Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna minnist gamalla félaga: „Við sættumst að lokum eftir nokkrar ískaldar vikur á milli okkar“

Anna minnist gamalla félaga: „Við sættumst að lokum eftir nokkrar ískaldar vikur á milli okkar“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir minn­ist tveggja fall­inna starfs­manna Vélskóla Íslands í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni.

Frá því að Anna Krist­jáns­dóttir vél­stjóri flutti til Tenerife, sem hún kallar Paradís, hefur hún skrif­aði dag­bók­ar­færslur á Facebook á hverjum degi. Skín kald­hæðnin og húmor­inn í gegn í þeim öllum og má það sama segja um nýjust færslu hennar.

Í færsl­unni minn­ist Anna tveggja starfs­manna Vélskóla Íslands, þeirra Boga Arnars Finn­boga­sonar, fyrrum skrif­stofu­stjóra skól­ans sem lést á dög­unum og Andrésar Guð­jóns­sonar, fyrrum skóla­stjóra skól­ans sem lést árið 2009. Þá rifjar hún upp í leið­inni spaugi­legar smá­aug­lýs­ingar sem Anna birti sem rit­stjóri Skrúf­unnar, sem var mál­gagn Skóla­fé­lags Vél­skólan Íslands. Færsluna má lesa hér í heild sinni:

„Dagur 1260 – Ársritið Skrúfan.

Þegar ég var ung og fal­leg bar ég ekki sömu virð­ingu fyrir fólki eins og síðar varð. Þar sem vafi er hvort ég hafi gegnt stöðu frétta­rit­ara né öðrum fjöl­miðla­störfum hefi ég aldrei þurft að standa skil á ýmsum vafasömum ummælum sem ég hefi látið frá mér fara í gegnum tíð­ina. En samt. Einu sinni var ég rit­stjóri og kunni mér að sjálf­sögðu engin tak­mörk og birti allt sem að mér var rétt. Tíma­ritið hét Skrúfan og var mál­gagn Skóla­fé­lags Vélskóla Íslands. Skóla­stjóri vor lá veikur með alvar­legan hjarta­kvilla á spít­ala og þótti okkur ekki nema eðli­legt að reyna að hjálpa honum með eft­ir­far­andi aug­lýs­ingu sem birt­ist í blað­inu:„Vantar lensi­dælu. Andrés.“Skóla­stjóri vor náði sér ágæt­lega eftir þessi veik­indi og stjórn­aði skól­anum í mörg ár eftir þetta og aldrei man ég til þess að hann gerði athuga­semd við þessa litlu smá­aug­lýs­ingu.Einn af mínum bestu félögum í Vél­skól­anum var Hall­grímur Guð­finns­son frá Bol­ung­ar­vík. Hann var rót­tækur og síðar átti hann bát í félagi við aðra sem hét Karl Marx ÍS-153. Þeir félag­arnir gerðu í því að gleyma til­kynn­inga­skyld­unni til þess eins að heyra aug­lýst eftir Karli Marx í útvarp­inu. Hall­grímur þótti fremur forn í háttum og því birt­ist eft­ir­far­andi smá­aug­lýs­ing í Skrúf­unni:„Vil­hjálmur Stef­áns­son land­könn­uður hélt því fram að til að kom­ast af á heim­skauta­svæðum þyrfti fólk að lifa og hegða sér að hætti inn­fæddra. Hall­grímur Guð­finns­son lifir að hætti ber­fættra og sýpur soðið af sokk­unum sínum.“Síðar eign­að­ist Hall­grímur kvóta og seldi og fékk fullt af pen­ingum fyrir. Að sögn kunn­ugra varð hann alveg miður sín er hann sá hve mikið hann fékk og gerði allt sem hann gat til að losna við þessa fjár­muni enda sós­í­alisti af guðs náð. Ég held að hann sé enn á lífi, orð­inn aldr­aður bóndi á Suð­ur­landi. Ynd­is­legur félagi.Skrif­stofu­stjóri Vél­skól­ans sem jafn­framt var kenn­ari var Bogi Arnar Finn­boga­son þekktur ensku­kenn­ari og þýð­andi hjá Sjón­varp­inu sem lést á dög­unum hinn ágæt­asti maður, en hann slapp samt ekk­ert við grínið. Hans veik­leiki var hár­kollan sem hann bar stoltur og hélt að fæstir vissu. Einhver skóla­fé­lag­inn bað mig um að birta eft­ir­far­andi smá­aug­lýs­ingu í Skrúf­unni og sem mér var ljúft að sinna:„Er ég eða er ég ekki með hár­kollu. Það er eitt af leynd­ar­málum nátt­úr­unnar.Bogi Arnar Finn­boga­son“.Bogi var ekki sáttur við þessa aug­lýs­ingu, en við sætt­umst að lokum eftir nokkrar ískaldar vikur á milli okkar.Síðar varð ég vara­for­maður og loks for­maður skóla­fé­lags­ins um skeið, sat jafn­framt í skóla­nefnd Vél­skól­ans áður en ég varð aftur rit­stjóri skóla­blaðs­ins í fjórða stigi og við breyttum fyr­ir­komu­lagi útgáfu Skrúf­unnar í það form sem það hefur verið alla tíð síðan og fram á þennan dag, þá sem fjár­öfl­un­ar­verk­efni fyrir úrskrift­ar­nem­endur Vél­skól­ans. Þar með hefi ég játað syndir mínar í blaða­mennsku ef hægt er að nota þau orð um mis­heppn­aðan rit­stjórn­ar­tíma minn.Þetta ritað í til­efni af and­láti og útför Boga Arnars Finn­boga­sonar á dög­unum. Blessuð sé minn­ing hans sem og Andrésar Guð­jóns­sonar skóla­stjóra sem lést árið 2009.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu