Anna Kristjánsdóttir
„Ég lokaði af allar tilfinningar og gerðist kall.“
Anna Kristjánsdóttir
Skoðun

Strætó hefur aldrei verið verri

Fólk

Helga­fell á Sel­tjarn­ar­nesi komið á sölu

Innlent

Falsaðar ljós­myndir orðnar algengar í fast­eigna­aug­lýs­ingum

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Fólk

Breið­holts­laug, Laug­ar­dalur og Hósiló meðal staða sem fá góð með­mæli

Innlent

Gleymdi kaffi­bolla og rusli og end­aði fyrir kæru­nefnd

Innlent

Vopn komu við sögu þegar ung­lingap­artý fór úr bönd­unum

Heimur

Trúður vakti óhug við grunn­skóla

Innlent

Einn lát­inn og annar á gjör­gæslu eftir hnífstungu­árás í Breið­holti

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Ólöf hefur unnið fyrir sínu: „Ekki eins og ég fái núna allt upp í hendurnar“

Ólöf hefur unnið fyrir sínu: „Ekki eins og ég fái núna allt upp í hendurnar“
Helga Braga ræddi lífið og til­ver­una í við­tali – Mynd: Skjáskot úr Topp 10 möst

Ólöf Birna Torfa­dóttir, leik­stjóri og hand­rits­höf­undur, er byrjuð í tökum á ann­ari kvik­mynd sinni.

Ein af von­ar­stjörnum íslenska kvik­mynda­brans­ans, hún Ólöf Birna Torfa­dóttir, er nýbyrjuð í tökum á sinni ann­ari kvik­mynd. Ólöf sem skrif­aði og leik­stýrði kvik­mynd­inni Hvernig á að vera Klassa Drusla, sem kom út árið 2021, hefur mörg járn í eld­inum þessa stund­ina. Nýja mynd hennar heitir Topp 10 Möst og verður fróð­legt að sjá hvort að hún slái í gegn hjá þjóð­inni eins og fyrsta mynd hennar gerði.

„Í stuttu máli fjallar myndin um Örnu, konu á sex­tugs­aldri, sem er orðin frekar stöðnuð í líf­inu og allir dagar virð­ast eins. Á sama tíma kynn­umst við Mjöll sem er þrí­tugur fangi sem stans­laust virð­ist koma sér í vand­ræði,“ sagði Ólöf um sögu­þráð mynd­ar­innar. „Dag einn ákveður Arna að grípa til rót­tækra aðgerða, hoppar upp í bíl og leggur af stað í ferða­lag þar sem hún hyggst ætla að fylla út óska­lista yfir hluti sem hún hefur aldrei gert áður og langar að enda á Aust­fjörðum þar sem hún hefur aldrei komið þar áður. Á sama tíma fær Mjöll þær fréttir í fang­els­inu að barns­faðir hennar sem býr á Egils­stöðum vill að nýja konan hans ætt­leiði dóttur þeirra. Mjöll flýr því úr fang­els­inu og á bens­ín­stöð á leið út úr bænum finnur hún sér far í bíl Örnu. Þær stöllur verða svo óvana­legt vinapar og saman ferð­ast þær þvert yfir landið og fylla út topp 10 möst list­ann,“ en aðal­leik­arar mynd­innar eru Helga Braga Jóns­dóttir og Tanja Björk Ómars­dóttir. Með þeim eru svo Björn Ingi Hilm­ars­son, Jóhanna Vigdís Arn­ar­dóttir, Orri Huginn Ágústs­son og Ólafía Hrönn Jóns­dóttir.

Ólöf Birna Torfa­dóttir –

En hvað er við þessa sögu sem heillar Ólöfu svo mikið?

„Það sem heillar mig mest er sagan, hversu marg­þátta hún er, snertir á ýmsum mál­efnum sem kannski er ekki oft talað sér­stak­lega mikið um, sem eru samt mál­efni sem flestir tengja við á einn eða annan hátt. Mér finnst heill­andi hvað karakt­er­arnir eru mann­legir, hversu auð­velt er að tengja við þá. Þrátt fyrir óhefð­bundnar aðstæður þá meikar þeirra vin­átta svo mikið sens. Ég elska sög­una þeirra á milli og teng­ing­una sem þær mynda og hvað þær verða fyrir hvor aðra.“

Ólöf sem er að gera sína aðra kvik­mynd í fullri lengd segir mik­inn mun vera á að gera stutt­mynd og kvik­mynd í fullri lengd en hún hafi lært mikið við gerð fyrstu mynd­ar­innar. „Það er heilmargt sem maður lærir á að vinna svona stórt verk­efni. Kannski einna helst það sem ég tek út úr þeirri reynslu og reyni að nýta í næstu verk er að gleyma sér ekki í öllu umstang­inu,” segir leik­stjór­inn um málið. „Að vera á staðnum líka og njóta. Það er ótrú­lega gaman að búa til bíó og það má alveg njóta þess og hafa gaman af, ég vil geta gert meira af því, farið frá „sett­inu“ með góðar minn­ingar og hlýju í hjarta að þarna hafi orðið dásam­leg fæð­ing á því sem við sjáum svo í bíó seinna.“

Tanja Björk Ómars­dóttir leikur aðal­hlut­verk á móti Helgu Brögu

„Að hafa gert Klassa Druslu vissu­lega opn­aði ein­hverjar dyr,“ sagði Ólöf um hvort að líf hennar hafi breyst mikið eftir að Hvernig á að vera Klassa Drusla kom út. “Þá hafði maður sannað að maður kynni og gæti gert bíó­mynd sem varð alveg frekar vel sótt, sér­stak­lega miðað við Covid aðstæður og tak­mark­anir á þeim tíma sem hún var í bíó. Á sama tíma er ég frekar ný í þessu hlut­verki í kvik­mynda­iðn­að­inum, það er ekki eins og ég fái núna allt upp í hend­urnar eins og mér hentar, langt því frá. Maður er alltaf að sanna sig og bæta. Topp 10 Möst er gríð­ar­lega stórt tæki­færi fyrir mig og aðra í „crewinu“ til að sýna okkur og sanna enn og aftur hvers megn maður er og að hér sé ég komin til að vera.“

En hver er mun­ur­inn á Topp 10 Möst og Klassa Druslu? „Topp 10 Möst er tölu­vert stærri fram­leiðsla en Klassa Drusla var. Topp 10 er styrkt af Kvik­mynda­sjóði, Myrkva­Myndir og KISI production eru að fram­leiða mynd­ina saman. Á meðan Klassa Drusla var alveg „low low budget“ mynd og hlut­irnir unnir eftir því. Til dæmis töku­stíll, í Klassa Druslu var lítið rými fyrir tæki og tól svo hún var mest öll tekin „hand­held“. Klassa Drusla var ótrú­lega skemmti­legt verk­efni, frekar súr ýktur húmor og frá­bær fyrir það sem hún er. Topp 10 Möst er vissu­lega gam­an­mynd, aðeins jarð­bundn­ari og mér per­sónu­lega finnst sagan sterk­ari og karakt­erar þroskað­ari, en það er líka bara af því maður er alltaf að bæta sig og verða betri og von­andi verður það alltaf þannig að næsta verk­efni verði betra en það fyrra.“

Ólöf er fyrr­ver­andi nem­andi Kvik­mynda­skóla Íslands en nem­endur skól­ans hafa und­an­farin ár verið að sækja í sig veðrið og verið meira og meira í sýni­legri í kvik­mynda­brans­anum.

„Mér finnst frá­bært að fleiri og fleiri úr Kvik­mynda­skól­anum eru að vinna á „settum“. Mín upp­lifun á skól­anum var geggjuð, ég kom þarna inn eins og svampur og saug í mig allar upp­lýs­ingar frá fólki sem var heitt inn í brans­anum á þeim tíma. Það er það sem mér finnst best við Kvik­mynda­skól­ann er að leið­bein­endur eru fólk sem er akkúrat í dag að vinna í sjón­varpi eða bíó, kennslan er alltaf fersk og í takt við nútím­ann. Ég hef verið það heppin líka að fá að kenna hand­rit fyrir nem­endur á fram­leiðslu­deild í þrjár annir núna. Ég heyri mis­mun­andi sögur af orð­spori frá skól­anum en fyrir mér er þetta „super“ ein­falt: Ef þú vilt læra og í alvöru gera þetta að ferli þá mun þessi skóli nýt­ast þér heilan hell­ing. Ef þú ert þarna af ein­hverjum öðrum ástæðum þá færðu ekk­ert út úr því.“

„Ég er í hand­ritsteymi með þremur öðrum hand­rits­höf­undum í þátta­röð sem Glass­ri­ver er að fram­leiða. Það verk­efni er áætlað í sjón­varp fyrripart næsta árs,” sagði Ólöf um hvað væri svo næst á dag­skrá þegar tökum lýkur. “Svo er ég og Hrafn­kell Stef­áns­son að vinna saman að mjög svo spenn­andi þáttum sem heita Eig­in­konur Íslands, en það verk hefur þegar hlotið fyrsta styrk hand­rits frá Kvik­mynda­sjóði.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...
5
Slúður

Stjórn­ar­hættir Brynju

Einn und­ar­leg­asti atburður í íslensku atvinnu­lífi síð­ustu ár er brott­hvarf Harðar Arn­ar­sonar úr stóli for­stjóra Lands­virkj­unar eftir far­sæl störf í 17 ár. Hörður, sem hafði byggt upp fyr­ir­tækið Marel með mynd­ar­brag þegar hann tók við Lands­virkjun, hætti einu og hálfu ári eftir að Daði Már Krist­ó­fers­son fjár­mála­ráð­herra skipti alfarið út stjórn rík­is­orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Stjórn­ar­for­mað­ur­inn Brynja Bald­urs­dóttir er grjót­harður kap­ít­alisti. Hún hefur...

Mest lesið í vikunni

Innlent

Einn bak við lás og slá eftir lík­ams­árás í Árbæ

Heimur

Bauð inter­net­inu í brúð­kaupið og allt fór á annan end­ann

Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvotta­hús

Innlent

Fluttur á bráða­mót­töku eftir að eldur kom upp í íbúð

Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Menning

Menning

Sendu sím­ann í svefn­poka og fáðu smá frið

Menning

Nýtt bóka­for­lag vill efla íslensku­lestur meðal fólks af erlendum upp­runa

Menning

Ást, missir og barn­þrá í upp­seldri skáld­sögu Mar­grétar

Menning

Frá Rocky og Springsteen til aftöku í Sádi-Arabíu

Myndband
Menning

Luthers­son frum­sýnir blóð­uga ást­ar­sögu í eyði­mörk Kali­forníu