Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Næturkuldinn í Paradís er erfiður: „Ekki er mikinn yl að fá frá ljósaperunum“

Næturkuldinn í Paradís er erfiður: „Ekki er mikinn yl að fá frá ljósaperunum“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir kvartar yfir kulda í nýj­ustu dag­bók­ar­færslu sinni á Facebook en lofar að vorið sé á næsta leyti.

Hin bráð­fyndna og skemmti­lega kald­hæðna Anna Krist­jáns­dóttir býr á Tenerife, eða Paradís eins og hún kallar spænsku eyj­una gjarnan. Þangað flutti hún fyrir nokkrum árum og hefur haldið úti opinni dag­bók á Facebook síðan. Eru færslur hennar oftar en ekki löðr­andi í húmor og sú nýjasta ekki ekki laus við það, þvert á móti.

Í færsl­unni kvartar hún meðal ann­ars undan næt­urkulda í Paradís og segir Íslend­inga heppna með hita­veit­una. Þá talar hún einnig um leit hennar og vina að „dul­ar­fullum vírus“ fyrir þremur árum og á þá um Corona-vírus­inn. Færsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan:

„Dagur 1268 – Senn vorar í Paradís.

Ég var víst búin að lofa því að vorið væri á næsta leyti, þó ekki alveg strax en kannski á morgun. Það er eitt­hvað að byrja að hlýna því hit­inn var einni gráðu meira í gær en í fyrra­dag og stefnir í örlítið hærra hita­stig.Fólki á Íslandi getur fund­ist þetta vera ótta­legt kulda­skræfu­tal, en þegar haft er í huga að hér er engin hita­veita, munar um sér­hverja gráðu. Þannig er hita­stigið inn­an­dyra vart meira en 15-16°C á nótt­unni, jafn­vel enn lægra. Ég heyrði af einum sem reyndi að ylja sér við bak­ara­ofn­inn í eld­hús­inu hjá sér, setti hann á 150 eða 200 gráður og ofn­inn opinn til að fá smáyl í íbúð­ina sína. Ekki er mik­inn yl að fá frá ljósa­per­unum sem flestar eru orðnar led svo ekki talað um tölv­urnar né sjón­varpið.Íslend­ingar voru heppnir. Fyrsta stór­iðjan á Íslandi var hita­veitan, Hita­veita Reykja­víkur er búin að vera Reyk­vík­ingum slík gull­náma að helst ber að benda á olíu­forða Norð­manna til jafn­aðar við hana sem og aðrar hita­veitur á Íslandi. Ég þekki það af reynsl­unni.Hér suður í höfum eru það ull­ar­sokk­arnir, vað­málspilsið og flís­peysan sem bjarga heils­unni þessa dag­ana.—–Það voru leikir í bik­ar­keppn­inni í gær­kvöldi og í gamla bjór­bik­arnum sem nú er kennd við Izusu jeppa áttu hetj­urnar okkar leik á úti­velli í fjórðu umferð gegn ein­hverjum Harrows, liði sem er á botn­inum í sjö­undu leið og stefnir hrað­byri niður í átt­undu deild. Maður hefði haldið að hetj­urnar færu létt með slíkt lið, en ónei. Vissu­lega voru þær á undan að skora, en botn­liðið svar­aði fljótt fyrir sig. Eftir 2-2 jafn­tefli var víta­spyrnu­keppni þar sem hetj­urnar okkar mörðu sigur með 6-5. Með sama áfram­haldi enda þær á sama plani og Fót­bolta­fé­lag Grút­ar­tjarn­ar­hrepps sem féll úr hinni bik­ar­keppn­inni á dög­unum.—–Nú eru liðin þrjú ár síðan við héldum til La Gomera í leit okkar að dul­ar­fullum vírus sem við höfðum heyrt af og fannst dag­inn áður á eyj­unni og þá í fyrsta sinn á spænsku lands­svæði. Þrátt fyrir mikla leit undir stjórn hins frá­bæra far­ar­stjóra José Angel fundum við engan vírus, fórum von­svikin heim og fengum okkur Coronabjór á barnum. Síðar þótti umrædd veira vera farin að eyði­leggja svo álit Coronabjórsins að rætt var um það í alvöru að breyta nafni bjórs­ins í Ebola Special. Það varð sem betur ekk­ert af slíku.Merki­legt að núna þremur árum síðar erum við öll sem fórum þessa ferð stödd hér í Paradís, Inga sem býr hér eins og ég, Hannes og Halldór sem báðir eru gest­kom­andi á eyj­unni þessa dag­ana.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu