Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Seinfeld og samfélagsrýnin

Seinfeld og samfélagsrýnin
Þau Kramer, George, Elaine og Jerry

Á Netflix kennir ýmissa mis­grænna grasa þó úrvalið af kvik­myndum sé nú ekki til þess að hrópa húrra yfir á Íslandi. Annað má segja um þátta­úr­valið en magn þátta af alls­konar teg­undum er nán­ast yfir­þyrm­andi. Þar er að finna heilan hell­ing af stór­góðum spennu­þáttum, vönd­uðum heim­ild­ar­þáttum og drep­fyndnum grín­þáttum, svo eitt­hvað sé týnt til.

Ég og dóttir mín höfum haft það fyrir sið þetta árið að horfa á gömlu góðu Seinfeld-þætt­ina á Netflix, þegar við borðum kvöld­mat­inn saman. Í fyrra voru það hinu súr­r­eal­ísku Monthy Python´s Flying Circus þættir en nú er það „gáfu­manna­grínið“ sem ein­kennir Seinfeld. Og ég get sagt það með vissu að dóttur minni finnst þetta alveg jafn mikil snilld og mér sem segir mér að það er eitt­hvað meira en lítið gott spunnið í þætt­ina.

Þætt­irnir, fyrir þá sem búið hafa undir steini síð­ustu ára­tug­ina, fjalla um ekk­ert eða það er hug­myndin hjá þeim Larry David og Jerry Seinfeld sem skrif­uðu þætt­ina. Þar fylgj­umst við með lífi vin­anna Jerry, Elaine, George og Kramer sem öll eiga það sam­eig­in­legt að vera nokkuð vont fólk og sið­laust, þó þau vilji vel, svona oft­ast. Auka­per­sónur þátt­anna eru einnig kostu­legar margar og sama má segja um for­eldra Georgs og Jerry.

En þætt­irnir eru í raun ekki um ekk­ert, heldur allt.

Þætt­irnir eru nefni­lega troð­fullir af sam­fé­lags­legri gagn­rýni sem eiga oft­ast jafn mikið erindi við áhorf­endur og þegar þeir voru fyrst sýndir frá 1988 til 1998. Tökum dæmi. Þátt­ur­inn „The Outing“ fjallar um það þegar Elaine tekur eftir því að kona er að hlera sam­tal hennar og Jerry á kaffi­húsi og ákveður að ljúga ein­hverri vit­leysu. Segir Elaine þannig að konan heyri vel, að þeir George Constanza og hinn frægi grínisti Jerry Seinfeld eigi í ást­ar­sam­bandi. Konan reyn­ist blaða­kona sem gerir frétt um þetta ást­ar­sam­band. Hvergi er minnst á hommafor­dóma í þætt­inum en það er gefið sterk­lega í skyn með vand­ræða­leik George og Jerry og alltaf þegar þeir segja ekki vera hommar bæta þeir við „Ekki að það sé eitt­hvað að því!“ og í fyrsta skiptið segj­ast þeir þekkja marga homma og hinn lyga­sjúki George bætir við „pabbi minn er hommi!“

Annað dæmi er þátt­ur­inn um stytt­una af frum­byggj­anum. Þar er mál­efnið kyn­þátta­for­dómar en Jerry ákveður að kaupa risa­stóra styttu af frum­byggja Ameríku og gefa Elaine sem sátt­ar­gjöf fyrir eitt­hvað sem hann hafði gert henni. Fyrir vikið er Jerry sak­aður um ras­isma. Á sama tíma er hann að deita konu af frum­byggja­ættum og missir út úr sér ítrek­aðar athuga­semdir sem anga af póli­tískri rang­hugsun. Að setja ras­isma inn í grín­þátt er afar við­kvæmt en ef það er gert með húmor og til þess fallið að láta áhorf­and­ann hugsa út í eigin hug­myndir um slík mál­efni, er það ekk­ert annað en snilld. Seinna í þætt­inum er George að velta því fyrir sér hvort það væri rétt af sér að spyrja asíska konu í hvaða átt nálæg­asta kín­verska veit­inga­húsið sé segir Jerry „Já, ég kippi mér ekki upp við það þegar ég er spurður að því í hvaða átt Ísrael er,“ en hann er gyð­ingur. Und­ir­strikar Jerry svo afstöðu sína og skiln­ings­leysi varð­andi kyn­þátta­for­dóma með því að segja „veistu, ég bara næ þessu ekki“ en fjöl­margir Amer­ík­anar eru einmitt eins, þeir ná þessu bara ekki.

Ég gæti farið mun dýpra í Seinfeld þætt­ina en lengdin á þessum pistli bíður ekki upp á það. Ég hvet les­endur til þess að skella þátt­unum í gang og njóta, helst með krökk­unum því þannig má læra til dæmis hvernig á ekki að bregð­ast við hinum ýmsu atvikum sem maður lendir í á lífs­leið­inni. Og hlæja í leið­inni.

Pistill þessi birt­ist í nýjasta hefti Mannlífs sem hægt er að lesa í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu