Nýtt myndskeið af Maríu Sigrúni Hilmarsdóttur á innsoginu hefur slegið rækilega í gegn á Twitter.
Myndskeið, búið til af Eilífi Erni hjá framleiðslufyrirtækinu snark.is, sem sýnir hina vinsælu sjónvarpsfréttakonu Maríu Sigrúni Hilmarsdóttur á innsoginu hefur slegið í gegn á Twitter. Hefur Eilífur klippt saman brot úr sjónvarpsfréttum þar sem María Sigrún er á innoginu og raðað þeim saman svo úr verði „Innsogsopus 9. NO 2. eftir Chopin“ eins og Eilífur kallar meistaraverk sitt.
Þúsundir hafa horft á myndskeiðið og fjölmargir skrifað athugasemdir. Þar á meðal Ólöf nokkur sem sagði það sem margir sjálfsagt tengdu við: „Hélt niðri mér andanum allan tímann.“
Sjón er sögu ríkari:































Athugasemdir