Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna fór í störukeppni við skrímsli: „Lengi lék vafi á hvort okkar myndi sigra“

Anna fór í störukeppni við skrímsli: „Lengi lék vafi á hvort okkar myndi sigra“
Anna Krist­jáns.

Anna Krist­jáns­dóttir skrifar um bar­áttu sína við skrímsli á Tenerife, sem hún kallar reyndar vor­boð­ann ljúfa.

Eins og alþjóð veit heldur Anna Krist­jáns­dóttir úti dag­bók­ar­færslum sem hún birtir á Facebook á hverjum degi. Í færslu dags­ins segir hún frá bar­áttu sinni við lítið „skrímsli“ sem mætti óum­beðið á heim­ili hennar í Paradís. Færslan er drep­fyndin að vanda en hana má lesa hér að neðan:

„Dagur 1344 – Vor­boð­inn ljúfi.

Ég sat á sett­inu í fyrra­kvöld og rétt búin að ljúka mér af þegar ég heyrði þennan dóma­dags­há­vaða frá úti­dyra­hurð­inni, hún lyft­ist upp næstum af hjör­unum og undan hurð­inni kom skríð­andi þetta skað­ræðis skrýmsli sem engu virt­ist vilja eira. Mér brá ekki lítið, hljóp fram á gang og hvessti augum á skrýmslið sem hvessti aug­unum á móti mér og þarna var störu­stund dauð­ans og lengi lék vafi á hvort okkar myndi sigra. Þetta var hræði­leg stund og ég ótt­að­ist, ekki aðeins um líf mitt og heilsu, heldur einnig um æru mína.Eftir að mann­dráps­augun höfðu barið hvert á öðru um stund í þeirri von að hitt myndi detta niður dautt, gafst skrýmslið upp, snéri við og hörf­aði til baka, úti­dyra­hurðin lyft­ist og skrýmslið skreið þar undir og fram á gang­inn í sam­eign­inni og lét sig hverfa. Það er kom­inn tími til að úti­dyra­hurðin hjá mér fái að blotna hressi­lega svo hún nái að þrútna nógu mikið til að litlir kakka­lakkar nái ekki að skríða undir hana.Þetta var þá bara pínu­lít­ill kakka­lakki, vor­boð­inn ljúfi sem gerir engum mein og er hvers manns hug­ljúfi.Eða hvað?Þetta er annar kakka­lakk­inn sem ég sé innan sam­eign­ar­innar þetta árið og er ekki frá því að kakka­lakk­arnir séu óvenju­snemma á ferð­inni í ár sem er ein­kenni­legt miðað við fimb­ulkulda vetr­ar­ins sem hefur ríkt hér í vetur. Hinn kakka­lakk­inn var öllu stærri og með vængi og hafði lent í miðjum stig­anum bak­dyra­megin, en hafn­aði á bak­inu og slíkt kann ekki góðru lukku að stýra og því harmdauði öðrum ætt­ingjum sínum.Það stefnir í gott kakka­lakkaár þetta árið, en af gefnu til­efni fylgja engar myndir þess­ari frá­sögn.—–Ég mætti á Íslend­inga­hitt­ing á Móniku­bar í gær, afsakið Lewinski bar. Það var svo sann­ar­lega til­efni til í þetta sinn því Sverrir og Kolla voru þar, en Sverrir Gunn­laugs­son var skips­fé­lagi minn á henni Vest­mannaey VE um fimm ára skeið árin 1974-1980, 1. stýri­maður og afleysn­inga­skip­stjóri, virki­lega góður félagi, Sigl­firð­ingur að upp­runa, en hefur búið í Vest­manna­eyjum frá því nokkru fyrir gos, en ef frá er tal­inn tím­inn sem þau hjónin bjuggu í ráðs­manns­bú­staðnum á Bessa­stöðum vegna goss­ins og síðan um tíma í kaup­fé­lags­blokk­inni í Hafn­ar­firði, hafa þau hjónin búið í Vest­manna­eyjum. Kolbrún er hins­vegar eðal Vest­manna­ey­ingur.Þau hafa átt íbúð hér í Paradís í mörg ár, en hafa ekki komið hingað lengi vegna veik­inda Kollu, en eru loks­ins komin hingað og varð það fagn­að­ar­fundur. Þess má geta að þrátt fyrir ítar­legar umræður um menn og mál­efni, fékk eng­inn Eyja­maður né kona hiksta vegna orða okkar. Það er ekki í eðli hvorki Sverris né Kollu að tala illa um nokkra per­sónu og ekki þorði ég að véfengja góð orð þeirra.Það er á hreinu að við munum hitt­ast oftar næstu tvær vik­urnar áður en þau fara heim aftur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu