Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Einn þessara leikara gæti fengið drápsleyfið

Einn þessara leikara gæti fengið drápsleyfið

Vanga­veltur hafa nú lengi gerj­ast um það hver muni taka við hlut­verki sem njósn­ar­inn góð­kunni, James Bond. Síðustu ár hafa ýmsar get­gátur komið fram um það hver muni bera hið goð­sagna­kennda númer 007, þegar Daniel Craig láti af störfum.

Síðsta mynd Craig í hlut­verk­inu, No Time to Die, kom loks út á síð­asta ári, eftir tafir vegna Covid-19 far­ald­urs­ins. Eitt nafn hefur gjarnan heyrst umfram önnur í umræð­unni um hlut­verkið síð­ustu miss­eri, en það er leik­ar­inn Idris Elba. Hann virt­ist hugn­ast mörgum aðdá­endum sem arf­taki Craig og, að því er virð­ist, fram­leið­endum mynd­anna sömu­leiðis. Nú hefur heyrst að Elba hafi raun­veru­lega átt í við­ræðum við fram­leið­end­urna vegna hlut­verks­ins – og gengið frá samn­inga­borð­inu. Þessu er meðal ann­ars sagt frá hjá breska götu­blað­inu Daily Mail.

Idris Elba

Eflaust eru margir svekktir að heyra að Elba muni ekki taka við hinu goð­sagna­kennda núm­eri 007, þótt ekk­ert sé stað­fest í þeim efnum. Orðróm­ur­inn hefur hins vegar enn á ný komið af stað miklum umræðum um það hver verði næsti njósn­ari hennar hátignar. Raunar má víða á net­inu finna veð­mál um það hver muni taka að sér hlut­verkið.

Nöfn þeirra sem heyr­ast hvað hæst, og eru efst á blaði hjá veð­mang­ar­anum William Hill eru hér fyrir neðan.

Henry Cavill

Henry Cavill (5/2)

Henry Cavill hefur áður lýst yfir áhuga sínum á hlut­verk­inu. Hann sagði meðal ann­ars í við­tali við GQ árið 2020 að hann myndi „stökkva á tæki­færið ef það byð­ist“.

Henry er þekktur fyrir að leika Superman, sem og fyrir hlut­verk sín í kvik­myndum á borð við Enola Holmes og Imm­ortals. Hann er einnig vel þekktur fyrir hlut­verk sín í sjón­varps­þátt­unum The Tudors og Netflix-ser­í­unni vin­sælu The Witcher.

Regé Jean-Page

Regé Jean-Page (4/1)

Regé Jean-Page sló í gegn í hlut­verki sínu í fyrstu seríu þáttar­að­ar­innar Bridgerton árið 2020. Hann heill­aði þar marga upp úr skónum sem Simon Basset. Jean-Page er vanur sviðs­leik­ari og er með ýmis járn í eld­inum; til dæmis mun hann birt­ast á hvíta tjald­inu á næsta ári í kvik­mynd­inni Dungeons and Dragons. Jean-Page lét á síð­asta ári hafa það eftir sér að hann væri upp með sér yfir því að nafn hans væri nefnt í vanga­veltum um næsta James Bond.

Tom Hardy

Tom Hardy (6/1)

Tom Hardy er heims­frægur leik­ari sem hefur markað spor sín víða. Meðal þeirra kvik­mynda sem hann er hvað þekkt­astur fyrir eru Inception, Black Hawk Down, The Dark Knight Rises, The Revenant, Legend, Mad Max: Fury Road og Venom. Hann hefur einnig leikið í hinum ýmsu þátta­röðum, eins og Peaky Blinders og Band of Brothers. Tom hefur í raun stað­fest það að vera opinn fyrir hlut­verk­inu með því að vilja ekki ræða það. „Ef ég minn­ist á það er það farið,“ sagði hann í við­tali við The Daily Beast árið 2017.

James Norton

James Norton (6/1)

Breski leik­ar­inn James Norton er einna helst þekktur fyrir leik sinn í þátta­röð­unum Grantchester og Happy Valley, en hefur leikið í fleiri sjón­varps­þáttum, auk þess að vera sviðs­leik­ari. „Klikkað… Það er ótrú­legt og mikið hrós bara að vera nefndur í tengslum við þennan heim, en ef við tökum þetta lengra þá eru þetta ekk­ert annað en vanga­veltur,“ sagði Norton í við­tali við The Times þegar hlut­verkið barst í tal. „Ég elska þessa seríu og vona að Barbara Broccoli haldi áfram að láta hana skipta máli. Ferðalag inn í miðj­una á per­sónu­legum heimi Bond, í stað ein­faldra frasa, eru strax miklar fram­farir.“

Chiwetel Ejiofor

Chiwetel Ejiofor (7/1)

Breski leik­ar­inn Chiwetel Ejiofor hefur leikið í hinum ýmsu kvik­myndum og sjón­varps­þáttum, eins og 12 Years a Slave, The Boy who Harnessed the Wind, Doctor Strange, The Martian og American Gangster. Nýlega lék hann í þátta­röð­inni The Man who Fell to Earth, sem hefur notið mik­illa vin­sælda. Það heyrð­ist fyrst árið 2014 að Ejiofor væri fyrsta val fram­leið­anda kvik­mynd­anna um James Bond sem arf­taki Daniel Craig. Samkvæmt heim­ildum Variety horfa fram­leið­end­urnir enn í átt til hans en eiga eftir að koma með form­legt til­boð.

Árið 2015 sagð­ist Ejiofor sjálfur hins vegar vilja að leik­ar­inn Michael Pena yrði næsti James Bond. „Það er það sem ég vil,“ sagði hann.

Idris Elba þvertók sjálfur fyrir það á síð­asta ári að hann ætl­aði í skó njó­sn­ara hennar hátignar. „Nei, ég mun ekki verða James Bond,“ sagði hann þegar hann var beð­inn um við­brögð við sögu­sögn­unum. „Ég er lík­lega fræg­asti Bond-leik­ari heims og ég hef ekki einu sinni leikið hlut­verkið!“

Barbara Broccoli hefur sagt það erfitt val að finna arf­taka Craig. „Þetta er stór ákvörðun,“ sagði hún í sam­tali við Variety. „Við ætlum að end­ur­upp­götva Bond. Við erum að vinna í því hvert við förum með hann, við erum í sam­tali um það.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu