Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Anna og Brynjar loksins vinir: „Að finna skemmtilegt fólk fer ekki endilega eftir flokkslínum“

Anna og Brynjar loksins vinir: „Að finna skemmtilegt fólk fer ekki endilega eftir flokkslínum“

Anna Krist­jáns­dóttir rifjar upp útgöngu­bannið á Tenerife árið 2020 vegna Covid-far­ald­ur­ins, í nýjust dag­bók­ar­færslu sinni á Facebook. Þá segir hún einnig frá nýrri Facebook-vin­áttu sinnar og Brynjars Níels­sonar.

Í færsl­unni lýsir hún hversu spenn­andi henni hafi þótt að vera föst í ókunnu landi þó hún hafi vissu­lega fengið að sjá „hið versta og nei­kvæða við slíkt bann“ eins og hún orð­aði það. Þá líkti hún útgöngu­bann­inu við langan túr í Smugunni, svona fyrir utan það að hún komst í búð einu sinni á dag og velt­ing­ur­inn var eng­inn. Anna segir einnig frá því er örygg­is­vörður „skaut á hana“ með hita­byssu til að athuga hvort hún væri með Covid-ein­kenni en hún lét sig við það falla í gólfið með til­þrifum, í stríðni.

Í lok færsl­unnar talar hún um nýja Facebook-vin­áttu hennar og Brynjars Níels­sonar en hún hafði vonað lengi að hann sendi henni vina­beiðni, því henni þykur hann fynd­inn. Að lokum ákvað hún að senda honum beiðni. „Að finna skemmti­legt fólk fer ekki endi­lega eftir flokkslínum, sem betur fer.“

Færsluna má lesa hér að neðan:

„Dagur 1393 – Um útgöngu­bann.

Ég fór að rifja upp útgöngu­bannið 2020 fyrir sjálfri mér.Það var svo seint sem í mars 2020 þegar kór­ónu­veiran færð­ist eins og mara yfir heims­byggð­ina og öllu var skellt í lás. Þegar stefndi í útgöngu­bannið átti ég pantað far til Íslands og heim aftur viku síðar, en svo brast útgöngu­bannið á og ljóst að ef ég færi á ætl­uðum degi til Íslands, kæm­ist ég ekki heim aftur. Ég myndi lok­ast inni á Íslandi og þurfa að bíða, kannski í marga mán­uði uns ég fengi að fara heim aftur, enda var ég ekki enn komin með fasta búsetu hér í Paradís.Ég hætti við ferð­ina til Íslands og lét útgöngu­bannið yfir mig ganga og sá ekki eftir því. Þarna var ég að prófa eitt­hvað nýtt og fram­andi í ókunnu landi og fyrir mig var þetta fyrst og fremst spenn­andi þótt vissu­lega fengi ég að sjá hið versta og nei­kvæða við slíkt bann, en um leið var þetta eins og langur túr í Smuguna þó að því frá­töldu að ég mátti skreppa í búð­ina einu sinni á dag og það var eng­inn velt­ingur og eng­inn hafði áhyggjur af því ef ég drykki óþarf­lega mikið af gör­óttum drykkjum eða bjór.Það var vissu­lega óþægi­legt þegar ég ætl­aði að smygla nokkrum íslenskum bókum heim til mín og her­inn rak mig heim, en af því að ég var sam­mála verkum yfir­valda, reyndi ég einnig að hafa gaman af hlut­unum. skemmti­leg­asta dæmið var samt þegar örygg­is­vörð­ur­inn í búð­inni tók upp hita­byss­una og skaut mig með henni til að sann­færa sig um að ég væri ekki með hita af völdum Cóvið og ég lét mig falla til jarðar, augna­blik sem ég mun aldrei gleyma, ves­al­ings örygg­is­vörð­ur­inn. Ég held samt að hann sé búinn að fyr­ir­gefa mér leik­ara­skap­inn, enda hefði Neymar ekki getað leikið hlut­verkið betur en ég á þeirri stundu.Svo leið heilt ár á eftir þar sem allt lífið á Tenerife var í lama­sessi, útgöngu­bann á nótt­unni, Ameríska ströndin stein­dauð og lífið var lengi að ná sér í Los Cristianos og því­lík dásemd að aka um göt­urnar á suð­ur­hluta Tenerife og nán­ast engin umferð.Síðan eru liðin ein­hver ár, flest hótel opn­uðu haustið 2021 og smám saman fór allt í sitt eðli­lega horf, og þó. Sól­ar­þyrstir Norður-Evr­ópu­búar rudd­ust inn árið 2022 og allt í einu varð umferðin slík að gatna­kerfið bar hana engan­veg­inn og er svo enn.Ég er farin að sakna útgöngu­banns­ins.—–Ég sæk­ist ekki oft eftir vin­áttu á Facebook við fólk sem ekki er mér tengt á ein­hvern hátt. Einn er samt sá maður sem er með svo skemmti­legan húmor að ég sakn­aði þess að hann hefði aldrei sóst eftir vin­áttu við mig á Facebook, auk þess sem við eigum marga sam­eig­in­lega vini, þá helst frá Vest­manna­eyjum enda konan hans þaðan. Að lokum braut ég odd af oflæti mínu og sótt­ist eftir vin­áttu við hann. Að finna skemmti­legt fólk fer ekki endi­lega eftir flokkslínum, sem betur fer.Með­fylgj­andi mynd er frá þeim tíma í árs­byrjun 2020 er Brynjar reyndi að kristna mig í Flokkinn, en Oddný Harð­ar­dóttir flokks­systir mín stillti sér upp á milli okkar og kom þannig í veg fyrir óþægi­lega flokka­drætti.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu