Jarðskjálftahrina hefur hrist vel upp í íbúum á Suð-Vesturhluta landsins en öflugir og tíðir skjálftar hafa verið við Fagradalsfjall. Útvarpsfréttamanni Rúv brá heldur betur brún þegar hann sat og las útvarpsfréttir um jarðskjálftahrinuna. Í miðri útsendingu truflaði jarðskjálfti fréttatímann. Greina mátti mikla skruðningar í hljóðverinu og fréttamaður sem augljóslega er brugðið útskýrir ástæðuna fyrir hlustendum:
„Þarna var einn harður að ríða yfir, hérna í beinni útsendingu“
Spaugilegt orðaval fréttamanns vöktu athygli margra og Andri Yrkill Valsson birti stiklu af atvikinu á samfélagsmiðlinum Twitter. Hér að neðan má heyra og sjá færslu Andra í heild:





















Athugasemdir