Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Söruh Ferguson ekki boðið í krýningu Karls III: „Virkar svolítið grimmt, ekki satt?“

Söruh Ferguson ekki boðið í krýningu Karls III: „Virkar svolítið grimmt, ekki satt?“
Kalli kóngur

Sarah Ferguson sást nokkuð nið­ur­dregin yfir­gefa hið kon­ung­lega sveita­setur, Royal Lodge í Windsor, eftir að hafa verið snupruð við afhend­ingu boðsmiða á krýn­ingu Karls III Bret­lands­kon­ungs.

Hin 63 ára her­toga­yngja af Jórvík, sást í far­þeg­ar­sæti Range Rover bif­reiðar sem ekin var af fyrr­ver­andi eig­in­manni hennar, Andrési prins. Hin tveggja barna móðir var hvers­dags­lega klædd sam­kvæmt Mirror en hún var í drapp­lit­uðum jakka, skyrtu og með svört, kringlótt gler­augu. Andrés, einnig 63 ára, var klæddur í dökk­bláa peysu yfir rauða skyrtu á meðan hann keyrði bif­reið­inni út af lóð­inni.

Andrés prins (og meintur barn­a­níð­ingur) og Sarah Ferguson

Fyrr í vik­unni var til­kynnt að her­toga­ynjan af Jórvík væri ekki boðið í krýn­ingu Karls III í næsta mán­uði, þrátt fyrir að dætur hennar og Andrésar, Beta Dís prinsessa og Evgenía prinsessa, verði þar.

Sér­fræð­ingur heldur því fram að ástæðan fyrir þessu sé sú að Karl III finn­ist hún vera til skammar og sé ekki lengur partur af kon­ungs­fjöl­skyld­unni. Tom Bower, kon­ung­legur frétta­rit­ari sagði MailOn­line að Sarah hefði úti­lokað sjálfa sig með fyrri hegðun sinni.
Bætti hann við að nær­vera hennar myndi „vekja nei­kvæða athygli, sem Karl þarf ekki á að halda.“

Richard Fitzwilliams, sér­fræð­ingur í kon­ungs­fjöl­skyld­unni hrósar kon­un­ingum fyrir þessa „ein­stak­lega vit­ur­lega“ ákvörðun því hún hafi verið „kon­ungs­fjöl­skyld­unni til skammar um ára­bil.“

Ekki eru allir þó ánægðir með ákvörðun kon­ungs­ins en vinur Meghan Markle, Omid Scobie tví­taði: „Ef þetta er satt, þá virkar þetta svo­lítið grimmt, ekki satt?“

Fregn­irnar koma í kjöl­fær þeirra frétta að Harrý prins mun mæta á krýn­ingu föður síns en án eig­in­kon­unnar og barna þeirra, Boga og Lilju.

En hvað eru þessu skammar­legu atvik sem Sarah hefur verið við­riðin í gegnum árin? Sem dæmi má nefna það er ljós­myndir birt­ust í dag­blöðum þar sem hún sást njóta þess að láta sjúga á sér tærnar af fjár­mála­ráð­gjafa hennar, John Bryan, í orlofs­villu hennar í St. Tropez. Þau sáust einnig kyss­ast, faðm­ast og ærsl­ast í laug­inni.

Þá var talað um að vina­slit hefðu orðið hjá henni og Díönu prinsessu eftir að Sarah sagð­ist hafa fengið vörtu á fót­inn eftir að hafa fengið lán­aða skó hjá Díönu. Þær töl­uð­ust ekki enn við er prinsessan lést í hræði­legu bílslysi árið 1997.

Árið 2010 þurfti hún að biðj­ast opin­ber­lega afsök­unar þegar falin mynda­vél sýndi hana selja aðgang að Andrési fyrir tæpar 85 millj­ónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu