Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

TARAMAR – Stórkostlegt verðmæti úr hafdjúpunum

TARAMAR – Stórkostlegt verðmæti úr hafdjúpunum
Dr. Guðrún Mart­eins­dóttir leiðir TARAMAR Mynd: Stefán / Stefán Karlsson

TARAMAR-húð­vör­urnar byggja á sjáv­ar­fangi og eru þró­aðar í hámarks gæðum með mikla sér­stöðu fyrir lúx­us­mark­aði. Öll þróun hjá TARAMAR byggir á rann­sóknum í sjáv­ar­líf­fræði og mat­væla­fræði með áherslu á líf­virk efni. Stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins stefndu að því að verða fyrst á markað með tækni­lega útfærðar húð­vörur sem í raun geta end­ur­byggt húð­ina en eru um leið svo hreinar að það má boða þær. Vörurnar hafa verið í sölu hér heima og í Kína og frek­ari kynn­ingar á þeim á síð­asta ári eru að bera árangur og fyrsta mark­aðs­setn­ing inn á Dubai-svæðið á sér nú stað. Einnig er mik­ill áhugi hjá sölu­að­ilum á lúx­usvörum í Evrópu og telja má lík­legt að vör­urnar verði komnar inn á þá mark­aði síðar á þessu ári. 

Nýsköpun sem TARAMAR stendur fyrir byggir á sjáv­ar­fangi og felur í sér mjög mikla verð­mætaukn­ingu. Aðferð­irnar sem TARAMAR hefur þróað breyta sjáv­ar­fangi í dýrar lúx­us­húð­vörur og bjóða upp á lausnir við vanda­málum sem hafa mikil áhrif á heilsu manna. „Verð­mætaukn­ingin getur numið allt að 3600% frá þurru þang­mjöli í lúx­us­húð­vöru sem hefur virkni til að umbreyta og end­ur­byggja húð­ina á greini­legan hátt sem sjá má með berum augum,“ segir Guðrún Mart­eins­dóttir, stofn­andi og fram­kvæmda­stjóri TARAMAR.

„Öll þróun hjá TARAMAR byggir á rann­sóknum í sjáv­ar­líf­fræði og mat­væla­fræði við Háskóla Íslands og Rutgers Uni­versity, NJ, USA. Þessar rann­sóknir hafa staðið yfir langt tíma­bil, eða allt frá 1979, og standa enn. Rann­sókn­irnar spanna breitt svið eða allt frá áhrifum vatns­virkni á vítamín, ein­angrun líf­virkra efna og áhrifa þeirra á lif­andi vefi sem og þróun og notkun á nátt­úru­legum ferjum sem ferja líf­virku efnin djúpt inn í húð­ina eða auð­velda upp­töku þeirra í melt­ing­ar­vegi. Alls hafa verið birtar fleiri en 80 rit­rýndar greinar sem tengj­ast þess­ari þróun á einn eða annan hátt.“

Guðrún Mart­eins­dóttir Taramar

Einkaleyfavarin framleiðsluaðferð NoTox®

Strax frá upp­hafi ein­settu Guðrún Mart­eins­dóttir og Krist­berg Krist­bergs­son, stofn­endur TARAMAR og pró­fess­orar við Háskóla Íslands, að gera TARAMAR-húð­vör­unar afburða hreinar og afger­andi líf­virkar. Þannig stefndu þau að því að verða fyrst á markað með tækni­lega útfærðar húð­vörur sem í raun geta end­ur­byggt húð­ina en eru um leið svo hreinar að það má boða þær. Þannig myndu þau brúa bilið á milli organic/grænna húð­vara og tækni­legra húð­vara sem drægju úr sýni­legum áhrifum öldr­unar.

„Enn þann dag í dag eru slíkar vörur svo til ófá­an­legar en flestar tækni­lega útfærðar húð­vörur inni­halda fjölda efna sem talin eru geta verið skað­leg fyrir húð og innri kerfi lík­am­ans.“ Til að ná þessu mark­miði þró­uðu þau nýja aðferð til að fram­leiða húð­vörur, NoTox. Þessi aðferð er varin með einka­leyfi og er að mörgu leyti frá­brugðin venju­legum aðferðum sem not­aðar eru í þessum til­gangi.

Gleypa í sig skaðlega geisla sólarinnar

Rann­sóknir TARAMAR sýndu að líf­virk efni úr þör­ungum hafa marg­vís­lega virkni. Sum af þessum efnum nýt­ast í sól­ar­varnir þar sem þau gleypa í sig skað­lega geisla sól­ar­innar. „Þannig hefur TARAMAR þróað sól­ar­vörn sem inni­heldur engin skað­lega efni en eins og margir vita fer mjög slæmt orð af sól­ar­vörnum og flestar inni­halda efni sem eru bæði skað­leg fyrir menn og líf­ríki. Í dag hafa margar bað­strandir bannað alla notkun á sól­ar­vörnum vegna skað­legra áhrifa á líf­ríkið í grunn­sjó á strand­svæðum.“

Þangið stoppar oxun og áhrif sindurefna

Önnur efni sem eru ein­angruð úr þangi og þör­ungum stoppa oxun og draga úr virkni sind­ur­efna. „Sind­ur­efni eru skað­leg efni sem eru meg­in­á­hrifa­valdar í öldrun húð­ar­innar.  Þangið við Ísland hefur sér­stak­lega mikla getu til að vinna á móti oxun og áhrifum sind­ur­efna. Sam­þætt­ing þess­ara efna inn í húð­for­múlur skapar ein­stakar vörur sem vinna með húð­ina frá fyrsta degi án þess að inni­halda nein skað­leg efni.“

Ein af þang­teg­und­unum við Ísland inni­heldur efni sem stoppar nið­ur­brot á bygg­ing­ar­efnum húð­ar­innar, kollagen, elastin og tyrosine. „Þessi upp­götvun er í raun stór­kost­leg og hefur meiri­háttar áhrif til góðs inn í húð­vöru­línu TARAMAR. Nið­ur­brot stoð­vefj­anna er alltaf í gangi, bæði vegna ferla sem eiga sér stað í lík­am­anum og líka vegna utan­að­kom­andi áhrifa, meðal ann­ars frá húð­vörum og efnum sem við berum á húð­ina. Lífvirku efnin í þang­inu inni­halda efni sem stoppa þessa ens­ím­virkni og stuðla þannig að sterk­ari stoð­vef og betri húð.“

Rann­sóknir TARAMAR sýna að líf­virk efni úr þang­inu hafa svo marg­vís­lega virkni. Sum stuðla að ferlum sem draga úr þrota og bólgum og önnur styrkja frumu­himnur og mýkja horn­húð­ina. „Í heild­ina má segja að þangið okkar kæra sé algjör fjár­sjóður hvað varðar efni sem eru góð fyrir húð og lík­ama.“

Fjármögnun nýsköpunarinnar

TARAMAR-vör­urnar fóru fyrst inn á íslenska mark­að­inn seint á árinu 2015. Síðan þá hafa margir erlendir fjár­festar sýnt áhuga á fyr­ir­tæk­inu en í flestum til­fellum hefur áhug­inn beinst að því að ná yfir stjórn á hug­viti fyr­ir­tæk­is­ins og jafn­vel flytja það úr landi.

„TARAMAR hefur staðið af sér þetta árreiti en stefna fyr­ir­tæk­is­ins er að byggja upp atvinnu á Íslandi og nýta íslenskar auð­lindir og láta verð­mæta­sköp­un­ina eiga sér stað hér. Fram­leiðsla TARAMAR er í Sand­gerði og í dag vinna fjórar konur úr Sand­gerði og Keflavík við fram­leiðslu og pökkun.

Fáar af hinum hefð­bundnu fjár­fest­ing­ar­leiðum, svo sem nýsköp­un­ar­sjóðir, hafa stutt við bakið á TARAMAR. Eign­ar­halds­fé­lag Suð­ur­nesja er eina félagið sem hefur komið inn með eitt­hvað fjár­magn af ráði og í raun væri TARAMAR ekki til ef þeirra hefði ekki notið við.

Til að standa undir kostn­aði við þróun og mark­aðs­setn­ingu hefur TARAMAR farið þá leið að bjóða almennum borg­urum hluti til sölu og í dag hafa fleiri en 500 Íslend­ingar keypt hluti í TARAMAR og fengið í stað­inn aðgang að vörum TARAMAR á mjög hag­stæðu verði. Margir af þessum hlut­höfum hafa tekið virkan þátt í starf­semi TARAMAR og haft áhrif á þróun með próf­unum og umsögnum. Auk þess rekur félagið vild­ar­klúbb sem nú inni­heldur rúm­lega 6000 manns. Þannig er félagið í stöð­ugu sam­bandi við neyt­endur og nýtir góðs af reynslu og upp­lif­unum vild­ar­klúbbs­með­lima en í hverjum mán­uði ber­ast margar sögur af upp­götv­unum og virkni var­anna.“

Fyrir þá sem hafa áhuga á að taka þátt í þróun og markassetn­ingu TARAMAR sem einn af eig­end­unum þá má finna upp­lýs­ingar hér:  www.taramar.is/hluthafar og þeir sem vilja ganga í vild­ar­klúbb­inn er bent á www.taramar.is/vildarklubbur

Sérstaða og markaðssetning

„TARAMAR hefur þróað ákaf­lega verð­mætar vörur og þekk­ing félags­ins er mikil og dýr­mæt. Kynn­ingar á húð­vör­unum erlendis á síð­asta ári eru að bera árangur og fyrsta mark­aðs­setn­ing inn á Dubai-svæðið á sér stað í þessum töl­uðum orðum. Einnig er mik­ill áhugi hjá sölu­að­ilum á lúx­usvörum í Evrópu og telja má lík­legt að vör­urnar verði komnar inn á þá mark­aði síðar á þessu ári.

Það sem gerir TARAMAR vör­urnar svo sér­stakar og áhuga­verðar fyrir þessa mark­aði er að þær eru íslenskar og byggja á íslensku hug­viti. Allar TARAMAR-vör­urnar eru fram­leiddar frá A-Ö á Íslandi, við afburða hreinar aðstæður sem mætti næstum líkja við skurð­stofu. Þetta er mjög sér­stakt því oftar en ekki leikur vafi á upp­runa vara í þessum iðn­aði og oft kemur í ljós að vörur sem eru kenndar við eitt land eru búnar til í öðru landi. Hrein­leiki TARAMAR-var­anna skapar líka mjög mikla sér­stöðu en neyt­endur eru nú með­vit­aðri um inni­halds­efni og láta ekki bjóða sér hvað sem er. Auk þessa er virkni TARAMAR-var­anna svo mikil að hún kemur á óvart. Þessi virkni hefur verið sann­prófuð af óháðum aðilum og TARAMAR stundar einnig próf­anir til að auka skiln­ing á heilandi ferlum í húð­inni. Þannig kemur í ljós að jákvæðar breyt­ingar í húð­inni eiga sér oft stað mjög hratt eftir að við­kom­andi skiptir yfir í 100% hreinar og líf­virkar vörur eins og TARAMAR.“

Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í próf­unum hjá TARAMAR er bent á að hafa sam­band við Írisi Thord­er­sen ([email protected]).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu