­an­farnar vikur líkt og fjöl­margir Íslend­ingar. Og hvernig ætli Jóni Viðari líki við þætt­ina?

Þætt­irnir fjalla um „bráða­lækn­inn Kristínu sem flytur með ung­lings­dóttur sinni heim til for­eldra sinna í lítið sjáv­ar­þorp eftir fram­hjá­hald eig­in­manns­ins. Kristín, sem er raunsæ og jarð­bundin, kemt fljótt að því að hún fer langt út fyrir þæg­ind­ara­mmann í sam­skiptum við mið­il­inn móður sína og neyð­ist til að horfast í augu við drauga for­tíðar,“ líkt og stendur á vef Rúv.

Bakvið þætt­ina er frá­bært kvennateymi en Eva Sig­urð­ar­dóttir er leik­stjóri og þær Kolbrún Anna Björns­dóttir og Vala Þórs­dóttir skrifa hand­ritið, en bæði Kolbrún Anna og Vala leika einnig í þátt­unum.

Jón Viðar, sem vekur venju­lega athygli fyrir hvassar og nei­kvæða gagn­rýni kom eflaust mörgum á óvart með færslu sinni en þar lof­samar hann þætt­ina. Byrjar hann að tala um íslenska þátta­gerða­fólk sem hefur verið að gera það gott und­an­farið og sótt inn­blástur á lands­byggð­ina. Nefnir hann til að mynda Svörtu sanda hans Baldvins Z sem sýndir voru á Stöð tvö í vetur en honum fannst þeir góðir.

„Nú má hver dæma fyrir sig, en ég, fyrir mína parta, hef haft lang­mest gaman af Vitjunum. Ég þekki því miður ekki til þess kvennateymis sem stendur að baki þeim, en það leynir sér ekki að þetta er alvöru­fólk sem bæði kann að segja sögu í þessu list­formi, kann til verka í svið­setn­ingu, mynd­vinnslu oþh og vandar sig í hví­vetna. Hefur þar á ofan ágætan húmor. Formúlur og fyr­ir­myndir eru vissu­lega margar kunnar, en hvað gerir það til ef heild­ar­myndin er þokka­lega trú­verðug og leik­ur­unum tekst að blása lífi í per­són­urnar? Þeir eru hér mjög vel valdir, sýn­ist mér og frammi­staða þeirra heilt á litið til fyr­ir­myndar.“

Jón Viðar er hrif­inn af leik­ur­unum í þátt­unum og nefnir þá Jóhann Jóhanns­son, sem leikur lög­regl­una Ragnar í þátt­unum og nefnir einnig Kolbrúnu Önnu.

„Ein­hverjir veru­lega betri en aðrir? Eig­in­lega ekki – og þó. Jói Jóhann­son (hét hann ekki ein­hvern­tíma Jóhann G. Jóhanns­son?) brill­erar sem Raggi lögga, hann hefur aldrei fyrr sýnt slíka takta, en ég hef ugg­laust ekki séð allt sem hann hefur gert). Virðist í fyrstu heldur von­laus lúði, fastur í lífi sem hann er alls ekki sáttur við, en sækir svo í sig veðrið þegar á líður, enda tólf­spora­maður undir traustri hand­leiðslu Þrastar Leós sem er auð­sæi­lega pott­þéttur AA trún­að­ar­maður. Hann, ásamt Kolbrúnu Önnu Björns­dóttur (+ fjöl­skyldu) eiga einna mestan þátt í að lyfta leiknum þegar fram í sækir uns hann nær að verða bein­línis áhrifa­mik­ill í hörm­ungum sjötta og sjö­unda þáttar.“

Og Jón Viðar nefnir fleiri leik­ara sem honum þykir standa upp úr ann­ars frá­bærum leik­ara­hópi.

„En fleiri gera það gott. Vala Þórs­dóttir er dásam­lega fyndin sem grasa­lækn­ir­inn sem lifir að hálfu leyti í álf­heimum – hver þekkir ekki svona eilífð­ar­hippa og kuklara? Eða hina sjúk­lega stjórn­sömu systur sem Steinunn Ólína teiknar upp af full­komnu öryggi, sama öryggi og hún sýndi í hlut­verki hinnar alkó­hóliser­uðu móður í Svörtum söndum. Katla Njáls­dóttir er líka mjög góð sem dóttirin og ekki verra að sjá rosknar stór­leikkonur blómstra eins og þær gera Helga Jóns­dóttir og Ragn­heiður Stein­dórs­dóttir. Er ann­ars nokkuð fal­legra í leik­list­inni en rosknir leik­arar og jafn­vel aldr­aðir sem allt í einu fá að skína? Sara Dögg gerir Kristínu líka góð skil, en per­sónan nær ein­hvern veg­inn ekki að fanga áhuga manns eða samúð, eins þótt hún sé í ótta­legri til­vist­ar­krísu og viti varla hvaða sam­bandi hún er að fara úr eða koma í. Getur ann­ars hugs­ast að per­sónan eigi sér fyr­ir­mynd í banda­rískri sápu á Netflix, Virgin River, sem fjallar einmitt um hjúkr­un­ar­konu í svip­aðri aðstöðu? Ekki svo að skilja, konan er ekk­ert verri fyrir það, það er bara svo erfitt að þola til lengdar fólk sem aldrei getur ákveðið sig (sbr Hamlet sem ég hef aldrei fílað almenni­lega, ekki frekar en TS Eliot og fleiri góðir menn).“

Að lokum veltir Jón Viðar sér fyrir enda­lok­unum en loka­þátt­ur­inn er á morgun og segir kvennateymið sem stendur að þátt­unum geti fylli­lega flokkað sér í hóp með „stór­veldum“ sem fyrir eru í brans­anum.

„Það verður for­vitni­legt að sjá hvernig Eva Sig­urð­ar­dóttir og félagar landa dramanu í síð­asta þætti. Og mér kæmi mjög á óvart yrði þar ekki opnað á amk aðra röð í við­bót. Þó víða sé komið við er naum­ast nokkur skortur á nýti­legum sögu­efnum á Hólma­firði eða nágranna­byggðum (ég sé að fólk nefnir hér eld­gos eða ein­hverjar nátt­úru­ham­farir, það gæti eflaust bjargað einni seríu í bland við annað). Aðal­at­riðið er að þetta kvennateymi stillir sér nú með sóma upp við hlið­ina á þeim „stór­veldum“ sem fyrir eru í brans­anum og vekur vonir um enn meiri grósku í list­inni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu