Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óttar upplifir ellismánun á Íslandi: „Umræðan á netinu er mjög hatrömm“

Óttar upplifir ellismánun á Íslandi: „Umræðan á netinu er mjög hatrömm“
Óttar Guð­munds­son á túni. Mynd: Læknablaðið.

„Þeir sem hæst láta á net­inu eiga það sam­merkt að vilja þagga niður í “elli­ærum gam­al­mennum” með öllum ráðum,“ segir geð­lækn­ir­inn og pistla­höf­und­ur­inn Óttar Guð­munds­son. Hann segir að umræðan í netheimum sé afar hatrömm og reglu­lega verði hann fyrir ell­is­mánun. Þegar fólki mis­líki eitt­hvað sem hann hefur skrifað í pistlum sínum er hann oft kall­aður „elliær kall­fauskur“, „hálf­viti“ eða „svo­kall­aður geð­læknir“.

Óttar birti skoðun sína á vefnum Lífið er núna. Hér kemur pist­ill hans í heild sinni:

„Umhverfi pistla­höf­unda hefur breyst mikið í áranna rás. Lesendur eru mun við­kvæm­ari en fyrr. Fólk á til að móðg­ast út í það óend­an­lega fyrir hönd ann­arra. Sam­fé­lags­um­ræðan  er full af hættu­legum jarð­sprengju­svæðum. Það úir og grúir af póli­tískum varð­hundum á net­inu sem gelta hátt ef ein­hver villist út af réttri braut. Netið við­heldur þannig ákveð­inni skoð­ana­kúgun í nafni rétt­hugs­unar.

Umræðan á Íslandi er því ein­hæf þar sem ákveðnir val­in­kunnir álits­gjafar gefa tón­inn og kommenta­kerfið end­ur­ómar skoð­anir þeirra. Fastur pistla­höf­undur til margra ára verður að haga seglum eftir vindi. Það hefur þó ekki alltaf tek­ist og ég hef upp­skorið mik­inn reiði­lestur net­verja vegna ógæti­legra ummæla. En stundum hefur mér heppn­ast ágæt­lega og fengið mikið hrós í pottum sund­laug­anna og frá fisk­sal­anum mínum.

Vin­sæl­ustu pistl­arnir eru venju­lega þeir sem fólk tengir við til­finn­inga­lega. Ég skrif­aði einu sinni pistil sem kall­að­ist “Ertu enn?” Hann höfð­aði til fjöl­margra sem í sífellu fá  spurn­ing­una hvort þeir séu enn að vinna, enn í gamla hús­inu eða enn að keyra bíl. Sam­fé­lagið gengur útfrá því að gam­alt fólk eigi að leggja árar í bát á ákveðnum aldri og bíða dauða síns með golf­kylfu í hendi.

Umræðan á net­inu er mjög hatrömm og fæstir virð­ast ótt­ast meið­yrða­lög­gjöf­ina. Þegar net­inu mis­líkar eitt­hvað sem ég hef skrifað er ég venju­lega kall­aður “elliær kall­fauskur,” “hálf­viti” eða “svo­kall­aður geð­læknir.” Það er lær­dóms­ríkt fyrir eldri borg­ara hversu fljótir menn eru að grípa til ell­is­mán­unar þegar eldri maður á í hlut. Sömu­leiðis er þess kraf­ist að ég hætti að vinna enda eiga “kar­læg gam­al­menni” að halda sig innan veggja skil­greindra stofn­ana. Ég hef oft velt því fyrir mér af hverju ummæli sem þessi gagn­vart eldri borg­urum eru ekki skil­greind sem hat­urs­orð­ræða eins og sams konar ummæli gagn­vart öðrum sam­fé­lags­hópum.

Þeir sem hæst láta á net­inu eiga það sam­merkt að vilja þagga niður í “elli­ærum gam­al­mennum” með öllum ráðum. Þau eigi ekk­ert erindi inn í þjóð­fé­lags­um­ræð­una. Það skiptir því miklu máli að láta ekki deigan síga heldur halda áfram að tjá sig og viðra skoð­anir sínar þótt þær falli utan ramma hinnar við­ur­kenndu póli­tísku rétt­hugs­unar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu