Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Git Skoglund: Íslendingar klæddust hampfötum á miðöldum

Git Skoglund: Íslendingar klæddust hampfötum á miðöldum

Vefn­að­ar­leifar sem varð­veittar eru á Þjóð­minja­safni Íslands og hafa til þessa dags taldar vera úr hör reynd­ust vera úr hampi. Þykir þessi upp­götvun renna stoðum undir þá til­gátu að auk hör hafi hampur verið rækt­aður hér á landi allt frá land­námi og fram á 19. öld. Þetta kemur fram í nýjum þætti HAMPKASTSINS, umræðu­þætti Hamp­fé­lags­ins, þar sem rætt er við sænsku fræði­kon­una Git Skoglund sem gerði umrædda upp­götvun. Git hefur þrí­vegis komið til lands­ins vegna fræði­starfa sinna og í sumar tók hún jarð­vegs­sýni sem rann­sökuð verða í háskól­anum í Helsinki í Finn­landi.

Git Skoglund er menntuð í þjóð­fræði og textíl. Hún segir frá því í við­tal­inu að snemma á tíunda ára­tug síð­ustu aldar hafi hún í textíl­námi sínu kynnst hampi sem hafi vakið áhuga hennar. „Það er svo­lítið skrítið með hamp­inn því þarna er þetta frá­bæra textílefni sem leyn­ist í for­boð­inni plöntu,“ segir Git sem gaf út bók fyrir fáeinum árum sem nefn­ist Cannabis Textiles: In Hemp Garden Cultures. Í bók­inni skrifar Git um ára­langar rann­sóknir sínar á hamp­rækt í Evrópu og Asíu en meðal þess sem hún hefur gert er að sækja heim þjóð­minja­söfn hinna ýmsu landa og taka sýni úr vefn­að­ar­leifum sem þar finn­ast. Og það gerði hún einnig á Þjóð­minja­safni Íslands.

Git Skoglund.

Git sótti um leyfi til að taka sýni úr vefn­að­ar­leifum Þjóð­minja­safns­ins og segir hún að ósk hennar hafi verið vel tekið. Hún seg­ist hafa fengið ákaf­lega góðar mót­tökur frá starfs­fólki safns­ins og nefnir Lilju Árna­dóttur safn­vörð sér­stak­lega sem hafi verið henni innan handar. Starfs­fólkið hafi eins og hún skilið mik­il­vægi þess að gera umræddar rann­sóknir því að nið­ur­stöð­urnar geti verið eins og nýtt púsl í sögu þjóð­ar­innar, púsl sem eng­inn vissi að vant­aði.

„

Nýverið fundum við þrjú dæmi um vefnað á Þjóð­minja­safn­inu sem eru úr hampi. […] Þetta var vefn­aður frá 17. öld. […] Sagan segir að allur vefn­aður á Íslandi hafi verið fluttur inn en ég tel það ekki rétt. Ég held að konur hafi ræktað hamp í görðum sínum eins og þær gerðu víð­ast hvar ann­ars staðar í Evrópu.

“ 

Næsta skref í rann­sókn Git er að taka sýni úr jarð­vegi og sýni af trefja­þráðum sem rann­sakað verður á næstu mán­uðum og árum og reiknar hún ekki með nið­ur­stöðum í bráð.

Nokkrar heim­ildir eru um hör­rækt hér á landi til forna (eins og lesa má um í þess­ari grein á Vís­inda­vefnum) og er talið að land­náms­fólk hafi tekið þá rækt­un­ar­menn­ingu með sér til Íslands. „Land­nemar Íslands komu frá Noregi og það var mikil hamp­rækt í Noregi og hafði verið um alla tíð. Fyrstu vís­bend­ing­arnar um hamp­rækt þar eru frá ein­hverjum hund­rað árum eftir krist. Þannig að það er eðli­legt að álykta að land­nem­arnir hafi tekið með sér fræ til Íslands og ræktað hamp hér á landi. Margir halda að ekk­ert sé hægt að rækta á Íslandi en mþað er auð­vitað hægt að rækta hamp hér á landi. Þetta var ekki iðn­að­ar­ræktun á stórum ökrum heldur voru plönt­urnar rækt­aðar í litlum görðum,“ segir Git og bætir við að það vanti mikið magn upp­lýs­inga um þessa þætti í sög­una. „Það voru ekki kon­urnar sem bjuggu til fötin sem skrif­uðu sög­una. Það voru karl­menn og þeir skrif­uðu um eitt­hvað allt annað.“

Vitundarvakningu þarf um hraðtísku

Git segir að þrátt fyrir að auð­velt sé að rækta hamp þá verði vefn­aður úr hampi aldrei ódýr vara. Bæði þurfi að stóla á góða upp­skeru og eins sé mikil vinna sem þurfi að gera án vél­arafls. Hún segir að fram­tíð hamps í vefn­aði liggi í að blanda honum saman við önnur efni, til dæmis ull, og eins að það verði vit­und­ar­vakn­ing þegar kemur að hinni svoköll­uðu hrað­tísku sem felur í sér að föt eru fram­leidd af miklum hraða og í miklu magni en ekki til þess að end­ast sér­stak­lega lengi. „Hampur er frá­bært efni í vefn­aði og föt úr hampi end­ast lengi. Þannig föt eiga að kosta meira. Það er bara eitt­hvað sem við verðum að skilja og það er eitt af mínum mark­miðum með rann­sóknum mínum að hækka virði hamps­ins. Þetta er mjög verð­mæt planta sem nota má á marg­vís­legan hátt. Fólk þarf þá að vera til­búið að borga fyrir textíl sem unnin er úr henni,“ segir Git og varar fólk við vöru­svikum. „Það er búið að hæpa hamp­inn á síð­ustu árum og í mörgum til­vikum þegar seld eru hamp­föt þá eru þau í raun­inni úr hör. Ég var á ferða­lagi um Asíu í vetur og fór þá í búð sem seldi klæðnað úr hampi. Ég spurði hvort ég mætti taka sýni úr vörum þeirra og þá reynd­ust það ekki einu sinni líf­rænar trefjar heldur gervi­efni. Þetta er mjög sorg­leg þróun og því miður er mikið um svik þegar kemur að hamp­inum.“

Þáttinn má sjá í heild sinni í spil­ar­anum hér að neðan. Gunnar Dan Wiium, stjórn­ar­maður í Hamp­fé­lag­inu, tók við­talið við Git Skoglund. Mickael Omar Lakhlifi sá um tækni­mál og Andri Karel um frétta­skrif.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu