Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Sýnishorn úr Háski: Hlíðin hrynur birt: „Að vinna með pabba sínum er auðvitað algjör forréttindi“

Sýnishorn úr Háski: Hlíðin hrynur birt: „Að vinna með pabba sínum er auðvitað algjör forréttindi“
Hafdal við tökur á mynd­inni. Mynd: Aðsend

Sýn­is­horn úr þriðju heim­ild­ar­mynd Hafdal-feðga hjá fram­leiðslu­fyr­ir­tæk­inu Hafdal fram­leiðsla, hefur nú litið dags­ins ljós. Heim­ild­ar­myndin heitir Háski: Hlíðin hrynur og fjallar að miklu leiti um aur­skrið­urnar sem féllu á Seyð­is­firði 18. des­em­ber 2020.

Um er að ræða þriðju heim­ild­ar­mynd­ina frá Hafdal fram­leiðslu í Háska ser­í­unni en áður hafa komið út mynd­irnar Háski: Fjöllin Rumska og Háski í Vöðlavík en sú fyrr­nefnda var til­nefnd til Eddu­verð­laun­anna árið 2018 sem besta heim­ild­ar­myndin.

Rætt við Baldur Pálsson, fyrrum slökkvi­liðs­stjóra á Héraði.

Mannlíf heyrði í öðrum fram­leið­anda mynd­ar­innar, sem frum­sýnd verður síðar á árinu.

„Að taka við­tölin auð­vitað tók að sumu leiti á, fólk sem missti allt sitt. En það sem mér finnst merki­leg­ast er að það slasast eða ferst eng­inn, því ef þú lendir í svona flóði þá eru afskap­lega litlar líkur á því að þú kom­ist lífs af. Til­vilj­anir einar réðu því að eng­inn var í all nokkrum húsum sem að fóru í flóð­inu,“ sagði Eiríkur Hafdal, annar þeirra sem stendur að mynd­inni, aðspurður hvort það hafi ekki tekið á að gera mynd­ina.

Eiríkur Hafdal við tökur á Seyð­is­firði.

Eiríkur útskýrir svo hvað sé fjallað um í mynd­inni.

„Í þess­ari mynd förum við yfir sögu Seyð­is­fjarðar, saga skriðu­falla á svæð­inu og svo eru þessum atburðum gerð góð skil. Svo upp­bygg­ing og fram­tíðin.“

Segir hann að Seyð­firð­ingar hafi tekið afar vel í verk­efnið.

„Þegar við fórum af stað með þetta fengum við mjög góðar við­tökur hjá heima­mönnum sem voru boðnir og búnir til að aðstoða okkur á allan hátt. Verð líka að nefna aðgerðar stjórn­ina á svæð­inu, en þeir voru mjög lið­legir varð­andi aðgang okkar að svæð­inu og að veita okkur upp­lyisngar bæði í við­tölum og svo bara upp­lýs­ingar yfir höfuð. Svo er það auð­vitað er ég að gera þetta með pabba. Það er Þórarinn Hávarðs­son. Og fyr­ir­tækið mitt Hafdal fram­leiðsla.“

Þórarinn Hávarðs­son leik­stjóri mynd­ar­innar.

Blaða­maður spurði Eirík hvort þeir feðgar hefðu ekki einnig gert hinar tvær Háska mynd­irnar saman.

„Jú við gerðum heim­ild­ar­mynd um snjó­flóðin í Nes­kaup­stað 1974 fyrir nokkrum árum, en það var einmitt í þess­ari sömu seríu. Erum að halda í þetta nafn Háski. Sú mynd hét HÁSKI FJÖLLIN RUMSKA og var hún til­nefnd til Eddunnar 2018 sem besta heim­ild­ar­myndin. Gerðum líka mynd sem heitir Háski í Vöðlavík en það er um sjó­slys austur á fjörðum 1993. Þannig Seyð­is­fjörður er þriðja myndin í þess­ari seríu.“

En hvernig er að vinna með pabba sínum?

„Að vinna með pabba sínum er auð­vitað algjör for­rétt­indi. Við deilum þessu „áhuga­máli“ saman, sem er auð­vitað vinnan manns. En það er honum að þakka að ég er í þessum geira í dag, en hann var töku­maður þegar ég var að alast upp. Þannig fæ ég bakt­er­í­una en núna er hann bara í leik­stjóra stólnum og ég tek allt upp. Stofnaði fyr­ir­tækið mitt Hafdal fram­leiðslu árið 2007 og erum við í alls­konar vinnslu, allt frá aug­lýs­ingum og kynn­ing­ar­efni ýmiss­konar, yfir í streymi og sjón­varps­þátta­gerð. Þetta er ótrú­lega gaman, en við erum þrír fast­ráðnir þar eins og staðan er núna. Svo kemur pabbi annað slagið með okkur i verk­efni.“

Hið magn­aða sýn­is­horn úr Háski: Hlíðin hrynur má sjá hér að neðan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu