Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Samskipti á vinnustað: Ertu að ofhugsa hlutina?

Samskipti á vinnustað: Ertu að ofhugsa hlutina?

End­ur­teknar hugs­anir eru eins og biluð plata. Sál­fræð­ing­inn Dr. Lauren Feiner gefur ráð um hvernig hindra má að fest­ast í þrá­hyggju­kenndum hugs­unum í grein á PsychCentral.com.

Feiner spyr hvort les­and­inn sé sífellt að rifja upp eða hugsa um nei­kvæðar aðstæður. Slíkar end­ur­tekn­ingar eða grufl (e. rumination) geta virkað eins og biluð plata – hug­ur­inn sé stöðugt að skoða hvað fór úrskeiðis þegar hlut­irnir gengu ekki upp. Jafnvel þegar allt gengur vel höfum við til­hneig­ingu til að ein­beita okkur að því eina nei­kvæða sem gerð­ist þann dag­inn.

Það getur verið gagn­legt að skoða fyrri reynslu þegar við erum að leita lausna og vinna okkur í gegnum erf­ið­leika, en mikið grufl tekur þetta upp á næsta stig. Við fáum ekki nýja inn­sýn með end­ur­teknum hugs­unum og oft magna þær upp nei­kvæðar til­finn­ingar. Við ein­beitum okkur aðeins að því sem ekki gengur vel í stað þess að sjá stóru mynd­ina. Þetta grufl getur haldið okkur vak­andi fram á nótt við að ofgreina stöð­una.

En hvað getum við gert til að stöðva þessar sí endurteknu hugsanir?

Hér eru nokkur ráð sem Feiner nefnir:

1.Skil­greindu ótt­ann. Hvað óttastu mest? Hefurðu áhyggjur af því að missa starfið eða koma illa fyrir í augum sam­starfs­fólks? Það getur verið góð leið að halda dag­bók til að gera sér grein fyrir und­ir­liggj­andi ótta.

2. Hvað er það versta sem gæti gerst? Við erum seig og getum oft ráðið við það versta sem gæti komið upp á en það dregur brodd­inn úr því sem við höfðum upp­haf­lega áhyggjur af. Því borgar sig stundum að ímynda sér hið versta og vita að við gætum tek­ist á við það – allt annað er miklu auð­veld­ara við­fangs og óþarfi að velta sér upp úr. Stundum geta erf­ið­leikar líka opnað nýjar dyr þó við áttum okkur ekki á því strax.

3. Gefðu frá þér það sem þú getur ekki stjórnað. Spyrðu „hverju get ég breytt?“ og ef svarið er að þú getir í raun engu breytt eða stjórnað aðstæðum til hins betra, gefðu verk­efnið frá þér.

4. Líttu á mis­tök sem námstæki­færi. Í stað þess að gagn­rýna sjálfa/n þig þegar þú gerir mis­tök líttu á mis­tökin sem dýr­mæta reynslu sem mun nýt­ast þér í fram­tíð­inni. Í hvert sinn sem mis­tök eru gerð lær­irðu eitt­hvað nýtt.

5. Taktu frá sér­stakan tíma fyrir áhyggjur. Taktu frá 20-30 mín­útur á dag til að hafa áhyggjur og nýttu þann tíma sem best. Með þessu móti afmark­arðu stund og stað til að velta fyrir þér hlutum og getur notað tím­ann til ann­ars þar fyrir utan.

6. Núvitund. Við eyðum svo miklum tíma í að hugsa um fyrri mis­tök eða hafa áhyggjur af atburðum í fram­tíð­inni að við höfum lít­inn tíma til að njóta ferða­lags­ins. Núvitund hjálpar til við að fækka hugs­unum og beina athygli að skynjun hér og nú – sjón, heyrn, lykt og bragði. Það getur hjálpað okkur að upp­lifa það sem er að ger­ast á hverjum tíma og njóta mik­il­vægu stund­anna í líf­inu.

7. Hreyfing. Prófaðu að fara í göngutúr. Með því að breyta um umhverfi getum við truflað end­ur­teknar hugs­anir og gefið okkur færi á að skoða hlut­ina frá nýju sjón­ar­horni.

8. Skoðaðu með­ferð. Ef end­ur­teknar hugs­anir eru að trufla dag­legt líf þitt veru­lega íhug­aðu þá að leita aðstoðar hjá fag­að­ilum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu